{"id":202587,"date":"2021-11-17T14:22:54","date_gmt":"2021-11-17T14:22:54","guid":{"rendered":"https:\/\/icelandictimes.com\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/"},"modified":"2024-04-25T23:13:05","modified_gmt":"2024-04-25T23:13:05","slug":"the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/","title":{"rendered":"VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP"},"content":{"rendered":"<p>\u00deorsteinn \u00c1sgeirsson p\u00edpari hefur fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0 \u00ed sext\u00edu \u00e1r. Hann gagnr\u00fdnir har\u00f0lega \u00e1form um r\u00edkisv\u00e6\u00f0ingu h\u00e1lendisins og telur sveitarf\u00e9l\u00f6g miklu betur \u00ed stakk b\u00fain a\u00f0 vernda og annast um h\u00e1lendi\u00f0<\/p>\n<p>\u00deorsteinn \u00c1sgeirsson [1950] var ellefu \u00e1ra gamall \u00feegar hann h\u00f3f a\u00f0 fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0. N\u00fa eru sl\u00e9tt sext\u00edu \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann h\u00f3f \u00e6vint\u00fdrafer\u00f0ir s\u00ednar. \u00deorsteinn sem er me\u00f0 listamannsnafni\u00f0 Steinip\u00edp haf\u00f0i besta m\u00f6gulega kennara, sj\u00e1lfa go\u00f0s\u00f6gnina Gu\u00f0mund J\u00f3nasson [1909-1985] b\u00edlstj\u00f3ra og frumkv\u00f6\u00f0ul \u00ed k\u00f6nnun h\u00e1lendisins. Gu\u00f0mundur J\u00f3nasson var fr\u00e1 M\u00fala \u00ed H\u00fanavatnss\u00fdslu og eigna\u00f0ist sinn fyrsta b\u00edl 1929. \u00deorsteinn drakk \u00ed sig fr\u00f3\u00f0leik; s\u00f6gur um land og f\u00f3lk. Ungur keypti Steinip\u00edp s\u00edna fyrstu myndav\u00e9l og h\u00f3f a\u00f0 mynda h\u00e1lendi\u00f0.<\/p>\n<figure id=\"attachment_201741\" aria-describedby=\"caption-attachment-201741\" style=\"width: 1000px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201741 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/103892.jpg\" alt=\"\" width=\"1000\" height=\"477\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/103892.jpg 1000w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/103892-768x366.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1000px) 100vw, 1000px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201741\" class=\"wp-caption-text\">\u00deorsteinn \u00c1sgeirsson AKA Steinip\u00edp<\/figcaption><\/figure>\n<p>Ein fyrsta fer\u00f0 Steinap\u00edp me\u00f0 Gumundi var til Landmannalauga. Hann hlusta\u00f0i \u00e1 Gu\u00f0mund l\u00fdsa \u00fev\u00ed hvernig fyrstu kynsl\u00f3\u00f0ir landn\u00e1msmanna h\u00f6f\u00f0u fari\u00f0 til fjalla a\u00f0 smala f\u00e9 og hittust \u00ed Landmannalaugum. \u00deeir f\u00f3ru a\u00f0 Hattveri \u00ed J\u00f6kulgili dj\u00fapt inn \u00ed Landmannalaugum, \u00fear sem Torfi r\u00edki J\u00f3nsson fr\u00e1 Klofi \u00ed Landsveit haf\u00f0i leita\u00f0 skj\u00f3ls fr\u00e1 Pl\u00e1gunni seint \u00e1 15. \u00f6ld. Skammt fr\u00e1 er Frostasta\u00f0avatn \u00fear sem svo seint sem um mi\u00f0ja 19. \u00f6ld gagnamenn h\u00f6f\u00f0u vara \u00e1 gagnvart \u00fatilegum\u00f6nnum sem sagt var a\u00f0 hef\u00f0ust vi\u00f0 \u00e1 h\u00e1lendinu.