Litlu jólin á Sjóminjasafninu

Litlu jólin á Sjóminjasafninu 5. des kl. 10:00 – 21:00
Sjóminjasafnið verður opið til kl. 21 laugardaginn 5. desember í tilefni af „Litlu jólunum“ við Gömlu höfnina og á Grandanum. Þennan dag munu rekstaraðilar á svæðinu bjóða upp á jólalegt og notalegt andrúmsloft auk ýmissa afslátta og tilboða.

Frá kl. 17-21 verður 2 f 1 af miðaverði safnsins og kl. 17 og 19 er hægt að fara í fjölskylduvæna leiðsögn um safnið. Þeir sem yngri eru geta svo skemmt sér með því að fara í jólaratleik um safnið.

samsett_jolSafnbúðin verður að sjálfsögðu opin en þar er hægt að fá allskonar skemmtilegan varning sem tilvalinn er í jólapakka eldri sem yngri. Í tilefni dagsins verða allar vörur seldar með 15% afslætti.

Aðgangseyrir í safnið er 1400 kr. fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn 18 ára og yngri, ellilífeyrisþega (70+) og öryrkja. Menningarkortið veitir ókeypis aðgang að safninu.

Jóladagskrá Árbæjarsafns 6. des kl. 3:00 – 17:00
•    14:00-14:40 spilar skólahljómsveit Grafarvogs, undir stjórn Einars Jónssonar, bæði á útisvæðinu og í Landakoti.
•    14:00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni. Prestur er séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson og organisti er Sigrún Steingrímsdóttir.
•    15:00 hefst jólatrésskemmtun á torginu. Þar verða sungin jólalög og dansað í kringum jólatréð við harmónikkuundirleik og söng frá kór Ártúnsskóla.
•    14:00-16:00 Jólasveinar, þessir gömlu íslensku, verða á vappi um svæðið, hrekkjóttir og stríðnir að vanda og taka þátt í dansinum kringum jólatréð.  

Jóladagskrá Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hefur hlotið fastan sess í menningarlífi borgarbúa á aðventunni.  Ungir sem aldnir geta rölt á milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta, börn og fullorðnir fá að föndra og syngja saman jólalög. Þá gefst gestum tækifæri að taka þátt í jólalegum ratleik um safnsvæðið. Að vanda býður Dillonshús upp á ljúffengar veitingar, heitt súkkulaði og jólalegt meðlæti.   

                                                                              
Jólaundirbúningur og handverk í húsum Árbæjarsafns
Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti verður spunnið og prjónað. Þar verður  jólatré einnig vafið lyngi. Í Kornhúsinu  fá börn og fullorðnir að föndra, búa til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Hábæ verður hangikjöt í potti og gestum boðið að bragða á nýsoðnu keti. Í Nýlendu verður hægt að fylgjast með tréútskurði og Miðhúsum verður hægt að fá prentaða jólakveðju. Í Efstabæ er jólaundirbúningurinn kominn á fullt skrið og skatan komin í pottinn. Í hesthúsinu frá Garðastræti er sýnt hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti í gamla daga. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og krambúðin verður með kramarhús, konfekt og ýmsan jólavarning til sölu.

Sýningar
Í Lækjargötu 4 er sýningin Neyzlan – Reykjavík á 20. öld sem fjallar um hvernig samfélagið á Íslandi þróaðist frá sjálfsþurftarbúskap til tæknivædds markaðsbúskapar á nokkrum áratugum. Þar er einnig að finna litla sýningu sem nefnist Aðfangadagskvöld 1959. Í Kornhúsinu má sjá sýninguna Hjáverkin sem fjallar um vinnuframlag kvenna inni á heimilum á árunum 1900-1970. Í Landakoti er hin skemmtilega sýning Komdu að leika!
Aðgangseyrir er 1400 kr. fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn 18 ára og yngri, ellilífeyrisþega (70+) og öryrkja. Menningarkortið veitir ókeypis aðgang að safninu.
*******************************

“Little Christmas”  at Reykjavík Maritime Museum December 5
The Reykjavík Maritime Museum will have what we call “Little Christmas” on Saturday December 5th from 10:00 – 21:00. Most museum and shops in the area will also participate with all kinds of offers that day.
The Maritime Museum offers 2 for 1 of admission from 17:00 – 21:00 (5 pm – 9 pm), and at 17:00 (5 pm) and 19:00 (7 pm) there will be a guided tour of the museum. The youngest ones can enjoy a christmas treasure hunt through the museum.

The Museum Shop will ofcourse be open with lots of interesting products for children as well as adults. All products are sold with 15% discount that day.

Admission is 1400 ISK fyrir for adults but children (less than 18 years of age) and elders (70+) get free admission. Holders of the City Card get free admission.

Christmas program at Árbær Open Air Museum December 6
Árbæjarsafn, Kistuhyl
Sunday December 6
13:00 – 17:00

•    14:00-14:40 (2 pm – 2:40 pm) the Grafarvogur school band will play in the museum area and in Landakot.
•    14:00 (2 pm) mass in the museum church
•    15:00 (3 pm) dancing and singing around the Christmas tree on the museum square. Ártúnsskóli choir will sing few Christmas songs.
•    14:00-16:00 (2 pm – 4 pm) few of the icelandic yule lads will walk around the museum area and entertain museum guests.

Immerse yourself in the sights, smells and sounds of a traditional Icelandic Christmas at Árbær Open Air Museum.
The ever popular Christmas program, at Árbær Open Air Museum has become a fixture of the Reykjavík´s Christmas calendar. Visitors, young and old, will enjoy experiencing the Christmas preparation and celebration of days gone by. This includes preparation of traditional Icelandic Christmas food and crafts, for example candle making.
Playful Yule Lads (traditional Icelandic Santa Clauses) peep through windows and play tricks on guests. Traditional Christmas sweets will be on offer in the General Store, hot chocolate at the Museum Café and much more.
Admission fee for adults 18+ is 1400 ISK but free for children undir age of 18 years and people over 70 years old. Owner of the Reykjavik City Card also get a free entrance.