Domino’s Pizza

Domino’s Pizza

Fyrsta verslun Domino’s Pizza á Íslandi var opnuð þann 16. ágúst 1993 að Grensásvegi 11 í Reykjavík. Reksturinn hefur gengið mjög vel frá þeim degi og fyrirtækið hefur vaxið ört síðan þá. Í dag rekur Domino’s Pizza 19 verslanir hér á landi. Ellefu þeirra eru í Reykjavík, ein í Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og tvær í Kópavogi. Auk þess er einn staður á Akureyri, Akranesi, Selfoss og í Keflavík.

Auk þessara 19 verslana rekur Domino’s hráefnavinnslu, birgðastöð fyrir verslanir fyrirtækisins og þjónustuver, þar sem tekið er við pöntunum viðskiptavina í gegnum síma. Hráefnavinnslan, þjónustuverið og skrifstofa fyrirtækisins eru til húsa að Lóuhólum 2-6 í Reykjavík.

Domino’s Pizza á Íslandi hefur að markmiði að vera leiðandi fyrirtæki á skyndibitamarkaðnum. Helstu markmið okkar eru ímynd, þjónusta og gæði sem stuðla að því að viðskiptavinir okkar séu ánægðir.

Mikil áhersla er lögð á að vinna alltaf með fyrsta flokks hráefni og hágæða vöru. Stöðugleiki er mikilvægur í því tilliti og getur viðskiptavinurinn ætlast til þess að fá sömu eða svipuð gæði á vörunni þó hún sé keypt á ólíkum tímum og í mismunandi verslunum fyrirtækisins.

Opnunartímar:

mán-fim: 16:00-22:00
föst-laug: 11:00-00:00
sun: 11:00-22:00

RELATED LOCAL SERVICES