Fljótandi borgir

Til Akureyrar, Hríseyjar og Grímseyjar er reiknað með að í ár komi um 200 skemmtiferðaskip með um 200 þúsund farþega innanborðs. Örlítið fleiri skemmtiferðaskip koma til Reykjavíkur með rúmlega 220 þúsund farþega. Það hefur reiknað út að heildartekjur íslensk samfélags – beinar og afleiddar – af öllum komum skemmtiferðaskipa um allt land, geti orðið allt að 30 milljarðar ISK. það er mikill og hraður viðsnúningur í greininni, en til Akureyrar komu 32.000 farþegar í fyrra, þeim fjölgar sem sagt um 168 þúsund milli ára. Það stefnir líka í met ár á Ísafirði, en fyrir faraldur, árið 2019 komu 120 skemmtiferðaskip til Ísafjarðar, í ár verða þau allavega 145. Aðrar hafnir, staðir sem eru vinsælir áfangastaðir skemmtiferðaskipa eru Grundarfjörður, Húsavík, Seyðisfjörður og Vestmannaeyjar, en búist er við met heimsóknum í allar þessar hafnir í sumar og fram í september. Ljósmyndari Icelandic Times / land og Sögu brá sér niður í Sundahöfn í morgun til að fanga stemninguna, en þrjú skemmtiferðaskip lágu þá við bryggju.

Takið eftir farþegunum hægra megin, og áhafnarmeðlimi að ditta að Sky Princess á smá brú. Áhafnarmeðlimir á skipinu eru 1790
Sky Princess tekur tæplega 4000 farþega, með áhöfn eru um 5800 manns um borð, lítið færri en á Akranesi, þúsund fleiri en á Seltjarnarnesi
Þessir víkingar tóku á móti farþegum, þegar þeir stigu fæti á Íslandi. Vel hærðir, en ekki skæddir, því þeir (þær) voru í nýjustu Nike skónum, sem komu víst ekki fram fyrr en löngu eftir að víkingatímabilinu lauk
Gengið í land í Sundahöfn
Sky Princess er engin smásmíði, nýlegt skip byggt á Ítalíu árið 2019

Reykjavík: 05/07/2022 : A7C: FE 1.8/20mm G – FE 1.8/135mm GM

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson