Kári Þorsteinsson

Nýr yfirkokkur á DILL tekur við staðfestingu á Michelin-stjörnu

Nýr yfirkokkur á DILL tekur við staðfestingu á Michelin-stjörnu

Fráfarandi yfirkokkur opnar HOLT

Kári Þorsteinsson tók við sem yfirkokkur á DILL um síðustu áramót og tók við af Ragnari Eiríkssyni.   Kári hélt til Danmerkur síðastliðin laugardag til þess að vera við athöfn Michelin-nefndarinnar og tekur við staðfestingu um að DILL heldur Michelin-stjörnu sinni.  Athöfnin fer fram í turni Ráðhúss Kaupmannahafnar kl. 17:00 á staðartíma. 

Kári Þorsteinsson
Kári Þorsteinsson

Eins og kunnugt er þá hlaut veitingastaðurinn sem staðsettur er á Hverfisgötu 12 fyrstu Michelin-stjörnuna sem íslenskur staður hefur hlotið fyrir ári síðan. 

Kári hlaut gott matreiðsluuppeldi frá móður sinni á Hólmavík og tók ákvörðun um að verða matreiðslumaður þegar hann dvaldi sumarlangt í vellystingum Árneshreppi á Ströndum.  Kári hefur starfað á DILL í rúmt ár og hefur starfað á Michelin-stöðunum Texture í London og Noma í Kaupmannahöfn.

Ragnar Eiríksson tók við Michelin-stjörnu DILL í fyrra vinnur nú hörðum höndum við að opna HOLT sem er nýr veitingastaður sem opnar á Hótel HOLT 28. febrúar næstkomandi. 

Hér er listi yfir þá staði á Norðurlöndunum sem hafa hlotið Michelinstjörnu