Íþróttamaður ársins : Ómar Ingi 

Íþróttamaður ársins : Ómar Ingi 

Í 66 ár, eða síðan árið 1956 hefur íþróttamaður ársins verið valin á Íslandi. Í ár, annað árið í röð var það handboltamaðurinn og landsliðsmaðurinn  Ómar Ingi Magnússon sem leikur með þýsku meisturum í Magdeburg sem vann, og það með yfirburðum. Fékk hann 615 stig, næst á eftir var knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir, sem spilar með Bayern München í Þýskalandi með 276 stig. Í þriðja sæti var handboltakappinn Gísli Þorgeir Kristjánsson með 273 stig, en hann er liðsfélagi Ómars Inga hjá Magdeburg.

Handknattleiks lið Vals, var valið lið ársins, Þórir Hergeirsson þjálfari kvennalandsliðs Noregs og núverandi  heims- og evrópumeistara, var valinn þjálfari ársins, og frjálsíþróttakonan Guðrún Arnardóttir sem komst í úrslit á Ólympíuleikunum í Sydney í 400 metra grindahlaupi, var valin í heiðurshöll Íþróttasambands Íslands.

 

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson opnaði verðlaunahátíðina, sem var í beinni útsendingu á RÚV
íþróttamaður ársins á Íslandi, annað árið í röð, Ómar Ingi Magnússon

 

Guðrún Arnardóttir heldur þakkaræðu eftir að að hafa verið valin í heiðurshöll ÍSÍ
Ómar Ingi Magnússon á miðri mynd, til hægri Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og til vinstri íþróttamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason
Íþróttamaður ársins Ómar Ingi Magnússon heldur þakkaræðu, í Hörpu

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

29/12/2022 : A7R IV : FE 1.4/85mm GM