Icepack ehf.
Einar Helgi Jónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Icepack ehf.

Icepack ehf

Alhliða lausnir fyrir matvæla- og drykkjarframleiðendur

Fyrirtækið Icepack var stofnað árið 2011 og hefur frá upphafi sinnt víðtækri þjónustu við matvæla- og drykkjarframleiðendur. Fyrstu rekstrarárin var megin áhersla starfseminnar á umbúðalausnir en síðan hefur starfsemin þróast umtalsvert og eru þrjár meginstoðir fyrirtæksins í dag þjónusta og sala á rannsóknarvörum tengdum gæðaeftirliti, ráðgjöf og sala á umbúðalausnum og alhliða þjónusta við ísframleiðendur.

 Rannsóknarvörur fyrir gæðaeftirlit við matvælaframleiðslu er vaxandi þáttur

DA7250_reflex_skarp2„Með auknum kröfum frá Matvælaeftirlitinu og innleiðingu staðla frá Evrópusambandinu hefur vitund um gæðaeftirlit í hver kyns matvælaframleiðslu stóraukist“ segir Einar Helgi Jónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Icepack. Hann bendir jafnframt á að framleiðendur geti sparað stórfé með því að annast slíkt eftirlit sjálfir með notkun réttra tækja og prófa.

Þjónusta tengd gæðaeftirliti hefur vaxið fiskur um hrygg í starfsemi Icepack ekki síst þegar kemur að hreinlæti. Bættar hreinlætis- og gæðakröfur auka gæði framleiðslunnar og tryggja stöðugleika hennar.

„Við höfum einbeitt okkur að því að bjóða skilvirkar og einfaldar lausnir þegar kemur að hreinlæti og bakteríueftirliti. Hreinlæti dregur úr hættu á bakteríusmiti og er veigamikill þáttur við hvers kyns matvælaframleiðslu. Við bjóðum meðal annars svo kallaða ATP-mæla sem gefa tölfræðilegar niðurstöður um hreinlæti. Þá kemur skýrt í ljós hvernig sápur og hreinsiefni virka í raun og hvort efnin séu notuð rétt“ segir Einar Helgi.

Í dag getur Icepack boðið flestum framleiðendum eftirlitsbúnað hvort sem um hefðbundna matvæla- eða drykkjarframleiðslu ræðir, sjávarútveg eða jafnvel fóðurframleiðslu og kornrækt.

Mismunandi er eftir framleiðslu hvaða búnaður hentar hverju sinni. Við bjórframleiðslu er til dæmis hægt að fylgjast með hvort alkóhól-innihald bjórsins sé rétt, hvort hreinlætiskröfum sé framfylgt og hvort rétt hlutfall af vökva, bragðefnum, sykri og öðrum þurrefnum hafi ratað í lögunina. Samræmi er gríðarlega mikilvægur þáttur í allri framleiðslu og því þarf að fylgjast náið með framleiðslunni á mismunandi stigum til að tryggja að lokaafurðin verði eins og til er ætlast og í samræmi við merkingar á umbúðum. „Viðskiptavinurinn vill treysta því að bragðið af uppáhalds bjórnum hans sé alltaf eins” bendir Einar Helgi á.

Alhliða umbúðalausnir

Icepack hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á að veita alhliða ráðgjöf og þjónustu í umbúðalausnum og býður fjölbreytt úrval glervara fyrir drykkjarvöru- og matvælaiðnað, pappírsumbúðir, plast og allt þar á milli.

IMG_7012 sml„Ráðgjafaþátturinn sem tengist umbúðum er viðamikill hluti af starfsemi okkar þar sem viðskiptavinum er veitt aðstoð við að finna heppilega lausn á umbúðamálum. Hönnun sumra umbúða miðast við að hún pakkist vel, en umbúðirnar ráðast oftast að miklu leyti af vörunni sjálfri. Sumar vörur þola að vera í dýrari og fallegri umbúðum, sumar vörur seljast eftir útliti umbúðanna. Það er mikil samkeppni á þessum markaði en einnig mikil fjölbreytni.“ Einar Helgi bætir við að umbúðir geti haft gríðarlega mikið að segja um gengi nýrra vara á markaði og því sé mikilvægt að umbúðamál séu vel ígrunduð.

,,Við fylgjumst mjög vel með því sem er að gerast í kringum okkur og reynum að vera frjóir og kynna fyrir framleiðendum nýjungar í umbúðageiranum á hverjum tíma. Þegar umbúðir eru valdar þarf að huga að mörgu. Það skiptir t.d. máli hver líftími vörunnar er. Það þýðir ekki að minni áhersla sé lögð á umbúðir fyrir vöru sem hefur styttri líftíma, heldur þarf að tryggja að umbúðirnar stuðli að því að lengja líftíma slíkrar vöru sem mest. Sem dæmi má nefna að í ferskvöru þarf oft að gæta þess að lágmarka súrefni í umbúðunum,” segir Einar Helgi.

Umhverfisvænar umbúðir eru í sókn

Einar Helgi segir að talsvert sé um umhverfisvænar umbúðir enda er framleiðsla á slíkum umbúðum í sífelldri þróun og aukist stöðugt. Neytendur kalli einnig í auknum mæli eftir umhverfisvænni neysluvarningi. „Þróunin í umbúðalausnum í dag er mjög hröð og ,,grænar“ umbúðir verða sífellt samkeppnishæfari.“ Hann bendir á að glerumbúðir séu mjög umhverfisvænar og 100% endurvinnanlegar. Meirihluti alls glers er endurunnið og því henti þær markaðinum vel.

Isvel_CarpigianiSamstarf við stærsta ísvélaframleiðanda heims

Þriðji megin þáttur starfsemi Icepack er þjónusta við ísframleiðendur en Icepack flytur inn tækjabúnað og fylgivörur frá Carpigiani á Ítalíu, sem er stærsti ísvélaframleiðandi í heiminum. Ís úr slíkum vélum er meðal annars hægt að fá í Perlunni, Ísbúðinni Paradís, Bada Bing og á KFC. Innan skamms geta farþegar í Leifstöð einnig gætt sér á ísnum. „Ítalskur ís eða „gelato“ er í mikilli sókn um þessar mundir og í nægu hefur verið að snúsast fyrir okkur á þeim markaði,“ segir Einar og bætir við að hann sé afar stoltur af þeim þætti starfsemi Icepack.

[easymedia-fotorama med=”31878,32097,32099″]

 

[table caption=”Hafðu samband – Icepack ehf” class=”row-fluid” border=”5″ width=”100%” colwidth=”50% | 50% ” colalign=” center | center”]
Krókhálsi 4 ◦ 110 Reykjavík,[email protected]
www.icepack.is,tel: +354 511 2090
[/table]