Fullveldisleiðsagnir í Þjóðminjasafni Íslands

Fullveldisleiðsagnir í Þjóðminjasafni Íslands árið 2018

Á 100 ára fullveldisafmæli Íslands stendur Þjóðminjasafn Íslands fyrir sérstakri dagskrá á sýningum safnsins á Suðurgötu. Valinkunnir einstaklingar, sem þekktir eru fyrir störf sín í þágu samfélagsins, veita leiðsögn og ræða við safngesti um hugðarefni sín.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ríður á vaðið og gengur með gestum um Þjóðminjasafnið með leiðsögn undir yfirskriftinni Galdrar, glæpir og glæfrakvendi.