Elsa Waage

Fyrstu hádegistónleikar vetrarins
Þriðjudag 6. september kl. 12

elsa waageunnamedÞriðjudaginn 6. september kl. 12 verða fyrstu hádegistónleikar vetrarins haldnir í Hafnarborg. Að þessu sinni er það mezzosópraninn Elsa Waage sem ríður á vaðið og stígur á stokk ásamt Antóníu Hevesi píanóleikara. Yfirskrift tónleikanna er La Diva-la donna sem útleggst á íslensku sem Dívan – Konan en á efnisskrá eru verk á borð við Vilja-Lied úr Kátu ekkjunni eftir F. Lehár, Habanera úr óperunni Carmen eftir Bizet og La vie en rose sem franska söngkonan Edit Piaf gerði ódauðlegt ásamt fleiri þekktum verkum.
Elsa Waage lauk námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Elísabetar Erlingsdóttur og síðar í framhaldsnám í Washington D.C. þaðan sem hún lauk B.M. –prófi í tónlist við Catholic University of America. Elsa hefur sungið ýmis óperuhlutverk bæði hér á landi og erlendis og á undanförnum árum hefur hún lagt áherslu á tónleikahald og komið fram með sinfóníuhljómsveitum og undirleikurum á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Elsa söng hlutverk Azucenu í Il Trovatore eftir Verdi haustið 2012 og var tilnefnd bæði til Íslensku tónlistarverðlaunanna og Grímunnar fyrir þann flutning. Hún flutti hlutverk Helgu Magnúsdóttur í óperunni Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson árið 2014 hjá Íslensku óperunni.
Antonía Hevesi píanóleikari hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg og valið með sér marga af fremstu söngvurum landsins.
Hádegistónleikar Hafnarborgar eru haldnir mánaðarlega. Þeir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund, þeir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Húsið er opnað kl. 11.30.
Næstu hádegistónleikar verða 4. október og þá er það bassasöngvarinn Bjarni Thor sem kemur fram.

(Clips from the opera production of „Il Trovatore“ fall 2012, The icelandic Opera, Harpa, Reykjavík where Elsa sung the role of Azucena. See here video.)

Nánari upplýsingar veita:
Áslaug Friðjónsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarborgar. s. 585 5790 og Antonia Hevesi. s. 864 2151