Spennandi og fjölbreyttir viðburðir á Menningarnótt

Úthlutanir úr Menningarnæturpotti Landsbankans

Alls fengu 25 verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans í gær en hægt verður að sjá afrakstur þeirra á Menningarnótt þann 19. ágúst. Veittir voru styrkir á bilinu 100-350 þúsund kr. til einstaklinga og hópa, samtals fjórar milljónir kr. Um er að ræða samstarfsverkefni Landsbankans og Höfuðborgarstofu en bankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi.

Starfshópur á vegum Höfuðborgarstofu valdi styrkþegana úr hópi 70 umsókna en þetta er í áttunda skipti sem veitt er úr Menningarnæturpottinum. Við úthlutunina var lögð áhersla á að styðja skemmtilega og frumlega viðburði. Áherslusvæðið í ár er Hlemmur og þar í kring og var tekið tillit til þess í styrkveitingunni. Svæðið hefur verið að byggjast hratt upp síðustu misseri og verður Hlemmur Mathöll t.d. opnuð þar á næstu dögum þar sem 10 veitingastaðir og kaupmenn bjóða upp á alls kyns kræsingar.

Landsbankinn mun til viðbótar við styrkina standa fyrir árvissri dagskrá í útibúi sínu í Austurstræti á Menningarnótt.
Um Menningarnótt 2017
Menningarnótt verður haldin í 22. skipti laugardaginn 19. ágúst. Þá fylla stórir og smáir viðburðir götur og torg miðborgarinnar, húsasund, garða, gallerí, verslanir, menningarstofnanir og heimahús. Í lok Menningarnætur verður að vanda glæsileg flugeldasýning í boði Reykjavíkurborgar. Hlemmur og svæðið þar í kring er áherslusvæði Menningarnætur í ár en jafnframt er vakin sérstök athygli á torginu við Veröld – húsi Vigdísar en það verður vígt á setningu Menningarnætur þann 19. ágúst kl. 12.30.
Akranes er gestabær Menningarnætur og býður fólki upp á dagskrá á veitingastaðnum Messanum í Sjóminjasafninu þar sem listamenn af Skaganum koma fram.

Menningarnótt er þátttökuhátíð sem byggir á framlagi fjölda aðila sem standa að menningarlífi í borginni og annarra sem nota þetta tækifæri til að setja svip sinn á borgarlífið. Markmið hátíðarinnar er að vekja athygli á því fjölbreytta menningarlífi sem á sér stað í borginni og hvetja borgarbúa til þátttöku.
Höfuðborgarstofa ber ábyrgð á framkvæmd hátíðarinnar og heldur utan um skipulag, viðburði og stendur að kynningu á viðburðum hátíðarinnar. Menningar–og liststofnanir, félagasamtök, fyrirtæki, listamenn og íbúar standa að viðburðum á Menningarnótt. Fjölmargir aðrir styðja einnig hátíðina með ýmsum hætti.
Upplýsingar um styrkþega Menningarnæturpottar Landsbankans eru á næstu tveimur síðum.
Nánari upplýsingar veitir: Berghildur Erla Bernharðsdóttir kynningarstjóri Höfuðborgarstofu í síma 694 5149.

 

Styrkþegar Menningarnæturpottar Landsbankans 2017
Styrkir að upphæð 350.000
• Hlemmur – Mathöll– Matur & Músík
Matur & Músík í Mathöllinni á Hlemmi þar sem boðið verður uppá tónleika og matarhátíð þar sem fram koma 3–5 tónlistarmenn á litlu sviði.
• Brynja Péturs – Street Dance Festival
Street dans Carnival er nýr viðburður á dagatali Reykjavíkur í anda vinsælla dansviðburða. Áhorfendur sjá kraftmikla danssýningu með öllum bestu street dönsurum landsins á öllum aldri.

Styrkir að upphæð 250.000

• Snorri Ástráðsson – Hip Hop hátíð Menningarnætur
Hip hop hátíð Menningarnætur á Ingólfstorgi eru einu tónleikarnir sem einblína einungis á Hip hop og það ferskasta í þeirri senu á hér á landi.

Styrkir að upphæð 200.000

• Félag Litháa á Íslandi – Þjóðbúningur, þjóðdans og söngur Litháa
Félag Litháa á Íslandi kynnir þjóðbúning, þjóðdans og alls konar söngvar á litháísku fyrir Íslendinga og aðra gesti.
• Sigurþór Hallbjörnsson – Reykjavík Custom Bike Show
Hressandi Rokk og ról tónleikar og mótorhjólasýning í Naustinni.
• Hanna Jónsdóttir og Ninna Þórarinsdóttir – Léttur í lunda
Viðburðurinn snýst um að létta lundina og finna í okkur lundann. Þreifa betur á þessum umdeilda fugli, sem verður fleygur 49 daga gamall og er búinn að koma sér svo vel fyrir í Reykjavík. Sett verður upp vinnustofa fyrir alla fjölskylduna þar sem ætlunin er að til verði lundafætur, vængir, goggar og stél, jafnvel heilu lundarnir sem að svífa svo um bæinn léttir í lundu.
• Hits&Tits –Tjúttað við taflið – Útikarókí
Tvíeykið Hits&Tits er skipað þeim Margréti Erlu Maack og Ragnheiði Maísól Sturludóttur sem bjóða upp á útikarókí við útitaflið við Bernhöftstorfuna.

