SUMARTÓNLEIKAR Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR

BJÖRN THORODDSEN, GUNNAR ÞÓRÐARSON OG JÓN RAFNSSON – GUITAR ISLANCIO
31.7.2018, 20:30 – 21:30, Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Þriðjudaginn 31. júlí kl. 20:30

Guitar Islancio
Björn Thoroddsen og Gunnar Þórðarson gítarleikarar og Jón Rafnsson bassaleikari.
Tuttugu ára starfsafmæli Guitar Islancio. Blanda af frumsömdu efni, íslenskum og erlendum þjóðlögum og sígildum jazzlögum.

Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 20:30 og standa án hlés í því sem næst eina klukkustund. Kaffistofa safnsins er opin eftir tónleikana og gefst gestum kostur á að hitta flytjendur þar.

Miðasala er við innganginn og aðgangseyrir er 2.500 kr. Tekið er við greiðslukortum.

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Heimasíða: www.lso.is