Saga af uppruna nafna og Grímsey

Opnun ljósmyndasýninga
Sýningarnar Steinholt – saga af uppruna nafna og Grímsey verða opnaðar laugardaginn 11. febrúar kl. 15 í Þjóðminjasafni Íslands.

Steinholt – saga af uppruna nafna

Steinholt – saga af uppruna nafna fjallar um minningu staðar.
Christopher Taylor dvaldi á Þórshöfn og ferðaðist um svæðið þar í kring til að gera umhverfinu skil og greina frá minningum sem tengjast Steinholti.

Afi og amma Álfheiðar, eiginkonu Christophers, byggðu húsið Steinholt árið 1929. Þegar Álfheiður var barn var hún send yfir sumartímann í Steinholt til ömmu sinnar og nöfnu. Stundirnar þar eru meðal hennar bestu æskuminninga. Christopher Taylor vann að ljósmyndunum í kjölfar óvænts atburðar eftir heimsókn Álfheiðar í Steinholt eftir langa fjarveru. Sýningin er innblásin af forfeðrum Álfheiðar sem ferðuðust vítt og breitt um svæðið í leit að atvinnu eða búsetu. Á árinu 2017 kom út bókin Steinholt með ljósmyndum Christophers. Í bókina rita Monica Dematté og Christopher sjálfur.

Grímsey – Cole Barash

Frá sinni fyrstu heimsókn í Grímsey hefur bandaríski ljósmyndarinn Cole Barash verið heillaður af samfélaginu þar. Með ljósmyndum sínum fangar Cole persónuleg augnablik í lífi íbúanna og skrásetur viðbrögð við birtu og landslagi. Árið 2015 kom út samnefnd ljósmyndabók.

Ljósmyndasýningarnar eru opnaðar laugardaginn 11. febrúar kl. 15 í Þjóðminjasafni Íslands. Sunnudaginn 12. febrúar kl. 14-16 verða Christopher Taylor og Cole Barash í Myndasal Þjóðminjasafnsins, kynna verkin og árita bækur.