Amiina flytur Fantômas á Húrra

Hljómveitin amiina flytur tónlist af nýútkominni plötu sinni, Fantômas við samnefnda kvikmynd frá 1913 á Húrra 22. og 23. febrúar 2017.
Miðaverð: 2.500. Takmarkaður sætafjöldi í boði.

Lávarður hryllingsins, herra Fantômas, ræður ríkjum á nýjustu plötu hljómsveitarinnar amiinu sem kom út hjá Mengi 25. nóvember síðastliðinn. Tónlist amiinu samin við þögla spennumynd frá árinu 1913 eftir franska kvikmyndaleikstjórann Louis Feuillade, frumflutt á Hrekkjavöku í hinu virta Théâtre du Châtelet í París árið 2013 og lítur nú dagsins ljós sem sjálfstæð heild enda höfðu amiinuliðar það strax á stefnuskránni að gefa tónlistina út á plötu. Þetta er fjórða breiðskífa amiinu, eldri eru Kurr (2007), Puzzle (2010) og The Lighthouse Project (2013) en allar þessar plötur hafa hlotið dreifingu víða um heim og hlotið frábærar viðtökur.

Angurværð og tregi, himneskar laglínur og ágengir taktar, ólgandi spenna og hryllingur; tónlist amiinu við Fantômas býr yfir margvíslegum kenndum þar sem nokkur leiðarstef mynda nokkurs konar rauðan þráð og gefa tilfinningu fyrir heilsteyptu verki á sama tíma og hægt er að njóta hvers einstaks lags. Fiðla, selló, ukulele, trommur, slagverk ýmiss konar, borðharpa og rafhljóð mynda uppistöðuna í hljóðheimi amiinu á þessari plötu sem er full af andstæðum þar sem möguleikar hljóðfæranna eru nýttir á margvíslegan hátt eins og amiinuliðum einum er lagið. Þetta er ekki fyrsta kvikmyndin sem amiina semur tónlist við, undanfarin ár hafa þau tekið ástfóstri við heillandi kvikmyndir þýsku kvikmyndagerðarkonunnar Lotte Reiniger og samið tónlist við nokkur af brothættum ævintýrum hennar.

Annars konar andrúmsloft svífur svo sannarlega yfir vötnum í kvikmyndum Louis Feuillade um hinn harðsvíraða glæpamann Fantômas sem fyrst kvaddi sér hljóðs árið 1911 í bókaseríu frönsku rithöfundanna Marcel Allain og Pierre Souvestre en Fantômas sló umsvifalaust í gegn á meðal franskra, spennusagnaþyrstra lesenda. Hann varð aðalviðfangsefni fimm kvikmynda Louis Feuillade sem frumsýndar voru á árunum 1913 til 1914 í París og átti einnig eftir að verða ótal listamönnum úr ólíkum áttum innblástur allt fram á okkar daga. Súrrealistar og framúrstefnulistamenn í upphafi 20. aldarinnar á borð við Guillaume Appolinaire og René Magritte sóttu í smiðju Fantômas og sjónvarpsþættir, myndasögur, kvikmyndir, skáldsögur og tónlistarmenn seinni tíma í ótal löndum hafa og byggt á þessum efnivið á einn eða annan hátt, má þar nefna verk listamanna á borð við Mike Patton, Julio Cortázar og ótal fleiri.

Undir fáguðu yfirbragði Fantômas leynist stórhættulegur raðmorðingi sem nýtur þess að pynta og kvelja fórnarlömb sín og beitir til þess ótrúlega hugvitssamlegum aðferðum. Rottur og snákar, sandgryfjur og eitur, allt þetta og meira til nýtir hinn hugmyndaríki Fantômas sér til að murka lífið úr þeim sem á vegi hans verða. Hann er meistari klækja og bellibragða og ókrýndur konungur dulargervanna; enginn veit hvaða ásýnd hann tekur á sig í það og það skiptið. Dúóið Juve og Fandor eru þjónar réttvísinnar í sögunum um Fantômas, Juve er rannsóknarlögreglumaður og Fandor rannsóknarblaðamaður en báðir leggja þeir allt í sölurnar til að handsama þrjótinn sem heldur Parísarborg í heljargreipum. Ekki þarf að taka fram að klækjaþrjóturinn Fantômas sigrar orrustuna í hvert sinn og smýgur undan réttvísinni.

Tónlist amiinu var frumflutt Hrekkjavöku í Théâtre du Châtelet í París árið 2013 samhliða tónlist fjögurra annarra tónlistarmanna við kvikmyndir Louis Feuillade um Fantômas. Tónlistarmennirnir James Blackshaw, Loney Dear, Tim Hecker og Yann Tiersen lögðu til nýja tónlist við hinar fjórar myndirnar á viðburði sem laut listrænni stjórnun Yann Tiersen (sem sjálfur er þekkt kvikmyndatónskáld og samdi meðal annars tónlistina við hina ástsælu kvikmynd Amelie) en Tiersen hafði pantað tónlistina af þessum músíköntum fyrir viðburðinn. Myndirnar fimm voru sýndar hver af fætur annarri og á meðan hljómaði tónlist 21. aldarinnar við þögul kvikmyndaverk frá upphafi 20 aldarinnar. Sýningatími var í kringum sex klukkustundir en tilefni viðburðarins var meðal annars endurgerð franska kvikmyndafyrirtækisins Gaumont á myndunum um Fantômas.

 

Nánari upplýsingar veita:

Snorri Helgason: 6959829

Magnús Trygvason Elíassen: 697 3466