Sumarið 1959, sumarbúðir þjóðkirkjunnar að Löngumýri í Skagafirði. Drengir í fótbolta skalla boltann. Drengurinn í KR búningnum er Ólafur Örn Haraldsson, síðar þingmaður Framsóknarflokksins. Drengurinn til hægri við Ólaf er Hörður. Til vinstri við Ólaf, í dökkri peysu er Gunnar (sennilega Gunnarsson) og vinstra megin við hann í ljósri skyrtu er Eysteinn. *** Local Caption *** Langamýri í Skagafirði, æskulýðsstarf, sumardvalarstaður fyrir börn.

Gunnar Rúnar Ólafsson Yfirlitssýning

Gunnar Rúnar Ólafsson Yfirlitssýning 26.9. 2015 -10. 1.2016 Næstkomandi laugardag 26. september kl. 15:00 opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur yfirlitssýning á verkum Gunnars Rúnars Ólafssonar (1917-1965) ljósmyndara og kvikmyndagerðarmanns. Á sýningunni verða sýndar nýjar handstækkaðar ljósmyndir gerðar eftir filmum Gunnars, teknar á árabilinu 1947-1964. Auk þess sýnir Kvikmyndasafn Íslands valin myndbrot úr kvikmyndum Gunnars. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Sýningin stendur til 10. janúar 2016. Tengiliður: Gísli Helgason, 411 6389 / [email protected] Ljósmyndasafn Reykjavíkur Grófarhús, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík www.ljosmyndasafnreykjavikur.is / www.borgarsogusafn.is

Ágúst 1957, Uhro Kekkonen Finnlandsforseti kemur í opinbera heimsókn til Íslands ásamt konu sinni Sylvi Kekkonen. Finnlandsforseti stígur úr flugvél Finnair. *** Local Caption *** Finnland
Ágúst 1957, Uhro Kekkonen Finnlandsforseti kemur í opinbera heimsókn til Íslands ásamt konu sinni Sylvi Kekkonen. Finnlandsforseti stígur úr flugvél Finnair. *** Local Caption *** Finnland

Gunnar Rúnar Ólafsson fæddist í Hafnarfirði 23. maí 1917. Hann lærði ljósmyndun í New York Institute of Photography sumarið 1945. Þaðan fór hann til Los Angeles og kynnti sér kvikmyndagerð hjá einu stærsta kvikmyndaveri Bandaríkjanna, Metro Goldwyn Mayer í Hollywood. Þar var hann viðstaddur upptökur fjölmargra kvikmynda og starfaði m.a. við hlið margra af þekktustu leikurum samtímans en þar er helst að nefna Judy Garland, Katharine Hepburn, Lana Turner og John Garfield. Þeim síðastnefndu kynntist Gunnar lítillega við upptökur á kvikmyndinni The Postman Always Rings Twice.

Sumarið 1959, sumarbúðir þjóðkirkjunnar að Löngumýri í Skagafirði. Drengir í fótbolta skalla boltann. Drengurinn í KR búningnum er Ólafur Örn Haraldsson, síðar þingmaður Framsóknarflokksins. Drengurinn til hægri við Ólaf er Hörður. Til vinstri við Ólaf, í dökkri peysu er Gunnar (sennilega Gunnarsson) og vinstra megin við hann í ljósri skyrtu er Eysteinn. *** Local Caption *** Langamýri í Skagafirði, æskulýðsstarf, sumardvalarstaður fyrir börn.
Sumarið 1959, sumarbúðir þjóðkirkjunnar að Löngumýri í Skagafirði. Drengir í fótbolta skalla boltann. Drengurinn í KR búningnum er Ólafur Örn Haraldsson, síðar þingmaður Framsóknarflokksins. Drengurinn til hægri við Ólaf er Hörður. Til vinstri við Ólaf, í dökkri peysu er Gunnar (sennilega Gunnarsson) og vinstra megin við hann í ljósri skyrtu er Eysteinn. *** Local Caption *** Langamýri í Skagafirði, æskulýðsstarf, sumardvalarstaður fyrir börn.

Eftir heimkomuna 1946 og fram til 1957 starfaði Gunnar einkum sem kvikmyndagerðarmaður en tók að auki ljósmyndir fyrir Morgunblaðið 1953–1957. Frá 1958 starfaði Gunnar sem iðnaðar- og auglýsingaljósmyndari og tók

GunnarAR-150929089

myndir fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Hann myndaði m.a.  fyrir Rafha hf, Hafnarfjarðarbæ og Akureyri auk þess nýttu Sjálfstæðisflokkurinn og búnaðarfélög víða um land sér þjónustu hans. Þá myndaði Gunnar reglulega fyrir Reykjavíkurborg. Á þeim tíma hafði Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í borgarstjórn og áhrifafólk innan borgarinnar þekkti vel til natni Gunnars og listfengis. Í þeim verkefnum fékk markaðs- og auglýsinganef ljósmyndarans að njóta sín því Reykjavík, séð í gegnum myndavél Gunnars, er einkar viðkunnanleg borg, nútímaleg, vel skipulögð og björt. Snyrtilegir almenningsgarðar mynda fagurlega umgjörð utan um heilbrigt mannlíf og kraftmikil uppbygging á sér stað. Þarna má líka finna stórskemmtilegar myndir af börnum og unglingum bæði í leik og starfi. Í filmusafninu eru um 27 þúsund myndir á filmum. Fyrstu árin notaðist Gunnar aðallega við 35 mm og 6×9 cm filmur en 1956 eignaðist hann góða Rolleiflex-myndavél sem fljótlega varð hans aðalsmerki. Við þessi umskipti varð nokkurs konar eðlisbreyting á myndheimi Gunnars og hið ferkantaða 6×6 filmusnið tók nær alveg yfir. Myndmálið varð meitlaðra en áður, rammarnir betur formaðir og hið listræna auga Gunnars kom enn betur í ljós. Kvikmyndaefnið, 36 útgefnar og óútgefnar myndir af ýmsum stærðum og gerðum, er varðveitt á Kvikmyndasafni Íslands. Gunnar Rúnar lést 29. janúar 1965, tæplega 48 ára gamall.

Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Ljósmyndasafn Reykjavíkur Tryggvagötu 15, 6. hæð Aðgangur ókeypis Sýningar opnar mánudaga til fimmtudaga 12:00 – 19:00 Föstudaga 12:00 – 18:00 Um helgar 13:00 -17:00 Ljósmyndasafnið heyrir undir Borgarsögusafnisem rekið er af Reykjavíkurborg. Reykjavík Museum of Photography Tryggvagötu 15, top floor Free entrance Opening times: Monday – Thursday12:00 – 19:00 Friday 12:00 – 18:00 Weekend 13:00 -17:00 Reykjavík Museum of Photography is a part of Reykjavík City Museum which is run by Reykjavík City.