Átta þúsund nýjar íbúðir

Átta þúsund nýjar íbúðir

Stærstu byggingarframkvæmdir í Reykjavíkurborg er nú nýr borgarhluti á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog. Framkvæmdir á þessu græna hverfi eru hafnar og þegar þeim líkur árið 2025, verða í hverfinu 8000 íbúðir í bland við þjónustu og aðra atvinnustarfsemi. Heildarkostnaður við þessa stóru uppbyggingu er áætlaður milli 4 og 5 milljarðar ISK. Megin áherslur við skipulagningu á þessa nýja hverfi við árósa laxveiðiárinar Elliðaár, er græn umhverfisvottuð byggð með miklum möguleikum til samgönguhjóreiða í önnur hverfi borgarinnar og hágæða almennissamgöngur frá nýju torgi, Krossmýrartorgi í hjarta hins nýja hverfis. 

Göngu- og hjólabrýrnar yfir Elliðaárósa á Geirsnef, tengir saman nýja hverfið. Þær eru tvær brýrnar og voru byggðar árið 2012, eftir verðlaunatillögu Teiknistofunnar Tröð.
Það voru ekki margir á ferli í smábátahöfn Snarfara við Naustavog, en höfnin verður í miðju nýja hverfinu, og gefur hverfinu stemningu sem  er öðruvísi en í öðrum bæjarhlutum höfuðborgarinnar.

Reykjavík 05/02/2022  10:23 – 10:48 –  A7R IV : FE 1.2/50mm GM

Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson