Ultimate, Relative

Ráðhildur Ingadóttir

Sunnudag 11. mars kl. 14

Sunnudagurinn 11. mars er síðasti sýningardagur sýningnarinnar Ultimate, Relative, innsetningu Ráðhildar Ingadóttur í aðalsal Hafnarborgar. Að því tilefni mun Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, gefa leiðsögn um sýninguna klukkan 14. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Ráðhildur hefur lengi fengist við hið óendanlega og eilífa í verkum sínum. Með sýningu sinni í Hafnarborg dregur hún upp svipmyndir af eigin heimi með upptökuvél, þar sem hún sækir í eigin reynslu og dregur fram minningar. Við greinum einstakling sem rennir augum sínum yfir fjölda upplifana og ristir fortíðina í nútíðina. Listamaðurinn er í sínum eigin heimi, á þeim stað þar sem hið lítilfjörlega mætir hinu stórmerkilega.

Ráðhildur Ingadóttir er fædd í Reykjavík árið 1959. Hún nam myndlist í Englandi á árunum 1981 – 1986. Ráðhildur hélt sína fyrstu einkasýningu í Nýlistasafninu árið 1986 og hefur síðan sýnt á Íslandi og í Evrópu í ríkum mæli og einnig unnið sem sýningarstjóri hér á landi og erlendis. Ráðhildur var gestakennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Listaháskóla Íslands á árunum 1992-2002 sem og við Konunglegu myndlistarakademíuna í Kaupmannahöfn.

Hún var stjórnarmeðlimur í Nýlistasafninu frá 2000-2002. Ráðhildur var listrænn stjórnandi Skaftfells miðstöðvar myndlistar á Austurlandi 2013 og 2014. Hún hefur hlotið starfslaun, verkefnastyrki og ferðastyrki á Íslandi og í Danmörku. Ráðhildur býr og starfar í Kauppmannahöfn, á Seyðisfirði og í Reykjavík. Verk eftir hana eru í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Nýlistasafnsins.

 

RELATED LOCAL SERVICES