Funky KEXMas Party á Kex Hostel

fimmtudaginn 10. Desember

Samúel Jón Samúelsson og félagar setja jólin í fönkbúning

Samúel Jón Samúelsson Big Band munu láta lúðra hljóma jólalega næstkomandi fimmtudagskvöld á Sæmundi í sparifötunum á Kex Hostel.   Þessi fjórtán manna sveit á sér enga hliðstæðu hér á landi og hefur hún nokkrum sinnum haldið tónleika fyrir troðfullu húsi á Kex Hostel og stemmingin ávallt glaðvær og iðandi.

Tónleikaprógrammið verður stútfullt af fönkuðum jólalögum og hefjast tónleikar klukkan 21:00.  Það er frítt inn á tónleika og verður opið svo lengi sem húsrúm leyfir.

Nánari upplýsingar um Samúel Jón Samúelsson Big Band

Samúel Jón Samúelsson Big Band leikur frumlega frumsamda funktónlist sem er undir áhrifum frá Nígerísku Afróbíti, Eþíópískum jazzi, brasilískum samba töktum, bandarísku funki og stórsveitarjazzi blandað við íslenska eyjaskeggja þrjósku sem hefur vakið athygli víða um heim.
Samúel Jón Samúelsson Big Band hefur gefið út 4 hljómplötur: Legoland (2000), Fnykur (2007) og Helvítis Fokking Funk (2010) og 4 Hliðar (2012) 4 Hliðar var valin ein af bestu plötum ársins af Árna Matt hjá morgunblaðinu og hlaut 4 tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna. Plötur sveitarinnar hafa verið gefnar út í evrópu og Japan. SJSBB hefur frá árinu 2008 farið árlega í tónleikaferðir til evrópu og leikið á tónlistarhátíðum á borð við Berlin Jazzfest, London Jazzfestival, Jazzbaltica, Nattjazz og á virtum jazzklúbbum eins og Mojo Club, Moods, Borgy & Bess auk auk kröftugrar spilamennsku hér heima á Jazzhátíð Reykjavíkur, Iceland Airwaves ofl Fjöldi gestaleikara hefur komið fram með sveitinni eins og Tony Allen (Nígería), Jimi Tenor (Finnland) og Nils Landgren (Svíþjóð) SJSBB er tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2015.

Dómar um tónlist Samúel Jón Samúelsson Big Band

“…vart sé til skemmtilegri tónleikasveit á Íslandi” – Morgunblaðið

“Samúelsson keyrir þessa kraftmiklu hljómsveit áfram eins og maður andsetinn með rætur í ofurþungu funki 8. áratugarins frá James Brown og Brass Construction blandað saman við afróbít Fela Kuti og hráefni frá Sun Ra og stórsveit Don Ellis” – Jon Newey, Jazzwise

“There´s nobody out there making music like this at the moment” – DustyGroove.com

“You can quite literally come out of the shower and face the radio and have your hair dried by that selection Helvítis Fokking Funk from Samúel Jón Samúelsson and the Big Band out of Iceland” – Chris Philips, The Jazz Breakfast, JazzFM

Tóndæmi: https://soundcloud.com/sjsbigband

Bestu kveðjur / Kind Regards

Benedikt Reynisson
Events / Social Media / Press
Kex Hostel / Kexland / Hverfisgata 12 / DILL / Mikkeller & Friends RVK

https://www.kexhostel.is

Welcome on KEXLAND


https://www.hverfisgata12.is
https://www.dillrestaurant.is
https://mikkeller.dk/mikkeller-friends-reykjavik/

Phone +354 561 6060
Mob.  + 354 822 2825