Lífhagkerfisstefna 2016

Lífhagkerfisstefna 2016

Á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur farið fram vinna við setningu stefnu um eflingu lífhagkerfisins á Íslandi. Meðfylgjandi eru drög að stefnunni sem birt eru hér með til kynningar.
12 matisMarkmið lífhagkerfisstefnu fyrir Ísland eru að styðja sjálfbæra þróun og uppbyggingu atvinnulífs sem byggir á nýtingu lífauðlinda, þvert á hinar svonefndu hefðbundnu atvinnugreinar, landbúnað, sjávarútveg og matvælavinnslu. Við þessa vinnu hefur verið leitast við að fjalla um tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar innan þessara greina atvinnulífsins og hvernig styðja megi við uppbyggingu nýrra greina til framtíðar, hvernig bæta megi nýtingu og minnka sóun, auk þess sem horft er til nýtingar vannýttra auðlinda.
Við stefnumörkunina er sérstaklega horft til sérstöðu Íslands, m.a tækifæra sem byggja á nýtingu einstakra erfðaauðlinda, sérstöðu sem rekja má legu landsins, hafsvæðisins í kring um okkur og þess árangurs sem náðst hefur í íslenskum sjávarútvegi. Sá árangur í samhengi við ábyrga stefnumörkun á sviði lífhagkerfisins gefur mikil tækifæri til að verða leiðandi í málefnum hafsins á alþjóða vettvangi auk þess að nýtast með beinum hætti við markaðssetningu á vöru og þjónustu.
Mörkun lífhagkerfisstefnu á sér fyrirmyndir í öðrum norrænum ríkjum og hefur reynsla annarra landa af stefnumörkun á þessu sviði verið höfð til hliðsjónar við vinnuna, auk þess að taka mið af þeirri þekkingu og reynslu sem hefur orðið til með formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014-2016, NordBio. Jafnframt er tekið mið af margskonar stefnumótun á innlendum vettvangi, s.s. stefnu Vísinda-og tækniráðs.
Vinna við undirbúning lífhagkerfisstefnunnar hefur verið í höndum sérstaks starfshóps, sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði 2015 og hefur Matís ohf. farið með framkvæmd vinnunnar. Víðtækt samráð hefur verið haft við stofnanir, önnur ráðuneyti og atvinnulífið, einkum samtök og fyrirtæki í sjávarútvegi og landbúnaði, matvælavinnslu og líftækni. Birting stefnunnar hér á heimasíðu ráðuneytisins er hluti af þessu samráðsferli og eru allir sem vilja láta sig þetta mikilvæga málefni varða hvattir til að kynna sér stefnudrögin og senda inn athugasemdir eða ábendingar, eigi síðar en 20. ágúst 2016.