Melckmeyt 1659

Melckmeyt 1659
Mjaltastúlkan /Milkmaid
Fornleifarannsókn neðansjávar / Underwater Archaeological Survey


Á kaldri októbernóttu árið 1659 lá hollenska kaupskipið Melckmeyt fulllestað við akkeri og beið heimfarar til Amsterdam þegar ægilegur stormur skall á. Í tvo daga börðust áhafnarmeðlimirnir fimmtán við að bjarga skipinu frá strandi. Baráttan bar ekki árangur, skipið strandaði og einn maður fórst. Skipverjar voru fastir á örlítilli eyju, hundruð kílómetra frá heimkynnum sínum. Samkvæmt annálum höfðu áhafnarmeðlimir vetursetu í Flatey eftir að skip þeirra sökk.
Meira en 300 árum síðar, árið 1992, fundu kafarar flak skipsins. Árið eftir var í fyrsta sinn framkvæmd víðtæk rannsókn á fornminjum neðansjávar við Ísland á vegum Þjóðminjasafns Íslands. Sérfræðingar köfuðu aftur niður að flakinu árið 2016, undir handleiðslu Kevins Martins doktorsnema í fornleifafræði og grófu upp enn stærri hluta flaksins.
Flakið af Melckmeyt er sérstakt fyrir þær sakir að það er elsta skipsflak sem vitað er um við Íslandsstrendur og eina skipið sem tengist einokunarverslun Dana. Rannsókn á flakinu veitir einstaka innsýn og eykur þekkingu okkar á tímabilinu sem og neðansjávarfornleifafræði.
Neðansjávarfornleifafræði er sértækt svið innan fornleifafræðinnar sem snýr að fornleifum undir yfirborði sjávar, vatna og fljóta. Fræðigreinin byggir á rannsóknum á samskiptum manns og hafs fyrr á tímum. Fræðimenn á þessu sviði skoða strandminjar eins og verstöðvar, hvalveiðistöðvar, gömul hafnarsvæði og sambærilegar minjar sem eru eldri en hundrað ára og huldar vatni.

Á sýningunni fá gestir innsýn í rannsóknaraðferðir fornleifafræðinnar og fjallað verður um valda þætti úr sögu skipsins, áhafnar og verslunar á 17. öld. Einnig getur að líta nokkra þeirra gripa sem fundust við rannsóknina.