Fyrsta skóflustungan að grænni framtíð

Fyrsta skóflustungan að grænni framtíð
Fyrsta skóflustungan að nýrri gas- og jarðgerðarstöð SORPU var tekin í dag í Álfsnesi. Verkefnið markar tímamót og er bygging gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi stærsta verkefni SORPU frá því fyrirtækið hóf starfsemi árið 1991. Með tilkomu stöðvarinnar verður gjörbylting í meðhöndlun heimilisúrgangs á höfuðborgarsvæðinu og urðun lífræns úrgangs verður liðin tíð.


Yfir 95% endurnýting heimilisúrgangs
Áætlað er að stöðin verði komin í fullan rekstur fyrri hluta árs 2020 og mun hún anna allt að 35.000 tonnum af lífrænum heimilisúrgangi. Markmiðið með gas- og jarðgerðarstöðinni er að nýta sem best allan lífrænan úrgang sem til fellur á heimilum á höfuðborgarsvæðinu, s.s. matarleifar, gæludýraúrgang o.fl. Ekki aðeins nýtast næringarefnin sem felast í lífrænum heimilisúrgangi, heldur einnig orkan sem verður til við niðurbrot úrgangsins. Ársframleiðsla stöðvarinnar verður annars vegar um 3 milljónir Nm3 af metangasi, sem hægt er að nýta sem eldsneyti á ökutæki, og hins vegar 10-12.000 tonn af jarðvegsbæti, sem hentar vel til landgræðslu.
Gas- og jarðgerðarstöð er loftslagsmál
Gas- og jarðgerðarstöðin er mikilvægt skref í að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda vegna meðhöndlunar úrgangs. Nýting metans í stað jarðefnaeldsneytis á ökutæki hefur í för með sér verulegan ávinning fyrir umhverfið. Metan sem nú er unnið á urðunarstað SORPU er eina umhverfisvottaða eldsneytið á Íslandi, en það ber norræna umhverfismerkið Svaninn. Ætlað er að metanframleiðsla SORPU muni tvöfaldast með tilkomu gas- og jarðgerðarstöðvar og getur metanið þá komið í staðinn fyrir um fimm milljónir bensínlítra árlega. Þá verða þúsundir tonna af jarðvegsbæti úr lífrænum heimilisúrgangi öflugur liðsauki í landgræðslu og skógrækt og þar með bindingu kolefnis í gróðri.

Á myndinni má sjá Líf Magneudóttur, Jónu Sæmundsdóttur, Helgu Ingólfsdóttur, Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfisráðherra, Harald Sverrisson, Bjarna Torfa Álfþórsson og Ármann Kr. Ólafsson taka fyrstu skóflustunguna.

Breytt vinnsla heimilisúrgangs mun hafa margvísleg jákvæð áhrif á bæði umhverfi og samfélag. Fyrsta skóflustungan að gas- og jarðgerðarstöð er stórt skref í átt að grænni og sjálfbærari framtíð.

16. ágúst. 2018 www.sorpa.is