ARCTIC CIRCLE Í WASHINGTON

ARCTIC CIRCLE Í WASHINGTON
BANDARÍKIN OG RÚSSLAND

600 ÞÁTTTAKENDUR

      Í morgun, miðvikudaginn 21. júní, hófst í Ronald Reagan byggingunni í Washington, ráðstefna Arctic Circle – Hringborðs Norðurslóða og Wilson stofnunarinnar um stöðu Bandaríkjanna og Rússlands á Norðurslóðum.

      Ráðstefnuna sækja rúmlega 600 þátttakendur: þingmenn frá Bandaríkjunum og Rússlandi, embættismenn, sérfræðingar, vísindamenn, forystumenn í atvinnulífinu, umhverfissinnar og annað áhugafólk um framtíð Norðurslóða og hlutverk Bandaríkjanna og Rússlands á þeim vettvangi.

      Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Arctic Circle, setti ráðstefnuna í hátíðarsal Ronald Reagan byggingarinnar og síðan fluttu ræður Jane Harman, forseti Wilson stofnunarinnar og Lisa Murkowski öldungadeildarþingmaður og formaður orkunefndar Öldungadeildar Bandaríkjaþings.

      Síðar í dag verður fjallað um vísindasamvinnu, fjárfestingar á Norðurslóðum, siglingar, viðskipti og ferðaþjónustu, reynsluna af samskiptum Bandaríkjanna og Rússlands á Norðurslóðum, strandgæslu, öryggismál og mikilvægi Barentssundsins.

      Meðal ræðumanna verða rússneski öldungadeildarþingmaðurinn Igor Chernyshenko, Paul Zukunft flotaforingi, yfirmaður bandarísku strandgæslunnar, bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Dan Sullivan, David Bolton sendiherra Bandaríkjanna í málefnum Norðurslóða, rússneski þingmaðurinn Georgy Karlov og Mark Brzezinski sem stjórnaði málefnum Norðurslóða í Hvíta húsinu í forsetatíð Barack Obama. Þá munu Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips og Ásgrímur L. Ásgrímsson frá Landhelgisgæslu Íslands einnig tala á ráðstefnunni.

      Á morgun verða málstofur um efnahagslega samvinnu á Norðurslóðum og öryggismál. Þær verða haldnar í höfuðstöðvum Wilson stofnunarinnar en hún er meðal helstu þjóðmálastofnana í Washington, stofnsett í minningu Woodrow Wilson forseta Bandaríkjanna.

      Ráðstefnan í Washington er hin fimmta af sérhæfðum ráðstefnum sem Hringborð Norðurslóða – Arctic Circle heldur í öðrum löndum. Hinar fyrri voru í Alaska, í Singapúr, á Grænlandi og í Kanada. Hin árlegu þing Arctic Circle eru hins vegar haldin í október á Íslandi og sækja þau um 2000 þátttakendur frá um 50 löndum. Þingið 2017 verður haldið 13. -15. október í Hörpu.

      Fylgjast má með ráðstefnunni í Washington á vefslóðinni: https://www.wilsoncenter.org/event/day-1-the-wilson-center-arctic-circle-forum

      Myndir sem fylgja fréttatilkynningunni sýna Ronald Reagan bygginguna í Washington.

Takeshi Kaji
Communications Officer
The Arctic Circle Secretariat
m | +354 845 2893
www.arcticcircle.org