Grímsey

Grímsey er græn, grösug og einstaklega gjöful eyja: Útvörðurinn í norðri með auðug fiskimið og litríkt fuglalíf. Frægust er Grímsey trúlega í hugum ferðamanna fyrir heimskautsbauginn og kemur fólk gjarnan langa leið, til þess eins að stíga norður fyrir baug. Saga segir að eitt sinn hafi heimskautsbaugurinn, sem er á örlítilli hreyfingu, legið um mitt hjónarúm oddvitans á Básum.

Eyjan er 5,3 km2 að stærð. Hæst er hún 105 metrar og fjarlægð frá Íslandi er 41 km. Mannlífið er kröftugt og bjart. Grímseyingar eru miklir gleðimenn sem vinna og skemmta sér af alhug. Höfuðatvinnuvegurinn eru fiskveiðar og fiskverkun. Einn besti íslenski saltfiskurinn er einmitt unninn þar. Myndarlegt félagsheimili Múli, er fjölnotahús. Þar eru 8 bekkir grunnskólans, samkomusalur íbúa, ágætt bókasafn, Eyjarbókasafnið og heilsugæsla. Þrír læknar á Akureyri skiptast á og koma hingað einu sinni í mánuði að sinna heilsufari íbúa. Kirkjan, Miðgarðakirkja var reist úr rekavið árið 1867. Hún er nýendurgerð í upprunalegum litum, fallegt guðshús. Það er Dalvíkurpresturinn sem þjónar þar nú.

 

Góð sundlaug var vígð árið 1989. Eyjabúar versla í versluninni Búðinni, sem er einkarekin, þar er gott vöruúrval.

Í Grímsey er margt að sjá og boðið er upp á leiðsögn með ferðafólk þar sem m.a. er farið með fólkið yfir bauginn, í kirkjuna, að vitanum, í fiskverkun og í lok hennar er kaffiboð á Básum gistiheimilinu sem er staðsett á flugvellinum. Verð kr. 2.000,- pr.mann.

Allir fá viðurkenningarskjal frá flugfélaginu fyrir að fara yfir heimskautsbaug.

Tvö gistiheimili eru í eynni, annað opið allan ársins hring.

Básar, með fullu fæði ef óskað er. Sími: 4673103

Gullsól, lykilgistiheimili þar sem þú verður að hafa fyrir þér sjálfur! Sími: 4673190.

Á veitingastaðnum Krían er hægt að snæða ljúffenga réttir. Opið yfir sumarið en á veturna einungis opið eftir pöntunum. Sími:4673112/4673116.

Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason