{"id":153766,"date":"2018-09-20T13:23:41","date_gmt":"2018-09-20T13:23:41","guid":{"rendered":"https:\/\/icelandictimes.com\/?p=153766"},"modified":"2024-04-24T02:21:52","modified_gmt":"2024-04-24T02:21:52","slug":"allt-veltur-a-godri-hugmynd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/","title":{"rendered":"Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd"},"content":{"rendered":"\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Arkitektastofan Batter\u00edi\u00f0 sneri v\u00f6rn \u00ed s\u00f3kn \u00feegar kreppan skall \u00e1 og sigra\u00f0i \u00e1 d\u00f6gunum tvo norr\u00e6na risa \u00ed samkeppni um hverfiskjarna \u00ed Bergen <br \/>Strax eftir hrun settum vi\u00f0 fram \u00feessa spurningu: Anna\u00f0 hvort ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera einhvers sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar, e\u00f0a vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 gera eitthva\u00f0 anna\u00f0 en vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera. Vi\u00f0 getum ekki veri\u00f0 \u00ed bygginga- og skipulagsh\u00f6nnun \u00e1 \u00cdslandi vegna \u00feess a\u00f0 h\u00e9r er enginn marka\u00f0ur fyrir \u00fea\u00f0. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 baka flatk\u00f6kur e\u00f0a flaka fisk \u00ed sta\u00f0inn fyrir a\u00f0 hanna byggingar, segir Sigur\u00f0ur Einarson arkitekt hj\u00e1 Batter\u00edinu, \u00feegar hann er spur\u00f0ur hvernig hann og f\u00e9lagar hans hafi fari\u00f0 a\u00f0 \u00fevi a\u00f0 st\u00fdra fyrirt\u00e6ki s\u00ednu til sigurs \u00e1 krepput\u00edmum.<\/p>\r\n<p><br \/>\u201eNi\u00f0ursta\u00f0an var\u00f0 s\u00fa a\u00f0 vi\u00f0 myndum s\u00e6kja \u00fat, halda \u00e1fram a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera annars sta\u00f0ar. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um talsver\u00f0a\u201c cross-border\u201c reynslu. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um unni\u00f0 \u00ed Montreal \u00ed Kanada, me\u00f0 Henning Larsen \u00ed H\u00f6rpunni og me\u00f0 a\u00f0ilum \u00ed Noregi. Vi\u00f0 \u00feekktum \u00fev\u00ed hvernig menn unnu, reynslan var til sta\u00f0ar \u00ed fyrirt\u00e6kinu til a\u00f0 gera \u00feetta.<\/p>\r\n<p><br \/>\u00de\u00e1 var fyrsta spurningin: Hvert eigum vi\u00f0 a\u00f0 fara\u2026. Nor\u00f0menn eru rei\u00f0ir \u00fat \u00ed okkur, Sv\u00edar eru rei\u00f0ir \u00fat \u00ed okkur, Danir \u00feola okkur ekki \u2013 og vi\u00f0 skulum bara ekki tala um Bretland og Icesave\u2026 \u00dea\u00f0 var alls sta\u00f0ar svi\u00f0in j\u00f6r\u00f0 eftir \u00fatr\u00e1sarv\u00edkingana.\u201c<\/p>\r\n<p><br \/>\u00dea\u00f0 er greinilegt a\u00f0 Sigur\u00f0ur l\u00edtur \u00e1 s\u00f3kn sem bestu v\u00f6rnina vegna \u00feess a\u00f0 \u00ed dag er Batter\u00edi\u00f0 l\u00edklega\u00a0st\u00e6rsta arkitektastofan \u00e1 \u00cdslandi og hefur tekist \u00fea\u00f0 me\u00f0 mj\u00f6g markvissri \u00fatr\u00e1s, markvissri marka\u00f0s\u00f6flun \u00ed Kanada og s\u00ed\u00f0an \u00ed Noregi.<\/p>\r\n<h5><strong>Velkomnir \u00ed Kanada\u00a0\u00a0<\/strong><\/h5>\r\n<p>\u00cd okt\u00f3ber n\u00f3vember 2008 \u00feegar allt hrundi, haf\u00f0i Batter\u00ed\u00f0 ve\u00f0ur af arkitektastofu \u00ed Kanada sem vanta\u00f0i arkitekta. \u201eVi\u00f0 fengum Atla \u00c1smundsson r\u00e6\u00f0ismann \u00cdslands \u00ed Winnipeg \u00ed Kanada \u00e1 fund me\u00f0 okkur. Hann sag\u00f0i okkur fr\u00e1 a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00ed Manitoba en vi\u00f0 spur\u00f0um hvort Kanadamenn v\u00e6ru ekki brj\u00e1la\u00f0ir \u00fat \u00ed okkur eins og allir a\u00f0rir. Hann sag\u00f0i \u00fea\u00f0 af og fr\u00e1, Kanadamenn b\u00e6ru \u00cdslendinga \u00e1 h\u00f6ndum s\u00e9r. \u201eM\u00e9r fannst \u00e9g kominn til himnar\u00edkis \u2013 \u00e1 launum. \u00c9g get lofa\u00f0 ykkur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ekki liti\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 ykkur,\u201c sag\u00f0i hann. <br \/>Fyrir or\u00f0 og me\u00f0 hj\u00e1lp Atla byrju\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 vinna \u00ed Manitoba. Hann reyndist sannsp\u00e1r. Vi\u00f0 \u00fereifu\u00f0um \u00e1 fj\u00f6lm\u00f6rgum stofum og fundum eina sem vildi vinna me\u00f0 okkur \u2013 og smullum algerlega saman. Vi\u00f0 s\u00f3ttum fyrst um og fengum verkefni \u00ed Gimli sem enn er ekki komi\u00f0 \u00e1 framkv\u00e6mdastig en s\u00ed\u00f0an gr\u00ed\u00f0arlega st\u00f3rt verkefni vi\u00f0 Manitoba h\u00e1sk\u00f3la \u00ed Winnipeg sem er n\u00fana \u00ed \u00fatbo\u00f0sferli. \u00deetta er risast\u00f3r \u00ed\u00fer\u00f3ttami\u00f0st\u00f6\u00f0, e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem \u00feeir kalla \u201eActive Living Centre,\u201c me\u00f0 l\u00edkamsr\u00e6ktarst\u00f6\u00f0vum, \u00f3lymp\u00edskri hlaupabraut og \u00f6llum tegundum af s\u00f6lum fyrir boltakeppnir.\u201c<br \/>\u00de\u00f3tt vel hafi gengi\u00f0 a\u00f0 afla verkefna \u00ed Kanada, komust forsvarsmenn Batter\u00edsins a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1 \u00feessum t\u00edma a\u00f0 mun au\u00f0veldara er a\u00f0 vinna \u00e1 Noregs\/Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar marka\u00f0num en \u00e1 Kanadamarka\u00f0i.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n<figure id=\"attachment_154389\" aria-describedby=\"caption-attachment-154389\" style=\"width: 1024px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-154389 size-large\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-batterid-arkitektar-1024x663.jpg\" alt=\"\" width=\"1024\" height=\"663\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-batterid-arkitektar-1024x663.jpg 1024w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-batterid-arkitektar-150x97.jpg 150w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-batterid-arkitektar-300x194.jpg 300w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-batterid-arkitektar-768x497.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-batterid-arkitektar-100x65.jpg 100w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-batterid-arkitektar.jpg 1400w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-154389\" class=\"wp-caption-text\">\u00cd\u00fer\u00f3ttami\u00f0st\u00f6\u00f0 \u00ed Kanada, sem er k\u00f6llu\u00f0 \u201eActive Living Centre,\u201c me\u00f0 l\u00edkamsr\u00e6ktarst\u00f6\u00f0vum, \u00f3lymp\u00edskri hlaupabraut og \u00f6llum tegundum af s\u00f6lum fyrir boltakeppnir.\u201c<\/figcaption><\/figure>\r\n<h5><strong>Brj\u00e1la\u00f0 a\u00f0 gera \u00ed Noregi<\/strong><\/h5>\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00cd Kanda lendum vi\u00f0 \u00ed eil\u00edfu basli me\u00f0 atvinnuleyfi,\u201c segir Sigur\u00f0ur. \u201e\u00cd tengslum vi\u00f0 verkefni \u00fear, h\u00f6fum vi\u00f0 st\u00f6\u00f0ugt f\u00e6rt okkur meira yfir \u00ed a\u00f0 nota neti\u00f0, vinnum \u00ed gegnum internet samskipti og h\u00f6ldum skype-fundi. \u00c1 sama t\u00edma byrju\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 \u00fereifa \u00e1 teiknistofum \u00ed Noregi. \u00dear var svo brj\u00e1la\u00f0 a\u00f0 gera a\u00f0 \u00feeir \u00f3sku\u00f0u eftir a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 hin og \u00feessi verkefni. \u00cd dag erum vi\u00f0 \u00ed samstarfi vi\u00f0 eina st\u00e6rstu teiknistofu \u00ed Noregi, auk tveggja annarra. Auk \u00feess erum vi\u00f0 farnir a\u00f0 vinna beint fyrir verktaka \u00ed Noregi. Fyrsta verkefni\u00f0 var al\u00fatbo\u00f0s-samkeppni \u00e1 \u00edb\u00fa\u00f0ablokkum fyrir \u00feennan verktaka sem vi\u00f0 unnum og s\u00ed\u00f0an h\u00f6fum haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 teikna fyrir hann. Vi\u00f0 h\u00f6fum l\u00edka veri\u00f0 a\u00f0 vinna me\u00f0 teiknistofum \u00ed Bergen. \u00dear unnum vi\u00f0 samkeppni strax eftir hrun og vorum h\u00e1lfna\u00f0ir me\u00f0 a\u00f0 kl\u00e1ra h\u00f6nnunina \u00feegar skipt var um sveitastj\u00f3rn \u00fear, sem h\u00e6tti vi\u00f0 allt saman. \u00deetta gerist alveg eins \u00ed Noregi og \u00e1 \u00cdslandi.\u201c<br \/>\u00de\u00f3tt vissulega s\u00e9 f\u00falt a\u00f0 l\u00e1ta fleygja verkefnum \u00fat af bor\u00f0inu, hefur Sigur\u00f0ur og hans f\u00f3lk ekki skap til a\u00f0 setjast ni\u00f0ur volandi me\u00f0 hendur \u00ed skauti. Batter\u00ed\u00f0 er n\u00fana a\u00f0 hanna \u00ferj\u00e1 leiksk\u00f3la \u00ed \u00der\u00e1ndheimi og hefur opna\u00f0 \u00fatib\u00fa \u00ed Helsingborg \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0. \u201eVi\u00f0 erum a\u00f0 hefja samstarfsverkefni \u00e1 Sk\u00e1ni vegna \u00feess a\u00f0 s\u00e6nski marka\u00f0urinn hefur s\u00edn s\u00e9rkenni. Kanada vinnur \u00e1 einn m\u00e1ta, Noregur \u00e1 annan m\u00e1ta og Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1 \u00feri\u00f0ja m\u00e1tann og Sv\u00edar vilja a\u00f0 fyrirt\u00e6ki\u00f0 hafi s\u00e6nska kennit\u00f6lu.\u201c En hva\u00f0 me\u00f0 Danm\u00f6rku? \u00deegar Sigur\u00f0ur er spur\u00f0ur hvers vegna fyrirt\u00e6ki\u00f0 hafi ekki hasla\u00f0 s\u00e9r v\u00f6ll \u00fear, segir hann: \u201e\u00c9g l\u00e6r\u00f0i \u00ed Danm\u00f6rku og vi\u00f0 \u00feekkjum mj\u00f6g vel danska marka\u00f0inn. \u00dear eru sl\u00edkir h\u00e1kallar, sem reyna allt hva\u00f0 \u00feeir geta til a\u00f0 ryksuga upp Noreg og Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0, a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 fara ekki inn \u00e1 \u00feann marka\u00f0.\u201c<\/p>\r\n<h5><strong>Dav\u00ed\u00f0 fellir Gol\u00edat<\/strong><\/h5>\r\n<p>Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur hefur Batter\u00edinu n\u00fana tekist a\u00f0 fella einn st\u00e6rsta danska risann, BIG, \u00ed samkepppni \u00ed Noregi, auk \u00feess a\u00f0 leggja einnig Sn\u00f8hetta, \u00feekktustu arkitektastofu \u00ed Noregi \u00ed dag sem hanna\u00f0i \u00d3peruh\u00fasi\u00f0 \u00ed Osl\u00f3, a\u00f0 velli. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed segja a\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 hafi enn einu sinni sigra\u00f0 Gol\u00edat. <br \/>Fyrir f\u00e1einum d\u00f6gum var opinberu\u00f0 ni\u00f0ursta\u00f0a \u00far sameppni um h\u00f6nnun hverfismi\u00f0ju \u00ed \u00fathverfi Bergen. \u00dear er \u00e1\u00e6tlun um a\u00f0 hafa sj\u00e1lfb\u00e6ran kjarna me\u00f0 blanda\u00f0ri bygg\u00f0, \u00fea\u00f0 er a\u00f0 segja \u00edb\u00fa\u00f0ir, \u00fej\u00f3nustu og atvinnustarfsemi, 140.000 fermetrar. \u201eVi\u00f0 vorum \u00ed samstarfi vi\u00f0 Link Arkitektur \u00ed Noregi,\u201c segir Sigur\u00f0ur. \u201eSamkeppnin var um skipulagsverkefni og ef vi\u00f0 h\u00f6nnum byggingarnar \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0, \u00fe\u00e1 er \u00feetta me\u00f0 st\u00e6rstu verkefnum sem vi\u00f0 h\u00f6fum fengi\u00f0. \u00c1lveri\u00f0 \u00ed Rey\u00f0arfir\u00f0i og Harpa hafa hinga\u00f0 til veri\u00f0 st\u00e6rstu verkefnin okkar.<\/p>\r\n<p><br \/>\u00deegar ma\u00f0ur byrjar a\u00f0 keppa vi\u00f0 \u00feessi n\u00f6fn, sem eru me\u00f0 g\u00edfurlega samkeppnisreynslu, me\u00f0 mikla reynslubolta \u00ed samkeppnisteymi s\u00ednu \u2013 og vinninga \u00ed r\u00f6\u00f0um, \u00fe\u00e1 fallast manni n\u00e6stum hendur. En svo segir ma\u00f0ur bara: \u00deetta sn\u00fdst allt um g\u00f3\u00f0a hugmynd og vi\u00f0 duttum ni\u00f0ur \u00e1 r\u00e9ttu hugmyndina og g\u00f3\u00f0a \u00fatf\u00e6rslu.\u201c<\/p>\r\n<figure id=\"attachment_154317\" aria-describedby=\"caption-attachment-154317\" style=\"width: 1024px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-154317 size-large\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-einarsson-battterid14-1024x683.jpg\" alt=\"\" width=\"1024\" height=\"683\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-einarsson-battterid14-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-einarsson-battterid14-150x100.jpg 150w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-einarsson-battterid14-300x200.jpg 300w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-einarsson-battterid14-768x512.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-einarsson-battterid14-360x240.jpg 360w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/sigurdur-einarsson-battterid14.jpg 1400w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-154317\" class=\"wp-caption-text\">Sigur\u00f0ur Einarsson arkitekt<\/figcaption><\/figure>\r\n<h5><br \/><strong>S\u00f3knarf\u00e6ri \u00e1 krepput\u00edmum<\/strong><\/h5>\r\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6fum alla t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 mj\u00f6g t\u00e6kniv\u00e6dd. Allt sem vi\u00f0 h\u00f6fum gert fr\u00e1 1990 hefur veri\u00f0 t\u00f6lvuv\u00e6tt og vi\u00f0 h\u00f6fum lagt okkur fram um a\u00f0 tileinka okkur n\u00fdja t\u00f6lvut\u00e6kni.\u201cAuk \u00feess a\u00f0 fara \u00ed marka\u00f0s\u00f6flun erlendis notu\u00f0u starfsmenn Battar\u00edsins t\u00edmann eftir hrun til a\u00f0 byggja upp mj\u00f6g g\u00f3\u00f0a BIM-kunn\u00e1ttu (Building Information Modelling) \u00ed fyrirt\u00e6kinu og vinna \u00f6ll s\u00edn verkefni \u00ed sl\u00edku \u00fer\u00edv\u00edddaruppl\u00fdsingal\u00edkani \u00ed dag. \u201eSamt\u00edmis \u00fev\u00ed h\u00f6fum vi\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 byggja upp g\u00e6\u00f0akerfi \u00ed fyrirt\u00e6kinu,\u201c segir Sigur\u00f0ur. \u201eSt\u00f3r hluti af okkar verkefna\u00f6flun er a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed forv\u00f6lum og \u00fear skiptir m\u00e1li a\u00f0 fyrirt\u00e6ki s\u00e9 me\u00f0 votta\u00f0 g\u00e6\u00f0akerfi. Vi\u00f0 fengum vottun \u00e1 okkar kerfi \u00ed fyrra. Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00fev\u00ed veri\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed \u00e1r. \u00cd beinu framhaldi erum vi\u00f0 n\u00fa a\u00f0 f\u00e1 umhverfisvottun og erum a\u00f0 einbeita okkur meira a\u00f0 umhverfism\u00e1lum. Sem li\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed var m\u00e9r bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 vera me\u00f0 \u00ed verkefni \u00e1 vegum Norr\u00e6nu r\u00e1\u00f0herranefndarinnar, undir l\u00f3g\u00f3inu Nordic Built og var \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00f3ta \u00feann s\u00e1ttm\u00e1la, b\u00e6\u00f0i \u00e1 upphafsfundi og \u00ed ritnefnd landanna sem \u00fer\u00f3u\u00f0u s\u00e1ttm\u00e1lann.\u201c Sigur\u00f0ur er einn af sendiherrum verkefnisins \u00e1 \u00cdslandi, en verkefninu er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sem flestir byggingara\u00f0ilar, verktakar og sveitarf\u00e9l\u00f6g vinni eftir \u00feessum s\u00e1ttm\u00e1la. Li\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed er a\u00f0 Batter\u00edi\u00f0 vinni mj\u00f6g me\u00f0vita\u00f0 me\u00f0 umhverfism\u00e1l \u00ed allri h\u00f6nnuninni.<\/p>\r\n<p><br \/>\u00der\u00e1tt fyrir allt hefur \u00feessi krepput\u00edmi veri\u00f0 \u00e1hugaver\u00f0ur og spennandi a\u00f0 mati Sigur\u00f0ar. \u201eLaunakj\u00f6rin hafa veri\u00f0 b\u00e1g. Vi\u00f0 eyddum upp \u00f6llu eigin f\u00e9 \u00ed marka\u00f0ssetningu \u00e1ri\u00f0 2009 \u2013 en teljum okkur komin fyrir horn \u00ed dag. Vi\u00f0 brenndum upp allt sem vi\u00f0 \u00e1ttum til a\u00f0 geta s\u00f6\u00f0la\u00f0 um og \u00ed dag eru verkefni erlendis um \u00e1ttat\u00eduogfimm pr\u00f3sent af okkar veltu. Sumari\u00f0 2008 vorum vi\u00f0 me\u00f0 35 manns \u00ed vinnu, f\u00f3rum alveg ni\u00f0ur \u00ed \u00e1tta \u00feegar f\u00e6st var 2009. N\u00fana erum vi\u00f0 me\u00f0 25-30 manns \u00ed vinnu.<\/p>\r\n<h5><br \/><strong>S\u00edhar\u00f0nandi kr\u00f6fur<\/strong><\/h5>\r\n<p>\u201eFyrirt\u00e6ki\u00f0 b\u00fdr yfir mikilli breidd. Vi\u00f0 h\u00f6nnu\u00f0um H\u00f6rpuna sem er menningarbygging og vi\u00f0 h\u00f6fum l\u00edka teikna\u00f0 i\u00f0na\u00f0arbyggingar, til d\u00e6mis, \u00c1lveri\u00f0 \u00e1 Rey\u00f0arfir\u00f0i. Vi\u00f0 h\u00f6fum lagt \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 s\u00e9r\u00feekkingu okkar \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i. Vi\u00f0 h\u00f6fum veri\u00f0 a\u00f0 s\u00fdna \u00feessa breidd okkar \u00ed samstarfi Tark og Landslags undir d\u00f3tturfyrirt\u00e6kinu TBL Architects og h\u00f6fum veri\u00f0 a\u00f0 vinna allt fr\u00e1 i\u00f0na\u00f0arbyggingum til h\u00e1t\u00e6knisp\u00edtala, me\u00f0al annars \u00ed Bandar\u00edkjunum, me\u00f0 g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri. \u00cd framhaldi af opinni samkeppni \u00ed Kaliforn\u00edu, \u00fear sem vi\u00f0 n\u00e1\u00f0um inn \u00ed sex-tillagna \u00fartak af yfir hunda\u00f0 till\u00f6gum, var \u00f3ska\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 t\u00e6kjum \u00fe\u00e1tt \u00ed forvali \u00ed Halifax \u00e1 st\u00f3rum h\u00e1t\u00e6knisj\u00fakrah\u00fasi sem \u00e1 a\u00f0 reisa \u00fear. Vi\u00f0 erum n\u00fdb\u00fain a\u00f0 senda okkar g\u00f6gn til Halifax. En Batter\u00edi\u00f0 hefur s\u00e9rst\u00f6\u00f0u \u00e1 fleiri svi\u00f0um. \u00c1 10. \u00e1ratugnum vann stofan handb\u00f3kina \u201eA\u00f0gengi fyrir alla,\u201c auk \u00feess a\u00f0 vinna ranns\u00f3knarverkefni sem f\u00e9kk heiti\u00f0 \u201eGj\u00f3la.\u201c \u00dea\u00f0 verkefni gekk \u00fat \u00e1 a\u00f0 rannsaka \u00e1hrif ver\u00f0urfars \u00e1 byggingar og skipulag \u00e1 \u00cdslandi. \u201eVi\u00f0 komum okkur upp vindhermi sem vi\u00f0 getum nota\u00f0 til a\u00f0 herma \u00ed l\u00edk\u00f6num \u00e1hrif og heg\u00f0un vinds \u00ed kringum byggingar. \u00deessa vindviftu h\u00f6fum vi\u00f0 nota\u00f0 \u00ed ger\u00f0 okkar eigin bygginga, auk \u00feess a\u00f0 gera sk\u00fdrslur og \u00fattektir fyrir a\u00f0ra. N\u00fana erum vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e6ra \u00feetta inn \u00ed t\u00f6lvuforrit,\u201c segir Sigur\u00f0ur.<\/p>\r\n<p><br \/>\u00d6ryggism\u00e1l \u00ed byggingum eru n\u00fdjasta s\u00e9rsta\u00f0an sem Batter\u00edi\u00f0 er a\u00f0 tileinka s\u00e9r. \u201eVi\u00f0 erum a\u00f0 vinna mj\u00f6g markvisst me\u00f0 \u00f6ryggi, b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 byggingu og rekstur \u00feeirra bygginga sem vi\u00f0 h\u00f6nnum. Menn eru s\u00edfellt a\u00f0 gera r\u00edkari kr\u00f6fur til okkar h\u00f6nnu\u00f0a um a\u00f0 uppfylla \u00e1kve\u00f0in skilyr\u00f0i um \u00fea\u00f0 sem er kalla\u00f0 \u201eHealth and Safety\u201c sem hluta af h\u00f6nnuninni \u2013 og \u00fe\u00e1 er bara a\u00f0 m\u00e6ta \u00feeim kr\u00f6fum.<\/p>\r\n<p><a href=\"http:\/\/www.arkitekt.is\">www.arkitekt.is<\/a><\/p>\r\n<p>( \u00deetta vi\u00f0tal var teki\u00f0 2012 fyrir Land og s\u00f6gu af S\u00fassana Svavarsd\u00f3ttir.)<\/p>\r\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Arkitektastofan Batter\u00edi\u00f0 sneri v\u00f6rn \u00ed s\u00f3kn \u00feegar kreppan skall \u00e1 og sigra\u00f0i \u00e1 d\u00f6gunum tvo norr\u00e6na risa \u00ed samkeppni um hverfiskjarna \u00ed Bergen Strax eftir hrun settum vi\u00f0 fram \u00feessa spurningu: Anna\u00f0 hvort ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera einhvers sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar, e\u00f0a vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 gera eitthva\u00f0 anna\u00f0 en vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera. Vi\u00f0 getum ekki veri\u00f0 \u00ed bygginga- og skipulagsh\u00f6nnun \u00e1 \u00cdslandi vegna \u00feess a\u00f0 h\u00e9r er enginn marka\u00f0ur fyrir \u00fea\u00f0. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":101,"featured_media":154384,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[1184,1088,1185,1096,10324],"tags":[3218,14395,14394,2445],"class_list":["post-153766","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-220-is","category-greinar","category-hafnarfjordur-is","category-hofudborgarsvaedid","category-zipcodes-is","tag-arkitektar","tag-batteriid","tag-sigurdur-einarsson","tag-skipulagsmal"],"acf":[],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.8 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd - Icelandic Times<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd - Icelandic Times\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Arkitektastofan Batter\u00edi\u00f0 sneri v\u00f6rn \u00ed s\u00f3kn \u00feegar kreppan skall \u00e1 og sigra\u00f0i \u00e1 d\u00f6gunum tvo norr\u00e6na risa \u00ed samkeppni um hverfiskjarna \u00ed Bergen Strax eftir hrun settum vi\u00f0 fram \u00feessa spurningu: Anna\u00f0 hvort ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera einhvers sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar, e\u00f0a vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 gera eitthva\u00f0 anna\u00f0 en vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera. Vi\u00f0 getum ekki veri\u00f0 \u00ed bygginga- og skipulagsh\u00f6nnun \u00e1 \u00cdslandi vegna \u00feess a\u00f0 h\u00e9r er enginn marka\u00f0ur fyrir \u00fea\u00f0. [&hellip;]\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Icelandic Times\" \/>\n<meta property=\"article:publisher\" content=\"https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2018-09-20T13:23:41+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2024-04-24T02:21:52+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/batterid-arkitektar.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"1400\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"884\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:creator\" content=\"@IcelandicTimes\" \/>\n<meta name=\"twitter:site\" content=\"@IcelandicTimes\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"8 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/62ca47c64a1cc288dd682bda9671a180\"},\"headline\":\"Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd\",\"datePublished\":\"2018-09-20T13:23:41+00:00\",\"dateModified\":\"2024-04-24T02:21:52+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/\"},\"wordCount\":1833,\"publisher\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2018\\\/09\\\/batterid-arkitektar.jpg\",\"keywords\":[\"Arkitektar\",\"Batter\u00edi\u00f0\",\"Sigur\u00f0ur Einarsson\",\"Skipulagsm\u00e1l\"],\"articleSection\":[\"220\",\"Greinar\",\"Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur\",\"H\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0\",\"ZIP CODES\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/\",\"name\":\"Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd - Icelandic Times\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2018\\\/09\\\/batterid-arkitektar.jpg\",\"datePublished\":\"2018-09-20T13:23:41+00:00\",\"dateModified\":\"2024-04-24T02:21:52+00:00\",\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2018\\\/09\\\/batterid-arkitektar.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2018\\\/09\\\/batterid-arkitektar.jpg\",\"width\":1400,\"height\":884},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/\",\"name\":\"Icelandictimes.com\",\"description\":\"Tourism, Culture and Business\",\"publisher\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\"},\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Organization\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\",\"name\":\"Icelandictimes.com\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/\",\"logo\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/logo\\\/image\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2014\\\/07\\\/unnamed.png\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2014\\\/07\\\/unnamed.png\",\"width\":650,\"height\":57,\"caption\":\"Icelandictimes.com\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/logo\\\/image\\\/\"},\"sameAs\":[\"https:\\\/\\\/www.facebook.com\\\/IcelandicTimes\",\"https:\\\/\\\/x.com\\\/IcelandicTimes\",\"https:\\\/\\\/www.instagram.com\\\/icelandictimes\\\/\",\"https:\\\/\\\/www.youtube.com\\\/@icelandictimes\"]},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/62ca47c64a1cc288dd682bda9671a180\",\"name\":\"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/ee241a77c63733efb57b9234ad406ca2d0893e1141f25befdf488a0bb9c5390c?s=96&d=mm&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/ee241a77c63733efb57b9234ad406ca2d0893e1141f25befdf488a0bb9c5390c?s=96&d=mm&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/ee241a77c63733efb57b9234ad406ca2d0893e1141f25befdf488a0bb9c5390c?s=96&d=mm&r=g\",\"caption\":\"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir\"},\"description\":\"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir has been working as a writer, journalist and a translator for 35 years. She has written for newspapers and magazines, worked in television and radio and her specialty is arts &amp; culture, as well as tourism. Susanna has translated a vast number of books from English and Norwegian to Icelandic, and worked as a translator and language assessor for the aviation field in Iceland for a number of years. She writes in English as well as Icelandic.\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/author\\\/susanna\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd - Icelandic Times","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd - Icelandic Times","og_description":"Arkitektastofan Batter\u00edi\u00f0 sneri v\u00f6rn \u00ed s\u00f3kn \u00feegar kreppan skall \u00e1 og sigra\u00f0i \u00e1 d\u00f6gunum tvo norr\u00e6na risa \u00ed samkeppni um hverfiskjarna \u00ed Bergen Strax eftir hrun settum vi\u00f0 fram \u00feessa spurningu: Anna\u00f0 hvort ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera einhvers sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar, e\u00f0a vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 gera eitthva\u00f0 anna\u00f0 en vi\u00f0 erum v\u00f6n a\u00f0 gera. Vi\u00f0 getum ekki veri\u00f0 \u00ed bygginga- og skipulagsh\u00f6nnun \u00e1 \u00cdslandi vegna \u00feess a\u00f0 h\u00e9r er enginn marka\u00f0ur fyrir \u00fea\u00f0. [&hellip;]","og_url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/","og_site_name":"Icelandic Times","article_publisher":"https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes","article_published_time":"2018-09-20T13:23:41+00:00","article_modified_time":"2024-04-24T02:21:52+00:00","og_image":[{"width":1400,"height":884,"url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/batterid-arkitektar.