Styrkir að upphæð 150.000

• Pera óperukollektíf – Súkkulaðióperan Bon Appétit!
Pera óperukollektíf er hópur klassískt menntaðra söngvara og listafólks sem vinnur m.a. við óperu– og tónlistarleikhús. Hópurinn, í forsvari Guju Sandholt listræns stjórnanda, flytja stutt stykki sem kitla bragðlauka gesta og gangandi.
• Improv Ísland – Spunamaraþon Improv Ísland
Improv Ísland sem samanstendur af rúmlega 30 spunaleikurum sem munu spinna í 5 klukkutíma í Þjóðleikhúskjallaranum. Hópurinn sýnir fjölbreytt form af spuna eins og söngleikjaspuna m.a með heilli hljómsveit.

Styrkir að upphæð 100.000 kr.

• Listvinafélag Hallgrímskirkju – Sálmafoss
Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir 6 klukkutíma klukkustunda langri dagskrá þar sem flutt verður fjölbreytt kirkjutónlist. Í upphafi dagskrárinnar verða frumfluttir sex nýir sálmar sem Tónmenntasjóður kirkjunnar hefur pantað hjá jafn mörgum skáldum og tónskáldum.
• Viktoría Sigurðardóttir– Íslenskir söngleikir
Viktoría Sigurðardóttir leikkona og Halldór Bjarki Arnarsson píanóleikari flytja lög úr íslenskum söngleikjum á borð við Leg, Gretti og Gauragangi á tónleikum sem fara fram í bakgarði í Þingholtunum.
• Svanlaug Jóhannsdóttir–Í hennar sporum
Söngkonan Svanlaug Jóhannsdóttir hefur leitað uppi skópör sem eiga sér skemmtilega sögu. Saga kvennanna og skónna, rómantíkin, gleðin og átökin er flutt með sögum og söngvum. Sýningin tekur um 40 mínútur í flutningi og í henni koma fram ásamt Svanlaugu, píanóleikari og víóluleikari.

• Port3 – Hvaðan ertu?
Gallerý Port býður til veislu á Menningarnótt. Um er að ræða samsýningu ungra og upprennandi íslenskra myndlistarmanna og jafnframt er boðið uppá tónleika og vinnusmiðju fyrir krakka yfir daginn.
• Haraldur Ægir Guðmundsson – Chet Baker and Me
Jazz Quartett leikur lög sem trompetleikarinn og söngvarinn Chet Baker gerði ódauðleg með þýðri rödd sinni upp úr miðri síðustu öld, ásamt úrvali eigin laga sem tengja nútímann við þá öld sem leið.
• Leikhópurinn Lotta skemmtir á Menningarnótt í Hallargarðinum.
• Álfheiður Erla Guðmundsdóttir – Kvöldtónar í Dómkirkjunni
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir sópransöngkona stendur fyrir kvöldtónum í Dómkirkjunni. Hún fær til sín góða gesti sem koma fram á tónleikunum með henni sem gerir dagskrána fjölbreyttari og líflegri þannig að gestir fái notið.
• Unnur Sara Eldjárn – Söngvaskáldið Serge Gainsbourg
Franska söngvaskáldið, Serge Gainsbourg er mörgum kunnugur en hann samdi tónlist í ýmsum stefnum eins og mambo, jazz, og reggí og vakti mikla athygli fyrir húmor og orðaleiki í sínum söngtextum.
• Árni Grétar Jóhannesson – Íslensk raftónlist
Íslensk raftónlist í boði Möller plötuútgáfunnar með ýmsum listamönnum. Tónleikar frá hádegi til kvölds.
• Ingi Vífill Guðmundsson – Menningarnótt í Hannesarholti
Menningarnótt verður fagnað með veglegum hætti í Hannesarholti í fallegu umhverfi þar sem áhersla verður lögð á að gefa listafólki tækifæri til að sýna list sína.
• Huldufugl – Kassinn
Kassinn er kómísk, súrrealísk og gagnvirk sýndarveruleika leikhúsupplifun sem fjallar um að festast inni í ósýnilegum kassa. Einn áhorfandi í einu fær að njóta upplifunarinnar sem verður á Hlemmi.
• Kaffislippur Reykjavík Marina
Það verður dillandi stemming á Kaffislipp að degi Menningarnætur. Þar mun tvíeyki úr Listaháskólanum syngja frumsamda og lánaða texta frá þekktum tónlistarmönnum til að hita upp gesti Menningarnætur.
• Hitt Húsið –Vagg og Velta– Stage Europe Network tónleikar
Tvær erlendar hljómsveitir koma fram á Menningarnótt. Hljómsveitirnar eru afar frambærilegar og eru að hefja feril sinn en hafa þó allar fengið ákveðið brautargengi og unnið tónlistarkeppnir sambærilegum Músíktilraununum í sínum heimalöndum.
• Barakan afrískur dans og trommuhópur
Hópurinn var stofnaður af Mamady Sano og Söndru Sano Erlingsdóttur sem sérhæfa sig í dansi og trommuleik frá Gíneu í V–Afríku.
• Hómy Reykjavík – hópur starfandi myndskreyta
Hómy Reykjavík er óformlegur sýningarhópur teiknara og myndskreyta á Íslandi. Sýningarþemað á Menningarnótt er Betri Reykjavík – hugmyndir teiknara sem aldrei verða að veruleika.
• Ísabella Leifsdóttir – Hlemmsöngur
Ísabella Leifsdóttir söngkona flytur tónlist syngur ásamt meðleikara á Hlemmi. Sungin verða ýmis þekkt og óþekkt lög og væri gaman ef áhorfendur tækju undir.

 

Nánari upplýsingar á www.menningarnott.is