<\/p>\n<figure id=\"attachment_201715\" aria-describedby=\"caption-attachment-201715\" style=\"width: 2048px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201715 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20211009-DJI_0830-done-2.jpg\" alt=\"\" width=\"2048\" height=\"1081\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20211009-DJI_0830-done-2.jpg 2048w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20211009-DJI_0830-done-2-768x405.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20211009-DJI_0830-done-2-1536x811.jpg 1536w\" sizes=\"(max-width: 2048px) 100vw, 2048px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201715\" class=\"wp-caption-text\">Gaman er a\u00f0 fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0, sko\u00f0a \u00fea\u00f0 og kynnast s\u00f6gu \u00feess \u00f6rl\u00edti\u00f0 betur. Allir vegasl\u00f3\u00f0ar \u00e6ttu a\u00f0 vera var\u00f0veittir og nota\u00f0ir, \u00feeir eru or\u00f0nir minjar og hafa miki\u00f0 menningarlegt gildi. S\u00f6gusagnir fr\u00e1 aldam\u00f3tunum 1900 segja a\u00f0 Landmenn og Skaftfellingar hafi elda\u00f0 gr\u00e1tt silfur saman. T\u00f6ldu \u00feeir hvor a\u00f0ra vera \u00fatilegumenn ef \u00feeir s\u00e1ust \u00ed Vei\u00f0iv\u00f6tnum og kom fyrir a\u00f0 menn b\u00f6r\u00f0ust, jafnvel me\u00f0 byssum. Mig grunar \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00feeir hafi a\u00f0eins veri\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja s\u00e9r silung \u00ed \u201eV\u00f6tnin\u201c. \u00datilegumannatr\u00fain var sterk \u00e1 \u00feessum t\u00edma og ef menn s\u00e1ust \u00e1 h\u00e1lendinu var yfirleitt \u00e1liti\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0komandi v\u00e6ri anna\u00f0hvort sau\u00f0a\u00fej\u00f3fur e\u00f0a \u00fatileguma\u00f0ur. \u00cd dag eru \u00feeir kalla\u00f0ir utanvegaaksturs-skussar.<\/figcaption><\/figure>\n<h3>Neil Armstron &amp; Edmund Hillary<\/h3>\n<p>NASA valdi \u00cdsland til a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa geimfarana svo \u00feeir kynntust landslagi sem l\u00edktist tunglinu. \u00deeir lentu \u00e1 tunglinu \u00ed j\u00fal\u00ed 1969. \u00dea\u00f0 var \u00fe\u00e1 sem Neil Armstrong [1930-2012] m\u00e6lti hin fleygu or\u00f0: \u201eL\u00edti\u00f0 skref fyrir mann en risaskref fyrir mannkyn.\u201c \u00deeir voru h\u00e9r sumari\u00f0 1965. Gu\u00f0mundur J\u00f3nasson var valinn til \u00feess a\u00f0 fara me\u00f0 \u00fe\u00e1 um h\u00e1lendi\u00f0, \u00fear \u00e1 me\u00f0al til \u00d6skju. \u00deegar Edmund Hillary [1919-2008] heims\u00f3tti \u00cdsland \u00e1ri\u00f0 1954, \u00fe\u00e1 var Gu\u00f0mundur fenginn til a\u00f0 s\u00fdna sir Edmund h\u00e1lendi\u00f0, en hann haf\u00f0i klifi\u00f0 Everest \u00e1ri\u00f0 \u00e1\u00f0ur 1953. Sl\u00edk var vir\u00f0ingin sem borin var fyrir Gu\u00f0mundi, a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3tti sj\u00e1lfsagt a\u00f0 hann og enginn annar s\u00fdndi \u00feessum h\u00f6f\u00f0ingjum d\u00fdr\u00f0 h\u00e1lendisins.<\/p>\n<figure id=\"attachment_201730\" aria-describedby=\"caption-attachment-201730\" style=\"width: 800px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201730 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20872.jpg\" alt=\"\" width=\"800\" height=\"453\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20872.jpg 800w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20872-768x435.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 800px) 100vw, 800px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201730\" class=\"wp-caption-text\">Fr\u00e1 uppt\u00f6kum Bl\u00e1kv\u00edslar er \u00e1fram haldi\u00f0 \u00e1 \u00d6ldufellslei\u00f0. \u00dear komum vi\u00f0 a\u00f0 Bl\u00e1kv\u00edslarfoss \u00fear sem fari\u00f0 er yfi r \u00e1 fossbr\u00faninni. Ef ma\u00f0ur er a\u00f0 keyra \u00ed \u00e1tt a\u00f0 M\u00fdrdal er fari\u00f0 ni\u00f0ur sm\u00e1spotta sem beygir ni\u00f0ur fyrir \u00e1nna. \u00dea\u00f0 m\u00e1 eiginlega ekki sleppa \u00feessum spotta \u00fev\u00ed fossinn er einstaklega fallegur og vatni\u00f0 kalt og brag\u00f0gott. Sumir segja \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 landabrag\u00f0 af vatninu fr\u00e1 fyrri t\u00edmum. \u00deegar fer\u00f0alangar eru b\u00fanir a\u00f0 nj\u00f3ta fegur\u00f0ar fossins er keyrt \u00e1fram \u00e1 bjargbr\u00faninni. A\u00f0eins ne\u00f0ar er h\u00e6gt a\u00f0 sko\u00f0a Hafursey og jafnvel aka hringinn \u00ed kringum hana. \u00c1 svipu\u00f0um sl\u00f3\u00f0um er \u00deakgil sem m\u00e1 ekki sleppa.<\/figcaption><\/figure>\n<h3>K\u00fdldi Gu\u00f0mund \u00e1 nefi\u00f0<\/h3>\n<p>\u201e\u00c9g l\u00e6r\u00f0i miki\u00f0 af Gu\u00f0mundi. Oft hef \u00e9g velt fyrir m\u00e9r hvers vegna vi\u00f0 ur\u00f0um svo g\u00f3\u00f0ir vinir sem raun bar. \u00c9g sem unglingur og Gu\u00f0mundur \u00fej\u00f3\u00f0sagnapers\u00f3na. Hann t\u00f3k mig eitt sinn upp \u00e1 eyrunum. \u00dea\u00f0 var ekki \u00f3algengt \u00ed \u00fe\u00e1 t\u00ed\u00f0 a\u00f0 fullor\u00f0nir t\u00e6kju b\u00f6rn upp \u00e1 eyrunum. \u00c9g var t\u00f3lf \u00e1ra og s\u00e1rsaukinn var mikill svo \u00e9g k\u00fdldi hann beint \u00e1 nefi\u00f0. Vin\u00e1tta okkar \u00f3x vi\u00f0 \u00feetta atvik, svo merkilegt sem \u00fea\u00f0 er,\u201c segir Steinip\u00edp g\u00f3\u00f0l\u00e1tlega \u00ed samtali vi\u00f0 Land &amp; s\u00f6gu. \u201eMikilfengleiki og frelsi dr\u00f3gu mig aftur og aftur upp \u00e1 h\u00e1lendi\u00f0. \u00c9g var\u00f0 svo p\u00edpulagningama\u00f0ur og var\u00f0 Steinip\u00edp sem svo var\u00f0 listamannsnafn mitt,\u201c segir hann. Steinip\u00edp er \u00f3s\u00e1ttur vi\u00f0 r\u00edkisv\u00e6\u00f0ingu h\u00e1lendisins og finnst sem sv\u00f6rt sk\u00fd s\u00e9u vi\u00f0 sj\u00f3ndeildarhring \u00fear sem stj\u00f3rnlyndir b\u00far\u00f3kratar muni taka \u00fea\u00f0 yfir og svipta f\u00f3lk frelsinu. Fagurgali \u00feeirra og \u00feeirra l\u00edkra hylji raunverulegan \u00e1setning sem er a\u00f0 taka yfir allt sem f\u00f3lki er k\u00e6rt.<\/p>\n<figure id=\"attachment_201710\" aria-describedby=\"caption-attachment-201710\" style=\"width: 2048px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201710 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0204-2.jpg\" alt=\"\" width=\"2048\" height=\"1364\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0204-2.jpg 2048w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0204-2-768x512.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0204-2-1536x1023.jpg 1536w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0204-2-360x240.jpg 360w\" sizes=\"(max-width: 2048px) 100vw, 2048px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201710\" class=\"wp-caption-text\">\u00dea\u00f0 er \u00e1kve\u00f0in upplifun a\u00f0 fara \u00d6ldudalslei\u00f0 sem er algj\u00f6rt augnakonfekt, en vi\u00f0l\u00edka upplifun er bara h\u00e6gt a\u00f0 fi nna \u00e1 h\u00e1lendinu. Botnj\u00f6kull er til h\u00e6gri \u00ed myndinni. \u00d6ldufell er \u00e1 mi\u00f0ri mynd og fremst fyrir mi\u00f0ju eru uppt\u00f6k Bl\u00e1fj allakv\u00edslar, Bl\u00e1fj \u00f6ll til vinstri. Torfaj\u00f6kull er a\u00f0eins nor\u00f0ar, en \u00feessi sta\u00f0ur tengist Torfa nokku\u00f0. Sagt er a\u00f0 hann hafi fari\u00f0 \u00fearna um me\u00f0 st\u00falku sem hann nam \u00e1 brott. Fr\u00e6ndi hennar veitti honum eftir f\u00f6r og er sagt a\u00f0 Torfi hafi ekki \u00e1tt annarra kosta v\u00f6l en a\u00f0 st\u00f6kkva yfi r \u00ferengsta hluta glj\u00fafursins til a\u00f0 komast undan, sem t\u00f3kst. Fr\u00e6nda st\u00falkunnar t\u00f3kst \u00fe\u00f3 ekki st\u00f6kki\u00f0 og h\u00e9kk \u00e1 l\u00edtilli hr\u00edslu \u00e1 bl\u00e1br\u00faninni. St\u00falkan ba\u00f0 Torfa a\u00f0 h\u00f6ggva \u00e1 hr\u00edsluna en hann \u00e1kva\u00f0 frekar a\u00f0 bjarga manninum. \u00deeir s\u00e6ttust \u00fe\u00e1 helium s\u00e1ttum og Torfi f\u00e9kk st\u00falkuna s\u00edna. \u00d6rnefni sem s\u00f6g\u00f0 eru nefnd eftir t\u00e9\u00f0um Torfa eru: Torfaj\u00f6kull, Torfatindur, Torfm\u00fdri, Torfafi t og Torfavatn. Blesam\u00fdri og Faxi eru s\u00f6g\u00f0 nefnd eftir hestum hans.<\/figcaption><\/figure>\n<h3>H\u00e1lendis\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0ur<\/h3>\n<p>R\u00edkisstj\u00f3rn Katr\u00ednar Jakobsd\u00f3ttur 2017-2001 var ger\u00f0 afturreka me\u00f0 h\u00e1lendis\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0 og kom l\u00f6gunum ekki \u00ed gegn um \u00feingi\u00f0: sagt er a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi a\u00f0 vernda h\u00e1lendi\u00f0 og d\u00fdral\u00edf \u00ed \u00fe\u00e1gu f\u00f3lks; fri\u00f0land fyrir \u00fe\u00e1 sem vilji nj\u00f3ta n\u00e1tt\u00farunnar. M\u00f6rgum finnst \u00feetta marklaus fagurgali. \u00deeirra \u00e1 me\u00f0al er Steinip\u00edp. \u00dej\u00f3\u00f0gar\u00f0ur hefur veri\u00f0 hug\u00f0arefni Vg og \u00feeir sem hafa andm\u00e6lt kalla\u00f0ir \u201e\u00f6rl\u00edtill grenjandi minnihluti\u201c af Steingr\u00edmi J. Sigf\u00fassyni. \u00deeir sem fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0 og upplifa frelsi \u00feess hafa andm\u00e6lt \u00feessum b\u00far\u00f3krat\u00edsku \u00e1formum. \u00deeir m\u00f3tm\u00e6lta r\u00edkisv\u00e6\u00f0ingu h\u00e1lendsins og ofr\u00edki stj\u00f3rlyndra landvar\u00f0a. Ofr\u00edki margra s\u00e9 \u00feegar til vandr\u00e6\u00f0a og vont muni bara versna.<\/p>\n<figure id=\"attachment_201720\" aria-describedby=\"caption-attachment-201720\" style=\"width: 2048px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201720 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200823.4-DJI_0212-2.jpg\" alt=\"\" width=\"2048\" height=\"1364\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200823.4-DJI_0212-2.jpg 2048w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200823.4-DJI_0212-2-768x512.