Menn og menning

Menn og menning

Á næsta ári verður Hafnarborg – menningar – og listamiðstöð Hafnarfjarðar 40 ára. Á 75 ára afmæli Hafnarfjarðar, 1. júní 1983, lögðu Sverrir Magnússon lyfsali og Ingibjörg Sigurjónsdóttir lyfjafræðingur grunn að safninu með listaverkagjöf sinni, og gjafabréfi að húseigninni að Strandgötu 34. Húsið sem var upphaflega hannað af Guðjóni Samúelssyni fyrir Sören Kampmann lyfsala árið 1921. Sverrir Magnússon rak þar Hafnarfjarðar Apótek frá 1947 til 1984. Hafnarborg í núverandi mynd var síðan formlega vígð eftir gagngerar endurbætur og viðbyggingu hönnuð af Ingimari H. Ingimarssyni arkitekt í maí 1988. Hafnarborgar leggur áherslu á að þarna sé örvandi vettvangur listsköpunnar í Hafnarfirði. Að alþjóðleg gestavinnustofa Hafnarborgar tengi saman á faglegan hátt nýsköpun og farveg fyrir efnilega listamanna að tengjast út í samfélagið.

Frá ljósmyndasýningu Hallgerðar Hallgrímsdóttur, Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III hluti.
Hafnarborg stendur við eina af aðalgötum Hafnarfjarðar, Strandgötu. Myndin er af vestasta hluta götunnar. Safnið er í hinum enda götunnar.
Hafnarborg – menningar – og listamiðstöð Hafnarfjarðar, stendur í hjarta bæjarins.

Hafnarfjörður 18/02/2022  08:33 – 09:23 : A7C : FE 1.4/24mm GM

Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson