Jóladagskrá Árbæjarsafns – jólin í gamla daga

Jóladagskrá Árbæjarsafns – jólin í gamla daga

Jóladagskrá Árbæjarsafns er ómissandi hluti aðventunnar í borginni enda leitun að stað sem er eins notalegt og skemmtilegt að heimsækja á þessum tíma árs.arbaejarsafn-landogsaga

Dagskráin er á öllu safnsvæðinu og geta ungir sem aldnir rölt á milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta. Börn og fullorðnir dansa í kringum jólatréð og syngja vinsæl jólalög. arbsejarsafn-safn-land-og-saga

Húsin á Árbæjarsafni bera upprunaleg og skemmtileg nöfn. Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti er spunnið og prjónað. Í Kornhúsinu búa börn og fullorðnir til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Hábæ er hangikjöt í potti sem gestir fá að bragða á. Í Nýlendu má fylgjast með tréútskurði og í Miðhúsum er hægt að fá prentaða jólakveðju. Í Efstabæ er jólaundirbúningurinn kominn á fullt skrið og skatan komin í pottinn. Í hesthúsinu frá Garðastræti eru búin til tólgarkerti og kóngakerti eins og í gamla daga. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í Krambúðinni er kramarhús, konfekt og ýmis jólavarningur til sölu.arb

Fastir liðir:
14:00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni.
15:00 Sungið og dansað í kringum jólatréð.
14:00-16:00 Jólasveinar skemmta gestum og taka þátt í söng og dansi í kringum jólatréð.

Að vanda býður Dillonshús upp á ljúffengar og hefðbundnar jólaveitingar.

Fullorðnir 18+ 1.500 kr.
Börn (yngri en 18), ellilífeyrisþegar (70+) og öryrkjar: Ókeypis aðgangur
Menningarkortið veitir ókeypis aðgang að safninu.

Allir velkomnir!

Árbæjarsafn, Kistuhyl 4, 110 Reykjavík
www.borgarsogusafn.is