Vetrarríki

Vetrarríki

Auðvitað þarf að gæta að færð og veðri þegar lagt er á stað úr Reykjavík á þessum árstíma. Í gær var meira og minna lokað hringinn í kringum Ísland, en það var fært suður á Reykjanes úr höfuðborginni. Suðurstrandarvegur (vegur 427), milli Grindavíkur og Þorlákshafnar var lokaður, en Keflavíkurvegurinn, (vegur 41) var opinn, enda tengir hann höfuðborgarsvæðið við Alþjóðaflugvöllinn í Keflavík. Það var brjálað rok, gekk á með dimmum éljum, alveg frábært veður til að taka vetrarmyndir. Næstu daga verður skaplegt veður um allt land, þó nokkur snjókoma fyrir norðan og austan, en ekki bálhvasst eins og hefur verið undanfarna dag.

Á Stafnnesi, rétt norðan við Básenda, en þar skall á eitt versta veður og flóð í Íslandssögunni árið 1799, og eyddi þorpi sem byggðist aldrei aftur. Talið er að meðal ölduhæð hafi verið 16m í Básendaflóðinu.
Krapi og snjór voru fljótir að byrgja sýn á bílnum. Nauðsynlegt að vera með sköfu þegar ferðast er um Ísland um miðjan vetur.
Kletturinn Karl rétt norðan við Reykjanestá er 55 m / 181 ft hár. Það eru engar smá öldur sem berja á klettinum sem er forn gígtappi.

 

Reykjanes 07/02/2022  14:44-15:31 – A7R III : FE 1.4/85mm GM

Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson