Kallað eftir tillögum – Haustsýning Hafnarborgar

Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að sýningu í Hafnarborg haustið 2021. Sýningin Villiblómið sem nú stendur yfir í safninu var valin úr athyglisverðum tillögum sem sendar voru inn á síðasta ári. Markmiðið með því að óska eftir innsendum tillögum er að fá tækifæri til að velja til samstarfs sýningarstjóra sem leggur fram áhugaverða tillögu að sýningu en jafnframt að kalla til leiks nýtt fólk. Þannig er sérstaklega hugað að því að veita tækifæri sýningarstjórum með stuttan feril að baki. Það hefur sýnt sig að fyllsta ástæða er til að halda úti slíku verkefni, en út frá því hafa orðið til fjölbreyttar og áhugaverðar sýningar sem vakið hafa athygli og verið vel sóttar.

Haustsýning 2019

Frestur til að skila inn tillögum rennur út á miðnætti sunnudaginn 25. október 2020.

Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja verk listamanna en einnig koma til greina sýningar sem fela í sér greiningu eða sýn á verk ákveðins listamanns. Jafnt koma til greina sýningar á verkum samtímalistamanna og sýningar sem fela í sér sögulega greiningu. 

Umsóknarferlið er tvískipt og eru þeir sem áhuga hafa á að takast á við þetta verkefni hvattir til að kynna sér verkefnið frekar hér.  

Haustsýning 2017

Árið 2011 hóf haustsýningaröðin göngu sína með sýningunni Í bili sem unnin var af Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur mannfræðingi, 2012 var sett upp sýningin SKIA í sýningarstjórn Guðna Tómassonar listsagnfræðings. Anna María Bogadóttir menningarfræðingur og arkitekt sýningarstýrði sýningunni Vísar – húsin í húsinu árið 2013 og á árinu 2014 var hugmynd Helgu Þórsdóttur, menningarfræðings og myndlistarmanns, að sýningunni Rás valin úr áhugaverðum tillögum. Haustið 2015 voru það listfræðingarnir Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir með sýninguna Heimurinn án okkar. Árið 2016, var tillaga hönnunartvíeykisins TOS fyrir valinu, sem er skipað þeim Hildi Steinþórsdóttur og Rúnu Thors, með sýninguna Tilraun – leir og fleira, 2017 var sýningin Málverk – ekki miðill sett upp undir sýningarstjórn Jóhannesar Dagssonar, 2018 sýningin Allra veðra von sem Marta Sigríður Pétursdóttir sýningarstýrði og árið 2019 var sýningarhugmynd Andreu Arnarsdóttur og Starkaðar Sigurðssonar fyrir valinu sem bar titilinn Allt á sama tíma. Í ár er það sýningin Villiblómið sem var valin úr hópi innsendra hugmynda, á sýningunni búa listamenn frá Íslandi og Kanada til rými fyrir samruna umhverfisaktívisma, margbreytilegra vistkerfa, femínisma og handverks innan samtímalistarinnar. Sýningin stendur til 25. október.

Ragnheiður Harpa Haustsýning 2018

Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir þannig að safnið verði vettvangur þar sem myndlist fær notið sín, mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Sýningarnar og málþing sem skipulögð hafa verið samhliða þeim hafa skapað markverðan vettvang umræðna og þróunar í Hafnarborg.

Arna Óttarsdóttir Haustsýning 2020

Sendið tillögur á netfangið [email protected]

Merkið póstinn Haust2021.

Nánari upplýsingar í síma Hafnarborgar 585 5790 og á heimasíðu safnsins www.hafnarborg.is