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200823.4-DJI_0212-2-1536x1023.jpg 1536w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200823.4-DJI_0212-2-360x240.jpg 360w\" sizes=\"(max-width: 2048px) 100vw, 2048px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201720\" class=\"wp-caption-text\">M\u00e6lifell \u00e1 M\u00e6lifellssandi er \u00e1 mi\u00f0ri mynd. M\u00e6lifell er gott kennileiti og s\u00e9st v\u00ed\u00f0a a\u00f0. R\u00e9tt vi\u00f0 felli\u00f0 er kv\u00edsl sem heitir Brenniv\u00ednskv\u00edsl. Nafn hennar \u00feykir \u00e6ri\u00f0 n\u00f3g tilefni til a\u00f0 snafsa sig r\u00e6kilega \u00e1 me\u00f0an l\u00fain bein eru hv\u00edld fyrir \u00e1framhaldandi fer\u00f0alag. Um nafn kv\u00edslarinnar segir a\u00f0 \u00deorl\u00e1kur biskup hafi \u00e1tt \u00fear lei\u00f0 um me\u00f0 f\u00f6runeyti. \u00deegar komi\u00f0 var a\u00f0 kv\u00edslinni f\u00f3ru menn af baki en \u00deorl\u00e1kur hafi \u00fe\u00e1 teki\u00f0 upp l\u00edtinn pela me\u00f0 brenniv\u00edni og sagt: \u201e\u00dei\u00f0 sj\u00e1i\u00f0 \u00fea\u00f0, piltar, a\u00f0 ekki drepur v\u00edni\u00f0 okkur \u00e1 fj allinu.\u201c Drukku \u00feeir svo allir \u00far pelanum. M\u00e6lifellssandur er talinn illur yfirfer\u00f0ar fyrri hluta sumars s\u00f6kum bleytu og er varla f\u00e6r fyrr en um mi\u00f0ja j\u00fal\u00edm\u00e1nu\u00f0. \u00c9g var \u00fearna \u00e1 fer\u00f0 me\u00f0 vinum m\u00ednum \u00ed afar g\u00f3\u00f0u ve\u00f0ri og f\u00e6r\u00f0in hin \u00e1kj\u00f3sanlegasta. Vi\u00f0 l\u00e9tum okkur \u00fe\u00f3 n\u00e6gja kaffi sopi og skemmtilegt spjall \u00feegar vi\u00f0 komum a\u00f0 Brenniv\u00ednskv\u00edsl.<\/figcaption><\/figure>\n<figure id=\"attachment_201735\" aria-describedby=\"caption-attachment-201735\" style=\"width: 1310px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201735 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20647.jpg\" alt=\"\" width=\"1310\" height=\"874\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20647.jpg 1310w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20647-768x512.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20647-360x240.jpg 360w\" sizes=\"(max-width: 1310px) 100vw, 1310px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201735\" class=\"wp-caption-text\">Umhverfi Sk\u00e6linga er einstakt, l\u00edkt og n\u00e1tt\u00farunnar lystigar\u00f0ur. Til a\u00f0 komast \u00feanga\u00f0 er eki\u00f0 a\u00f0 Nyr\u00f0ri-\u00d3f\u00e6ru \u00e1 va\u00f0i r\u00e9tt austan vi\u00f0 Eldgj\u00e1 og upp \u00e1 eystri br\u00fan Eldgj\u00e1r, eftir veginum a\u00f0 Gj\u00e1tindi. Flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 komi\u00f0 er upp \u00e1 br\u00fanina eru gatnam\u00f3t \u00fear sem eki\u00f0 er ni\u00f0ur brekku \u00ed \u00e1tt a\u00f0 Skaft\u00e1. \u00deeim sl\u00f3\u00f0a er fylgt a\u00f0 sk\u00e1lanum. Ef haldi\u00f0 er \u00e1fram fr\u00e1 Sk\u00e6lingum upp a\u00f0 Langasj\u00f3 er eki\u00f0 um \u00fea\u00f0 bil