Gistiheimilið Húsið í Fljótshlíð

Gistiheimilið Húsið á söguslóðum Njálu

Gistiheimilið Húsið á söguslóðum Njálu

Ef beygt er til vinstri frá Hvolsvelli og ekið í 9 km er komið að gistiheimilinu Húsið, sem að mestu er óbreytt frá því að það var byggt árið1929, af stórhug sem skólahús. Frá árinu 2012 hefur búið þar lítil tékknesk- íslensk fjölskylda hjónin Guðni og Jane með ungum syni.

Guðni og Jane
Guðni og Jane við Húsið gistheimili í Fljótshlíð

Tilefni heimsóknar okkar var að hjónin vildu kynna staðinn og buðu okkur starfsmönnum Lands og sögu í heimsókn. Við komum skömmu fyrir hádegi í fallegu veðri laugardaginn 21. apríl. Eins og títt er til sveita tók glaðlegur íslenskur heimilishundur á móti okkur og í kjölfarið kom enn glaðlegri húsmóðir sem bauð okkur velkomna, til að skoða húsakynnin. Húsið er snyrtilegt og fínt timburhús með sál að sögn íbúa og ég get ekki neitað því að manni finnst maður vera kominn aftur í tímann, þar sem innréttingar, stigi og allt gólfefni er jafn gamalt Húsinu. Ég veitti því athygli að flestir innanstokksmunir sem þurft hefur að endurnýa eru smíðaðir heima, mér var sagt að það hefði kokkurinn gert og hlakkaði ég til að sjá hann í hádeginu. Eina breytingin frá er viðbygging frá árinu 1995, glerskáli, sem nýttur er sem matsalur, sem kemur að góðum notum ef það er gestkvæmt.

Gengið út á hlað.

Við göngum út á hlað með Guðna og ég bið hann að segja mér frá gestunum, afþreyingu t.a.m. gönguleiðum á svæðinu. Við fáum oft nemendahópa, ættarmót og aðra slíka sem eru sjálfum sér nógir. Oftast kaupa þau gistingu
með morgunmat en auk þess er hægt að panta kvöldmat fyrir hópa eða einstaka gesti. Við rekum einungis gistiheimili erum ekki ferðaþjónustufyrirtæki og höldum verðinu þannig niðri. Við leiðbeinum auðvitað ferðamönnum með ánægju, ókeypis eftir bestu getu, án fylgdar en bendum á slíka þjónustu sé þess óskað. Við vildum gjarnan fá fleiri ferðamenn í náttúruskoðun en áður en farið er út í þá sálma kallar húsmóðirin okkur í mat.

Kokkurinn, er ekki karlmaður heldur hin huggulega Zuzana, sem ásamt bróður sínum og hjónunum gengur til allra verka. Fram eru bornir ljúffengir steiktir lambaframleggir. Og í eftirrétt rabbarbarakaka með rjóma. Yndislegt. Eftir matinn trúði Zuzana mér fyrir því að hún hefði tekið ástfóstri við íslensk fjöll. „Ef Herðubreið er drottning íslenskra fjalla þá er Þríhyrningur kóngurinn.“ Þessu til sönnunar sýndi hún myndaseríu af þessu fjalli, sem hún vissi þó ekki að gegnir lykilhlutverki í Njálssögu. En einhvern veginn skildi hún mikilvægi þess. „Glöggt er gests
augað“

Áttun og umhverfi

Að loknum góðum málsverði gengum við aftur út á hlað til að skoða og áttaokkur á umhverfinu. Í norðri er skammt frá Húsinu er Tunguskógur sem Skógrægt ríkisins á heiður af. Átta km norðar gnæfir hinn glæsilegi
Þríhyrningur. Í tíu km austur af Húsinu er Gluggafoss í sama radíus en sunnar er Stóra- Dímon. Enn sunnar er er Seljalandsfoss og Seljalandslaug. Í hásuðri niður við ströndina er svo Landeyjarhöfn. Í örstuttu göngufæri frá Húsinu er mjög gömul rafstöð, sem hægt er að setja í gang og er það á döfinni, vegna áhuga gesta. Sömu sögu má segja um Drumbabót 100 hektara svæði með 1200 ára gömlum skógarleyfum (sjá mynd). Á svæðinu er átján holu völlur, silungsveiði og hestaleiga, söfn og sund á Hvolsvelli en fyrir þá sem vilja fara lengra eru ýmsir möguleikar s.s. Fjallabaksleið nyrðri og syðri. Sumir fara Fimmvörðuháls og yfir til Þórsmerkur og taka þá rútu frá Hvolsvelli en einnig er hægt að leigja jeppa eða hross. Fyrir þá sem vilja komast í réttir bendi ég á að hér verður réttað í september. Við eru með sanngjörn verð en veitum að sjálfsögðu afslætti fyrir hópa.

Skömmu áður en við lögðum af stað heim á leið kom Zuzana með myndabók af Þríhyrningi ólíkum litbrigðum árstíðanna, sem hún hafði gert og færði okkur að skilnaðargjöf.

Við kveðjum þetta góða fólk með þakklæti og sól í sinni.