Kvöldganga við Ásmundarsafn

Kvöldganga um höggmyndagarðinn við Ásmundarsafn
Fimmtudag 29. júní kl. 20.00

Ólöf  K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, leiðir göngu um höggmyndagarðinn umhverfis Ásmundarsafn. Þar er að finna tugi verka eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara frá öllum hans ferli. Garðurinn er gróinn og fallegur og tilvalinn áningarstaður í Laugardalnum. Frá garðinum verður síðan gengið um Laugardalinn þar sem má finna fjölmörg listaverk í almenningsrými.

Ásmundarsafn við Sigtún. Ljósmynd: Vigfús Birgisson.

Ásmundarsafn við Sigtún. Ljósmynd: Vigfús Birgisson.
Listasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafnið og Borgarsögusafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur með leiðsögn alla fimmtudaga í sumar til 17. ágúst kl. 20.

Ókeypis aðgangur.