Á söguslóðum í Dalasýslu

Á söguslóðum í Dalasýslu

Undir dalanna sól

Að fara út af hringveginum opnar mönnum nýja og stórkostlega sýn á landið. Ef ekið er upp Bröttubrekku og haldið inn í Dalabyggð lýkst upp sérstætt og fallegt landslag á söguslóðum Íslendingasagna. Sléttan neðan Bröttubrekku er einnig sögustaður margra atburða á Sturlungaöld. Dalirnir hafa allt að bjóða og þjónusta við ferðafólk er þar afbragðsgóð.

EiriksstadirMeðan ekið er að Eiríksstöðum inn hinn fallega dal Haukadal má sjá veiðimenn kíkja eftir laxi á bökkum Haukadalsár. Bær Eiríks rauða hefur verið endurbyggður og á þessu skemmtilega safni lifnar sagan við. Fyrirmyndin af húsinu, eða grunnflötur hússins, eru tóttir sem grafnar voru upp og aldursgreindar og reynast vera með elsta sniði sem fundist hefur hér á landi.

IMG_5075Menningarsetur í Búðardal

Þema landafundanna má síðan kanna frekar og sökkva sér ofan í þessa merku atburði yfir kaffibolla í Leifsbúð, menningar- og safnahúsinu í Búðardal. Húsið stendur niður við höfnina og Vínlands- og landafundasýningin, sem tileinkuð er Leifi heppna, er einstaklega falleg og vel samansett sýning. Eftir að hafa dvalið í fortíðinni um stund er sjálfsagt að skoða sig um og njóta þeirra sýninga sem í boði eru á hverjum tíma.

898484182_c9f978c544_oÍ Búðardal má dvelja dagpart eða koma sér upp bækistöð á þægilegu tjaldstæði þorpsins og ferðast þaðan til áhugaverðra staða í næsta nágrenni. Enginn ætti að láta hjá líða að heimsækja Lauga í Sælingsdal og fara í Guðrúnarlaug.. Í heitri notalegri lauginni má velta fyrir sér örlögum aðalsöguhetja Laxdælu, þeirra Bolla, Kjartans og Guðrúnar. Þeir fóstbræður sóttu sér heilsubót í heitum laugunum hér og fyrstu neistar ástar, afbrýði og haturs kviknuðu meðan horfðust þau í augu Kjartan og Guðrún.

Eiriksstadir 030Álfarnir í Tungustapa

Á Laugum er gott tjaldsstæði og ferðaþjónusta og áhugasamt göngufólk getur dvalið þar um tíma og gengið um og á milli giljanna fyrir ofan bæinn eða á Tungustapa. Göngugörpum er þó hollast að forðast að styggja álfaprestinn því hefnd álfa er hörð. Ótal fleiri áhugaverðar gönguleiðir eru í Dalabyggð en nefna má að af Klofningsfjalli er víðsýnt um Dali og yfir Breiðafjörð. Stutt er út í eyjarnar sem taldar eru vera eitt af þremur fyrirbærum hér á landi sem eru óteljandi. Góð aðstaða er einnig fyrir hestamenn í Dölum, margvíslegar reiðleiðir í boði og ferðamáti forfeðranna á hér sérlega vel við. Íslenska haförninn má oft sjá á Fellsströnd og Skarðsströnd, enda sækja fuglaáhugamenn mikið á þessar slóðir. Frekari upplýsingar um Dalina og áhugaverða staði þar er að finna á nýrri vefslóð: www.visitdalir.is