Ragna Róbertsdóttir og Hallgerður Hallgrímsdóttir​

Leiðsögn listamanna:Ragna Róbertsdóttir og Hallgerður Hallgrímsdóttir​

Fimmtudag 16. ágúst kl. 20.00 í Hafnarhúsi

Leiðsögn með Rögnu Róbertsdóttur og Hallgerði Hallgrímsdóttur sem eiga verk á sýningunni Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein?

Á sýningunni er sjónum beint að verkum listamanna sem endurspegla tengsl Íslendinga við víðerni landsins og breytilegt verðmætamat gagnvart náttúrunni. Sýningin rekur sögu hugmynda Íslendinga um víðerni landsins með augum myndlistarmanna. 

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.