Þjóðfánar

Árið 1914 kallaði fánanefnd eftir tillögum frá almenningi að íslenskum þjóðfána. Ein tillaganna er núverandi þjóðfáni Íslands.

Tillaga Kjarvals að nýjum fána.

Alls bárust 28 hugmyndir, flestar í rituðu máli. Grafíski hönnuðurinn Hörður Lárusson byggði nýverið á lýsingunum, rannsakaði frekar og bætti upp með eigin hugmyndaflugi og umbreytti tillögum í myndrænt form. Afraksturinn var gefinn út á bók, sem nefnist einfaldlega Fáninn.
Á sýningunni mun gefa að líta úrval tillaganna, þeirra á meðal óhefðbundinn fána teiknaðann af Jóhannesi Kjarval. Einnig verður frumsýndur fáni, teiknaður og saumaður eftir lýsingum sjálfs Danakonungs, Kristjáns X, sem nýverið fundust í dagbókarfærslum konungs.
Þjóðfáni er án efa eitt sterkasta táknræna form sjálfsvitundar þjóðar, og þessi sýning mun veita innsýn í, hvernig einstaklingar, allt frá almennum borgurum til konungs, gerðu tilraunir til að hanna sérkenni íslensku þjóðarinnar

Sýningin „Fáni fyrir nýja þjóð“ er á dagskrá dönsku hönnunarhátíðarinnar 3daysofdesign.
Sýningin er unnin í samvinnu við Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Hönnunarmiðstöð Íslands í tilefni af aldarafmæli fullveldisins
Sýningin verður opin til 5. september 2018.