Panórama yfir höfuðborgarsvæðið

Panórama yfir höfuðborgarsvæðið

Kópavogskirkja, elsta kirkja í næst fjölmennasta bæjarfélagi á landinu, stendur á toppi Borgarholts sem er friðað. Útsýni frá kirkjunni er frábært í allar áttir, enda leggja margir sér leið upp á hæðina til að njóta panórama útsýnis yfir höfuðborgarsvæðið. Kirkjan var reist á árunum 1958 til 1962 eftir teikningum arkitektanna Harðar Bjarnasonar og Ragnars Emilssonar. Gluggar kirkjunnar þykja einstakir, hannaðir af Gerði Helgadóttur, en listasafn Kópavog, Gerðarsafn er næst kirkjunni, og kennt við hana. Við hlið safnsins er síðan Bókasafn Kópavogs, og Salurinn, einn helsti og besti tónleikasalur landsins. Borgholtið þar sem Kópavogskirkja stendur, er einstaklega hrjúft, með sína stóru náttúrulega steina, list náttúrunnar óspjölluð. 

Kópavogskirkja á toppi Borgarholts
Kópavogskirkja séð frá Arnarnesi, yfir Kópavog, Esjan í bakgrunni
Horft í austur, Gerðarsafn næst, Hamraborgin í bakgrunni frá Kópavogskirkju
Turninn í Kópavogi, hæsta bygging landsins á miðri mynd, Bláfjöll í fjarska, séð með aðdráttarlinsu frá Kópavogskirkju
Horft í norður, Perlan á miðri mynd
Myndin tekin frá sama stað, hér með aðdrætti. Hallgrímskirkja gægist upp yfir Öskuhlíðina

27/03/2023 : A7R III, A7C : FE 2.5/40mm G, FE 200-600 G

Ljósmyndir og texti: Páll Stefánsson