Öræfajökull

Öræfajökull

Öræfajökull er eldkeila á Suðausturlandi (Austur-Skaftafellssýslu).Yfir fjallinu er jökulhetta þ.e. Öræfajökullinn sjálfur, sem er jafnframt syðsti hluti Vatnajökuls. Hann fyllir stóra öskju efst á fjallinu. Margir skriðjöklar skríða út frá jökulhettunni niður fjallshlíðarnar og um dali við fjallsræturnar. Meðal þeirra eru Svínafellsjökull, Virkisjökull, Kotárjökull, Kvíárjökull og Hrútárjökull. Á norðurhlið fjallsins er Hvannadalshnúkur, hæsti tindur Íslands, 2.110 m. Öræfajökull (jökullinn sjálfur) er allur innan Vatnajökulsþjóðgarðs og fjallið að miklu leyti líka.

Öræfajökull er megineldstöð og hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma; fyrst 1362 þegar Litlahérað lagðist í eyði, og síðan minna gosi 1727. Mikið tjón varð í báðum gosunum og þeim fylgdi öskufall og jökulhlaup.

Í nóvember árið 2017 urðu jarðskjálftar undir jöklinum og mældust uppleyst efni í Kvíá sem kemur undan honum og bentu til þess að nýlegt jarðhitasvæði væri undir honum.