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_creator":"@IcelandicTimes","twitter_site":"@IcelandicTimes","twitter_misc":{"Written by":"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir","Est. reading time":"8 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/"},"author":{"name":"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/person\/62ca47c64a1cc288dd682bda9671a180"},"headline":"Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd","datePublished":"2018-09-20T13:23:41+00:00","dateModified":"2024-04-24T02:21:52+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/"},"wordCount":1833,"publisher":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/batterid-arkitektar.jpg","keywords":["Arkitektar","Batter\u00edi\u00f0","Sigur\u00f0ur Einarsson","Skipulagsm\u00e1l"],"articleSection":["220","Greinar","Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur","H\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0","ZIP CODES"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/","name":"Allt veltur \u00e1 g\u00f3\u00f0ri hugmynd - Icelandic Times","isPartOf":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/batterid-arkitektar.jpg","datePublished":"2018-09-20T13:23:41+00:00","dateModified":"2024-04-24T02:21:52+00:00","inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/allt-veltur-a-godri-hugmynd\/#primaryimage","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/batterid-arkitektar.jpg","contentUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2018\/09\/batterid-arkitektar.jpg","width":1400,"height":884},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#website","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/","name":"Icelandictimes.com","description":"Tourism, Culture and Business","publisher":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization"},"potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Organization","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization","name":"Icelandictimes.com","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/","logo":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/logo\/image\/","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/unnamed.png","contentUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/unnamed.png","width":650,"height":57,"caption":"Icelandictimes.com"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/logo\/image\/"},"sameAs":["https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes","https:\/\/x.com\/IcelandicTimes","https:\/\/www.instagram.com\/icelandictimes\/","https:\/\/www.youtube.com\/@icelandictimes"]},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/person\/62ca47c64a1cc288dd682bda9671a180","name":"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/ee241a77c63733efb57b9234ad406ca2d0893e1141f25befdf488a0bb9c5390c?s=96&d=mm&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/ee241a77c63733efb57b9234ad406ca2d0893e1141f25befdf488a0bb9c5390c?s=96&d=mm&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/ee241a77c63733efb57b9234ad406ca2d0893e1141f25befdf488a0bb9c5390c?s=96&d=mm&r=g","caption":"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir"},"description":"S\u00fasanna Svavarsd\u00f3ttir has been working as a writer, journalist and a translator for 35 years. She has written for newspapers and magazines, worked in television and radio and her specialty is arts &amp; culture, as well as tourism. Susanna has translated a vast number of books from English and Norwegian to Icelandic, and worked as a translator and language assessor for the aviation field in Iceland for a number of years. She writes in English as well as Icelandic.","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/author\/susanna\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/153766","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/101"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=153766"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/153766\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/154384"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=153766"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=153766"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=153766"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}