Pamela De Sensi, Andrými í litum og tónum
Pamela De Sensi

ANDRÝMI Í LITUM OG TÓNUM – „RAMMAR“

Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands. Síðasta föstudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölbreytta tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni og endurræsa skilningarvitin.

Aðgangur er ókeypis.

Flytjandi:
Pamela De Sensi

Efnisskrá:

Elin Gunnlaugsdóttir (1965- )
Albúm fyrir altflautu og lúppu (2015)

Haraldur Sveinbjörnsson (1975- )

Lög/Layers fyrir kontrabassalfutu og lúppu (frumflutningur)

Gunnar Andreas Kristinsson (1976- )
Rammar/Frames fyrir kontrabassaflautu og lúppu (frumflutningur)

Hugmyndin með Andrými í litum og tónum er að fólki gefist kostur á að eiga nærandi stund við samtal milli sjónlistar og tónlistar.

„Við verðum að endurheimta tímann sjálfan. Slíta hugsunina um hámarks afköst, „tíminn er peningar“ og gefa tímanum rými til að streyma í öfuga átt – til okkar.

Við verðum að taka tímann aftur inn í okkur til að leyfa meðvitundinni að anda og óreiðukendum hugum okkar að staldra við og hljóðna. Þetta getur listin gert og söfn í nútímanum rúmað.“

– Bill Viola

Facebook viðburður
https://www.facebook.com/events/917900725058506/

RELATED LOCAL SERVICES