Steypireyður á Skjálfanda – vorboði Húsvíkinga

 

Steypireyður á Skjálfanda – vorboði Húsvíkinga
Áhöfn og farþegar á hvalaskoðunarbátnum Náttfara sem gerður er út af Norðursiglingu á Húsavík komu auga á steypireið rétt fyrir kl. 11 í morgun. Már Eyfjörð Höskuldsson, skipstjóri á Náttfara taldi skepnuna vera í æti.

North_Sailing_fleet
Skjálfandi er einn af fáum stöðum á Íslandi þar sem þessi stærstu dýr jarðar koma reglulega við á leið sinni í fæðuöflun á norðurslóðum yfir sumartímann.
Þrátt fyrir að steypireyður sé ekki algeng sjón þá hafa nokkur dýr vanið komur sýnar á Skjálfanda snemma á vorin undanfarin ár. Segja má því að steypireyðurin sé nokkurs konar lóa Húsvíkinga, þó töluverður munur sé á stærð og þyngd, enda getur fullvaxin steypireyður verið um 30 m á lengd og hátt í 200 tonn.

Hvalaskoðun hófst þann 15. mars sl. hjá Norðursiglingu og hefur tímabilið farið vel af stað.

Nánari upplýsingar veitir Már Eyfjörð Höskuldsson skipstjóri í síma 864-0795.
Myndir og aðrar upplýsingar um Norðursiglingu veitir Gústaf Gústafsson markaðsstjóri í síma 854-9494 eða á netfangið [email protected].