Sýningaropnun – Bókstaflega

Sýningaropnun – Bókstaflega
Laugardag 25. mars kl. 15

Laugardaginn 25. mars kl. 15 opnar Hafnarborg sýninguna Bókstaflega – Konkretljóð á Íslandi frá 1957 til samtímans í aðalsal safnsins.  

 

Jón Laxdal
Jón Laxdal

Hugmyndin um notkun bókstafa á myndrænan hátt hefur þróast á löngum tíma og á sér rætur að rekja allt aftur til myndleturs Forn-Egypta. Konkretljóð skutu fyrst upp kollinum á Íslandi um miðjan sjötta áratuginn. Í hugmyndalistinni, sem hóf innreið sína með nýrri kynslóð listamanna í upphafi áttunda áratugarins, öðlaðist tungumálið aukið vægi og byggðu verkin oft á textum, ljósmyndum og vídeói, auk gjörninga og innsetninga. Segja má að með tilkomu SÚM-kynslóðarinnar hafi konkretljóðaforminu fyrst verið beitt fyrir alvöru hérlendis.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan fyrstu konkretljóðin tóku að birtast og eins og sýningin gefur til kynna hefur sá straumur í ljóðagerð runnið í ótal farvegi og það er áhugavert að skoða hvernig listamenn og rithöfundar samtímans hafa kannað þanþol konkretljóðaformsins í gegnum breytta tækni og nýja sýn á framtíðina.
Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Birgir Andrésson, Einar Bragi Sigurðsson, Emmett Williams, Dieter Roth, Guðbergur Bergsson, Guðjón Ketilsson, Halldór Ragnarsson, Haraldur Jónsson, Jón Laxdal, Kristinn E Hrafnsson, Kristján Guðmundsson, Magnús Pálsson, Margrét Bjarnadóttir, Ragnhildur Jóhanns, Sigríður Björnsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Steingrímur Eyfjörð ásamt völdum skáldum sem hafa fengist við konkretljóðagerð.
Sýningarstjóri er Vigdís Rún Jónsdóttir.
Á opnun sýningarinnar munu Haraldur Jónsson og Ásta Fanney Sigurðardóttir flytja ljóðagjörning.
Sýning úr stofngjöf Hafnarborgar opnar á sama tíma í Sverrissal safnsins.

Nánari upplýsingar veitir: Áslaug Friðjónsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarborgar, s. 585 5790 og
Vigdís Rún Jónsdóttir, sýningarstjóri, s. 694 1761.