Brynjólfur Sveinsson biskup . Eftir Torfhildur Hólm

Brynjólfur Sveinsson biskup . Eftir Torfhildur Hólm

Brynjólfur Sveinsson biskup. Skáldsaga frá 17. öld. Höfundur Torfhildur Þorsteinsdóttir Holm.
Önnur útgáfa. Kom fyrst út 1882.
Brynjólfur Sveinsson biskup . Eftir Torfhildur Hólm
Útgefandi: Arinbjörn Sveinbjarnarson, 1912 (Prentsmiðjan Gutenberg).302 s

Torfhildur Hólm
Torfhildur Hólm (2. febrúar 1845 – 14. nóvember 1918) var íslenskur rithöfundur. Hún var fyrsti íslenski rithöfundurinn sem skrifaði sögulegar skáldsögur og hún var einnig fyrsta íslenska konan sem skrifaði skáldsögur.

Ungdómsár og Vesturheimur

Torfhildur fæddist á Kálfafellsstað í Skaftafellsýslu 2. febrúar 1845. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Einarson prestur og Guðríður Torfadóttir. Torfhildur lagði stund á ensku og hannyrðanám í Reykjavík. Hún giftist Jakobi Hólm verslunarstjóra á Hólanesi nyrðra en varð ung ekkja því maður hennar lést eftir eins árs hjónaband. Torfhildur flutti til Vesturheims árið 1876 og fyrsta skáldsaga hennar Tárablómið birtist árið 1879 í vestur-íslenska blaðinu Framfara.

Fyrstu listamannslaunin
Torfhildur kom aftur til Íslands árið 1889. Alþingi ákvað að veita henni skáldalaun 500 krónur á ári. Torfhildur var fyrsti Íslendingurinn til að fá listamannalaun. Torfhildur gaf út bókmenntatímaritið Draupnir á árunum 1891 til 1908 og tímaritið Dvöl á árunum 1901 til 1917. Verk Torhildar voru vinsæl meðal almennings en síður meðal gagnrýnenda. Sjá má áhrif frá Torfhildi í verkum Halldórs Laxness Íslandsklukkunni og fyrsta skáldsaga Halldórs var að hans eigin sögn verkið Afturelding sem dregur nafn sitt frá skáldsögu Torfhildar Eldingu. Ein sögupersóna Halldórs ber nafnið Garðar Hólm.
Torfhildur í augum bókmenntafræðinga

Soffía Auður Birgisdóttir taldi hana vera „brautryðjanda á sínu sviði“ og að hún „hikaði ekki við það að fara inn á „svið karlmanna““.Einnig taldi hún verk hennar vera aðalega siðferðislegs eðlis, og Hulda virðist hafa frekar reynt að bæta siðferði og trúarlíf Íslendinga en að koma fram róttækum hugmyndum kvenfrelsis.

Ritverk
* Brynjólfur Sveinsson biskup (Kom fyrst úr árið 1882)
* Elding (söguleg skáldsaga sem gerist á Landnámsöld 870-1030)
* Jón biskup Vídalín
* Jón biskup Arason

* Tárablómið (smásaga)
* Týndu hringarnir (smásaga)
* Tíbrá (barnasaga