Hlemmur við Rauðará

Hlemmur við Rauðará

Í hátt í hálfa öld hefur Hlemmur, torg í austanverðum miðbænum á horni Laugavegs og Rauðarárstígs verið aðalskiptistöð strætisvagna í höfuðborginni. Árið 1978 var byggt yfir torgið eftir teikningum Gunnars Hanssonar, og varð húsið, skiptistöðin fljótt aðal athvarf útigangsmanna, pönkara. Í dag er í húsinu ein fyrsta mathöll landsins, Hlemmur Mathöll opnuð 2017. Reykjavíkurborg samþykkti fyrir tæpum 3 árum, nýtt skipulag fyrir Hlemm, með því markmiði að auka aðdráttarafl torgsins, og skapa gott og vistvænt umhverfi til að staðurinn verði kjörstaður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Icelandic Times / Land & Saga brá sér niður á Hlemm, til að sjá og skoða, áður en torgið breytir algjörlega um svip. Nafnið Hlemmur, kemur af hlemmi sem var á brú  fyrir hesta á menn yfir Rauðará, þar sem torgið er núna, við Rauðarárstíg. Þaðan var var stuttur spölur inn til Reykjavíkur.

Svona mun Hlemmur líta út í náinni framtíð (mynd : Reykjavíkurborg)

 

Framkvæmdir byrjaðar, verið að breyta Laugavegi frá Snorrabraut að Hlemmi í göngugötu
Hlemmur er samgöngumiðstöð Reykjavíkur, gamla Gasstöðin fyrir miðri mynd, höfuðstöðvar Lögreglunnar til vinstri
Hlemmur Mathöll opnaði 2017
Horft niður Laugaveg, Rauðarárstígur liggur þvert á
Klyfjahesturinn, höggmynd eftir Sigurjón Ólafsson, til vinstri, matarvagn til hægri, við Hlemm

 

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

09/01/2023 : A7C : FE 1.4/24mm GM