Handhafi barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2018: Bárður Oskarsson.  Ljósmyndari Johannes Jansson

Bárður Oskarsson hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2018

Myndabókin Træið eftir Bárð Oskarsson hlýtur barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2018. Verðlaunin veitti sænski rithöfundurinn og myndskreytirinn Gunilla Bergström á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Óperunni í Ósló.

Bárður Oskarsson hlýtur verðlaunin fyrir frásögn sem þorir að fara sér hægt í veruleika sem einkennist af stöðugu áreiti. Útgefandi Oskarssons, Niels Jákup Thomsen, tók við verðlaununum í Ósló fyrir hans hönd.

Rökstuðningur dómnefndar

Á tímum sem markast af kröfu um síaukinn hraða í samfélaginu höfum við valið að verðlauna frásögn sem þorir að fara sér hægt. Veruleiki fólks í dag einkennist af stöðugu áreiti. Við höfum valið verk þar sem skemmtilegri og djúpviturri frásögn er komið til skila með fáum orðum og einföldum myndum. Bókin er sannkallað listaverk og greinilegt að höfundurinn treystir lesendum til að kunna að undrast og hugsa sjálfstætt. Spjall tveggja vina skilur eftir sig vangaveltur um hvort maður geti látið sér nægja frásagnir af reynslu annarra, eða verði kannski að leggja eitthvað í sölurnar til að svala forvitninni og komast að því hvað leynist bak við ystu sjónarrönd. Í myndabókinni Træið beitir Bárður Oskarsson ýmsum smáatriðum og blæbrigðum til að skapa óvenju ánægjulega lestrarupplifun fyrir bæði börn og fullorðna. Hann hlýtur því verðlaunin í ár.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir árlega fimm verðlaun: Barna- og unglingabókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, bókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun og umhverfisverðlaun. Hver verðlaun nema 350 þúsundum danskra króna og eru þau veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.