Tjarnargatan við Tjörnina

Tjarnargatan við Tjörnina

Tjarnargata sem gengur frá Fógetagarðinum, þar sem fyrsti landnámsmaðurinn Ingólfur Arnarson byggði sinn bæ árið 874, að Hringbraut, meðfram Tjörninni. Nú er þar verið að byggja skrifstofubyggingu Alþingis, gengt Ráðhúsinu. Tjarnargatan er ein fallegast gata Reykjavíkur, byggð stásslegum húsum, flest flutt inn frá Noregi um eða og uppúr 1900. Við götuna stendur líka Ráðherrabústaðurinn, reisulegt hús sem norski hvalútgerðarmaðurinn Hans Ellesen byggði sér við Önundarfjörð árið 1892. Átta árum síðan gefur hann Hannesi Hafstein ráðherra Íslands húsið, og er því komið fyrir við Tjarnargötuna árið 1910. Húsið er nú bæði fundarstaður ríkisstjórnar Íslands, og gististaður fyrir erlenda þjóðhöfðingja. 

Tjarnargata árið 1928
Tjarnargata, Landakotskirkja og Landakot efst til vinstri
Ráðherrabússtaðurinn við Tjarnargötu
Tjarnargata árið 2023
Leikskólin Tjarnarborg, við Tjarnargötu 33, Hallgrímskirkja í bakgrunni til hægri

 

 

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

18/03/2023 : A7C, A7RIV : FE 2.5/40mm G, FE 2.8/100mm GM