einn k\u00edl\u00f3metra \u00ed vatnsbor\u00f0inu \u00e1 Blautul\u00f3num. G\u00e6ta \u00fearf \u00feess a\u00f0 vatni\u00f0 er a\u00f0dj\u00fapt og \u00fev\u00ed \u00fearf a\u00f0 aka eins n\u00e1l\u00e6gt bakkanum og m\u00f6gulegt er. \u00deessi lei\u00f0 er torf\u00e6rari og \u00fearf a\u00f0 vera \u00e1 vel b\u00fanum jeppum, en ekki \u00e6tti a\u00f0 leggja \u00ed lei\u00f0ina um Blautul\u00f3n \u00e1 \u00f3breyttum jeppum. \u00deessi lei\u00f0 er vel \u00feess vir\u00f0i a\u00f0 fara.<\/figcaption><\/figure>\n<h3>Sveitarf\u00e9l\u00f6gin ekki lamandi r\u00edkish\u00f6nd<\/h3>\n<p>Steinip\u00edp er mj\u00f6g gagnr\u00fdninn \u00e1 h\u00e1lendis\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0. Hann hefur sj\u00e1lfur m\u00e1tt s\u00e6ta ofr\u00edki landvar\u00f0a sem hafa fari\u00f0 fram\u00far lagaheimildum, ekki allra en margra. Hann hefur skrifa\u00f0 gegn r\u00edkisv\u00e6\u00f0ingu h\u00e1lendisins. \u201e\u00dea\u00f0 er fr\u00e1leitt a\u00f0 f\u00f3lk geti ekki fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 s\u00e6ta ofr\u00edki stj\u00f3rnlyndra landvar\u00f0a sem leika l\u00f6ggur. \u00dea\u00f0 gengur gegn sj\u00e1lfri n\u00e1tt\u00farunni og frelsinu sem menn upplifa. \u00deessir tilheiging til stj\u00f3rnlyndis er raunar ekki bara \u00e1 h\u00e1lendinu, lamandi h\u00f6nd r\u00edkisins heftir og heldur aftur af f\u00f3lki. F\u00f3lk ver\u00f0ur a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la og st\u00f6\u00f0va \u00feessa \u00f3svinnu. \u00dea\u00f0 er miklu betri lausn \u00ed bo\u00f0i. Sveitarf\u00e9l\u00f6gum er vel treystandi til \u00feess a\u00f0 annast um og var\u00f0veita n\u00e1tt\u00faruperlur og hef\u00f0u auk \u00feess hag af \u00fev\u00ed a\u00f0 la\u00f0a fer\u00f0amenn upp \u00e1 h\u00e1lendi\u00f0 \u00fear sem \u00feeir fengju noti\u00f0 n\u00e1tt\u00faru \u00e1n lamandi r\u00edkisafskipta,\u201c segir Steinip\u00edp. -HH<\/p>\n<figure id=\"attachment_201695\" aria-describedby=\"caption-attachment-201695\" style=\"width: 2048px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201695 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20634.jpg\" alt=\"\" width=\"2048\" height=\"1365\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20634.jpg 2048w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20634-768x512.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20634-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20634-360x240.jpg 360w\" sizes=\"(max-width: 2048px) 100vw, 2048px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201695\" class=\"wp-caption-text\">\u00deegar \u00e9g kom fyrst inn \u00ed Sk\u00e6lingar var\u00f0 \u00e9g hugfangin af sta\u00f0num. \u00deessar s\u00e9rst\u00f6ku hraunmyndanir eru v\u00ed\u00f0ar en alltaf \u00feess vir\u00f0i a\u00f0 stoppa og taka nokkrar myndir. Hraundrangarnir ur\u00f0u til \u00feegar hraun rann fr\u00e1 Eldgj\u00e1. \u00dea\u00f0 myndu\u00f0ust st\u00edflur \u00ed hraunstraumnum og safna\u00f0ist miki\u00f0 magn hrauns \u00ed tjarnir. Yfirleitt rofnar st\u00edflan og \u00ed Sk\u00e6lingum hafa veri\u00f0 komnir tappar sem k\u00e6ldust meira en hrauni\u00f0 \u00ed pollinum, sennilega vegan upps\u00f6fnunarefna sem hafa annars konar storknunarferli. \u00deessir hrauntappar ur\u00f0u eftir en hrauni\u00f0 \u00far tj\u00f6rninni flaut \u00e1fram s\u00edna lei\u00f0.