Við hjá Icelandic Times bjóðum nú upp á sértilboð á fyrirtækjaumfjöllun á 29.900 krónur án vsk. per tungumál. Um er að ræða ca 200 orða umfjöllun með möguleika á að setja inn fjórar stórar og tíu minni ljósmyndir og myndband. Þess fyrir utan er innifalin smáauglýsing í tímaritunum, 5×5 með ca. 30 orðum og mynd. Blaðamaður hefur samband við þig og skrifar textann, hvort sem hann er á íslensku, ensku, frönsku, þýsku eða kínversku. Eins er möguleiki á að setja Google Maps staðsetningu við greinina á netinu og allar helstu tengiliðaupplýsingar. Sjáið hér og hér dæmi um fyrirtækjaumfjöllun og dæmi um smáauglýsingar hér.
Við deilum öllum markaðskynningum á samfélagmiðla en við erum til dæmis með 60.000 fylgjendur á Facebook. Þessi öfluga markaðssetning á samfélagsmiðlunum er innifalin í sértilboðsverðinu.
Auk almennra markaðskynninga erum við að byggja upp viðburðadagatal þar sem allir landshlutar fá sitt pláss. Við hvetjum því alla þá sem hafa tilkynningar um uppákomur, sýningar eða aðra viðburði í tíma, með sem flestum myndum/upplýsingum að hafa samband ef áhugi er að auglýsa.
Icelandic Times hefur fest sig rækilega í sessi síðastliðin 14 ár og koma tímaritin úr á ensku, frönsku, þýsku og kínversku undir nafninu Icelandic Times – og Land & Saga á íslensku. Kíki hingað til að sjá öll blöðin.
Við stefnum ótrauð áfram, næstu blöð verða gefin út nú í júlí og ágúst með það að markmiði að kynna flest allt sem Ísland hefur uppá að bjóða á sviði ferðaþjónustu, nýsköpunar, viðskipta, orkumála, menningar, myndlistar, sögu, byggingalistar, skipulags og hönnunar. Um er að ræða vandaða útgáfu blaða en Nordic Times Media stendur einnig að öflugum vefmiðli á fimm tungumálum og er kínverska útgáfan með platform á WeChat.
Skoða síðasta tbl. Land og saga á íslensku sjá hér
Skoða síðasta tbl. Icelandic Times á kínversku sjá hér
Skoða síðasta tbl. Icelandic Times á ensku sjá hér
Skoða síðasta tbl. Icelandic Times á frönsku sjá hér
Skoða síðasta tbl. Icelandic Times á þýsku sjá hér
Bókin best of Iceland:
Vinna er hafin við þriðja árgang á ensku og kínversku. Útgáfudagur er haustið 2021.
Bókin Best of Iceland sjá hér