Reykjavíkurhöfn 110 ára

Reykjavíkurhöfn 110 ára

Fyrir tíma flugvéla, eða símasæstrengja, voru skip eini tengiliður Íslands við umheiminn. Fyrir gerð Reykjavíkurhafnar, en bygging hennar hófst árið 1913, fyrir 110 árum, voru allar vörur fluttar úr kaupskipum í land með árabátum, og síðan áfram á handkerrum. Frá náttúrunnar hendi var höfn í Reykjavík, en ekki góð. Þar voru talsverðir straumar og ekkert skjól fyrir veðrum. Stærri skip gátu ekki lagst að bryggju, og urðu að liggja langt frá landi, í Kollafirði. Fyrsta áfanga hafnarinnar var lokið 1917, sextíu og tveimur árum eftir að byrjað var að ræða um að höfuðborgin þyrfti almennilega höfn. Ein af fyrstu hugmyndunum var að grafa skipaskurð úr Víkinni í Reykjavíkurtjörn, þar sem yrðu bryggjur. Reykjavíkurhöfn, sem er hluti af Faxafóahöfnum er í dag lang stærsta höfn landsins, og sjötta stærsta fiskveiðhöfnin. Þangað koma líka lang flest skemmtiferðaskip, á ferð sinni um norður Atlantshafið og til Íslands. Icelandic Times / Land & Saga kíkti niður í miðbæ, á sólbjörtum en köldum marsdegi. Það er einstakt að vera með svona stóra og lifandi höfn í miðjum miðbæ.

Gullborg fyrir framan Sjóminjasafnið
Það eru 214 skip, stór og smá sem eiga Reykjavíkurhöfn sem heimahöfn. Akureyri er næst, með 122, og í þriðja sæti er Stykkishólmur með 87 skip
Varðskipið Óðinn í Slipp í Reykjavíkurhöfn.
Þessi hvalveiðiskip hafa legið við bryggju í áratugi. Orðin hluti af sögunni og borgarmyndinni
Hvalaskoðunarbátar oðnir klárir fyrir vorvertíðina
Ferðamenn að skoða úrvalið af skoðunarferðum frá Reykjavíkurhöfn

 

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

06/03/2023 : A7C, RX1R II : FE 1.8/20mm G, 2.0/35mm Z