Vitar, kirkja og einn hestur

Vitar, kirkja og einn hestur

Suðurnesjabær er nýtt sveitarfélag, en árið 2018, sameinuðust sjávarútvegsbæirnir Garður og Sandgerði og varð til næst fjölmennasta sveitarfélagið á Reykjanesi eftir Reykjanesbæ. Íbúar eru nú 3.649, þar af 1.744 í Garði og 1.874 í Sandgerði á 82 km²  lands, nyrst og vestast á nesinu. Hvergi í heiminum má sjá flekaskil ganga á land með jafn áþreyfanlegum hætti og á Reykjanesi. Reykjaneskaginn er síðan 2015, UNESCO, Global Geopark, og er Suðurnesjabær þar inni með marga merka staði til að skoða, eins og Þórshöfn sem var aðal verslunarstaður Þýskra Hansakaupmanna á 15. og 16. öld. Suðurnesjabær er nú í nútíð fyrsti staðurinn sem yfir 99% ferðamanna sem koma til Íslands drepa fyrst niður fæti, því Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er í Suðurnesjabæ. 

Hvalsneskirkja sunnan Sandgerðis, byggð árið 1887 úr tilhöggnu grágrýtishrauni úr nágreninu. Hallgrímur Pétursson (1614-1674), mesta sálmaskáld Íslendinga þjónaði Hvalnesi árin 1644 til 1651.
Á Garðskagatá eru tveir vitar, sá minni var byggður árið 1897, sá hærri var vígður lýðveldisárið 1944.
Sangerðisviti í Sandgerðishöfn byggður í tveimur áföngum 1921 og síðan hækkaður árið 1945.
Hestur á beit á Lindarsandi sunnan Sandgerðis.

Suðurnesjabær 21/02/2022  08:58 – 10:47 : A7R III – A7R IV  : FE 1.8/135mm GM – FE 1.2/50mm GM

Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson