Hildur Bjarnadóttir

Sýningaropnun: Vistkerfi lita eftir Hildi Bjarnadóttur
Laugardag 3. september kl. 16 á Kjarvalsstöðum

kjarvalunnamedÁ sýningunni er tekist á við þörf mannsins fyrir að tilheyra ákveðnum stað í heiminum. Ofin veggverk og stórir litaðir silkidúkar yfirtaka rými salarins og skapa samhengi hugmynda Hildar. Verkin eiga sér rætur í sköpunarferli sem byggir á landinu og þeim gróðri sem upp af því vex. Hildur hefur búið til liti úr íslenskum jurtum og litað með þeim silkidúka og garn. Veggverkin eru ofin úr litaða garninu og silkidúkarnir hanga úr loftinu um allan salinn. Verkin eru bundin tíma og stað, þau mynda kerfi sem dregur fram mismunandi tilfinningar, upplýsingar og eiginleika staðarins.

Samhliða sýningunni kemur út bókin Tilvist lita þar sem hugmyndir og vinna Hildar síðustu ár eru teknar saman.

Hildur Bjarnadóttir (f. 1969) býr og starfar í Reykjavík og í Flóahreppi. Hún lauk námi frá textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1992 og útskrifaðist árið 1997 með MFA próf frá nýlistadeild Pratt Institute í New York. Hildur á að baki fjölda einkasýninga og samsýninga hér heima og erlendis og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Verk eftir hana eru í eigu helstu safna á Íslandi auk alþjóðlegra listasafna. Hildur gegnir nú stöðu dósents við Listaháskóla Íslands.

Sýningarstjóri er Ólöf Kristín Sigurðardóttir.

Sunnudaginn 4. september kl. 13 ganga Hildur og Ólöf með gestum um sýninguna.