Skuggar/Bergmál ný sýning

Skuggar/Bergmál ný sýning í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur

Skuggar/Bergmál er nafn nýrrar sýningar sem opnuð verður í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur í dag 1. júní. Serían varð til á tveggja ára tímabili þegar norski ljósmyndarinn Marianne Bjørnmyr ferðaðist um Ísland til að rannsaka, ljósmynda og safna heimildum um trú landsmanna á álfa og huldufólk. Trú á þessa vætti er að hennar mati ennþá ljóslifandi í huga Íslendinga, jafnvel nokkuð almenn. Sýningin er opin alla daga en henni lýkur 15. ágúst.
Hún stillir álfatrú upp á móti tækni og vísindahyggju svo að úr verður áhugaverð tilraun til að sanna tilvist þessara duttlungafullu vætta á fremur „naívan“ hátt. Marianne safnaði saman ljósmyndum úr safnkosti Ljósmyndasafns Reykjavíkur, vitnisburðum um álfatrú úr Þjóðháttasafni Þjóðminjasafns Íslands ásamt því að taka upp skyggnilýsingarfundi. Síðan myndaði hún á stöðum sem þekktir eru fyrir búsetu álfa og huldufólks. Þetta samansafn heimilda og ljósmynda virðist handahófskennt við fyrstu sýn en þegar nánar er að gáð myndar heimildagrunnurinn samstæða heild sem fellur áreynslulaust saman. Má segja að verk og rannsóknir Marianne séu einskonar þráður á milli hins sýnilega heims og mögulegra handan heima sem okkur flestum eru huldir.
Marianne vinnur með ljósmyndun út frá skynjun og skilningi fólks á raunveruleikanum. Rannsóknir hennar og áhugi beinist að fyrirbærum tengdum goðsögulegum. Með tilraunakenndum aðferðum beinir hún sjónum að hlutverki ljósmyndarans við miðlun hluta og aðstæðna sem ganga gegn skilningi fólks á því hvað sé raunverulegt og hvað ekki.
Marianne Bjørnmyr er norskur listamaður sem býr og starfar í Bodø í Noregi. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í ljósmyndun frá London College of Communication árið 2012. Árið 2015 hlaust Marianne sá heiður að taka þátt í vinnustofu á vegum FATHOM Four Corners film í London, sama ár var hún valin ein af tíu frambærilegustu samtímaljósmyndurum sem búsettir voru í London á þeim tíma. Einnig hefur hún gefið út bókverkin ‘Shadow/Echoes’ 2013, ‘An Authentic Relation’ 2016 og ‘Beneath the Salt’ 2017.
https://mariannebjornmyr.com