Hljóðön – …þangað til…

Hljóðön – …þangað til…
Sunnudaginn 29. mars kl. 20 verða fjórðu og síðustu tónleikar vetrarins í tónleikaröðinni Hljóðön haldnir í Hafnarborg. Tónleikarnir bera yfirskriftina …þangað til… og eru það Gunnlaugur Björnsson, gítarleikari og Hafdís Vigfúsdóttir, flautuleikari sem koma fram. Þau munu leika saman tvö verk og einnig flytja nokkur sólóverk við undirleik rafhljóða. Efnisskráin er samansett af verkum eftir Clarence Barlow, Halldór Smárason, Einojuhani Rautavaara og Toru Takemitsu. Verk japanska tónskáldsins Takemitsu, Towards the sea, var samið fyrir Greenpeace og herferð þeirra til björgunar hvala en það er eitt allra stærsta tónverk sem samið hefur verið fyrir gítar og flautu og er það er byggt á skáldsögunni Moby Dick eftir Melville. Á tónleikunum skiptir Gunnlaugur á milli þriggja gítara og Hafdís leikur á þrjár flautur; alt flautu, þverflautu og pikkaló flautu.

hljodonn_MG_5709Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Gunnlaugur Björnsson gítarleikari eiga það sameiginlegt að hafa ung lokið framhaldsprófi frá Tónlistarskóla Kópavogs, hlotið viðurkenningu frá Kópavogsbæ sem „framúrskarandi listnemar” og í framhaldinu stundað tónlistarnám erlendis.

Gunnlaugur Björnsson, gítarleikari, lauk nýverið B.Mus gráðu frá Manhattan School of Music þar sem hann hlaut Andrés Segovia verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur í gítarnámi. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, m.a. Nótuna 2010, úrslitakeppandi í ASTA keppninni 2013 og var sigurvegari Lilian Fuchs samspilskeppninnar sama ár. Gunnnlaugur hlaut nýverið inngöngu í Master nám við hinn virta Yale School of Music í Bandaríkjunum.

Hafdís Vigfúsdóttir, flautuleikari, hefur lokið B.Mus gráðum frá Listaháskóla Íslands og Konunglega konservatoríinu í Den Haag. Þá hlaut hún fyrstu einkunn á lokaprófi frá Konservatoríinu í Rueil-Malmaison í Frakklandi, að loknu þriggja ára námi þar og að lokum meistaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Osló. Árið 2009 hlaut Hafdís önnur verðlaun í alþjóðlegri tónlistarkeppni „Le Parnasse” í París. Hafdís hefur komið fram sem einleikari með Ungfóníu, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands, og einnig leikið í afleysingum með þeirri síðastnefndu. Hún lék verkefni með norsku útvarpshljómsveitinni (KORK) á námsárunum, auk þess að leika með Ungdomsymfonikerne og Orchestra NoVe.

Hljóðön er tónleikaröð tileinkuð tónlist frá 20. og 21. öldinni þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir. Nafn tónleikaraðarinnar skírskotar til smæstu merkingargreinandi hljóðeininga tungumála, grunneininga sem púsla má ólíkt saman svo úr verði tilraun til merkingar. Hafnarborg efnir hér til tónleikaraðar þar sem ætlunin er að kynna ólík verk samtímatónskálda úr fremstu röð. Í forgrunni verða verk sem fá best notið sín við þær aðstæður og miklu nánd sem býðst í sal Hafnarborgar og telja má sérstakan í flóru tónlistarsala á höfuðborgarsvæðinu.
Aðgöngumiðar á tónleikana eru seldir í afgreiðslu Hafnarborgar, á opnunartíma safnsins og klukkustund fyrir tónleika. Hægt er að panta miða í s. 585-5790. Almennt miðaverð er kr. 2500, fyrir eldri borgara og námsmenn kr. 1500.
Nánari upplýsingar gefa:
Áslaug Friðjónsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarborgar s. 585 5790
Þráinn Hjálmarsson, listrænn stjórnandi Hljóðanar s. 697-7611
Gunnlaugur Björnsson, gítarleikari s. 864 5743