<\/figcaption><\/figure>\n<figure id=\"attachment_201670\" aria-describedby=\"caption-attachment-201670\" style=\"width: 1800px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201670 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200725-DJI_0957-Pano-2-2.jpg\" alt=\"\" width=\"1800\" height=\"990\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200725-DJI_0957-Pano-2-2.jpg 1800w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200725-DJI_0957-Pano-2-2-768x422.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200725-DJI_0957-Pano-2-2-1536x845.jpg 1536w\" sizes=\"(max-width: 1800px) 100vw, 1800px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201670\" class=\"wp-caption-text\">\u00deessi mynd er tekin me\u00f0 dr\u00f3na yfir Langasj\u00f3, me\u00f0 leyfi Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0s. Upp eftir mi\u00f0ri myndinni vi\u00f0 Langasj\u00f3 eru F\u00f6grufj \u00f6ll sem enda inni \u00ed Vatnaj\u00f6kli. Einnig m\u00e1 sj\u00e1 Skaft\u00e1 li\u00f0ast \u00ed r\u00f3legheitum, fram hj\u00e1 F\u00f6grufj\u00f6llum. Lengra inn \u00e1 Vatnaj\u00f6kli lengst til h\u00e6gri m\u00e1 greina Gr\u00edmsfjall. Til vinstri \u00e1 myndinni gengur fjallgar\u00f0ur inn me\u00f0 vatninu. \u00dear gn\u00e6fi r h\u00e6st Brei\u00f0bakur en \u00feanga\u00f0 er akf\u00e6rt. N\u00e6st m\u00e1 greina Ni\u00f0ri- og Sy\u00f0ri-H\u00e1g\u00f6ngur sem eru \u00e1berandi v\u00ed\u00f0a a\u00f0 \u00e1 h\u00e1lendinu. B\u00e1r\u00f0arbungu m\u00e1 sj\u00e1 \u00e1 myndinni en h\u00e6gr\u00edsandi j\u00f6kullinn var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 flugv\u00e9lin Geysir nau\u00f0lenti \u00e1 h\u00e1bungu Vatnaj\u00f6kuls. Sagan segir a\u00f0 lendingin hafi veri\u00f0 svo mj\u00fak a\u00f0 flugfar\u00feegar fundu ekki fyrir neinu og vissu ekki a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru lentir. Fa\u00f0ir minn var einn af \u00feeim sem f\u00f3r \u00e1 j\u00f6kulinn til bj\u00f6rgunar og sagan segir a\u00f0 hann hafi misst vi\u00f0 \u00fea\u00f0 7 k\u00edl\u00f3. Eins sag\u00f0i hann m\u00e9r a\u00f0 gull hafi veri\u00f0 \u00ed v\u00e9linni sem hann s\u00f3tti. Seinna meir f\u00e9kk \u00e9g belgmyndav\u00e9l sem fannst \u00ed Geysi, upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed, byrja\u00f0i \u00e9g a\u00f0 taka myndir.<\/figcaption><\/figure>\n<figure id=\"attachment_201705\" aria-describedby=\"caption-attachment-201705\" style=\"width: 2048px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201705 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200906-DJI_0408-Pano-2.jpg\" alt=\"\" width=\"2048\" height=\"1323\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200906-DJI_0408-Pano-2.jpg 2048w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200906-DJI_0408-Pano-2-768x496.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200906-DJI_0408-Pano-2-1536x992.jpg 1536w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/20200906-DJI_0408-Pano-2-100x65.jpg 100w\" sizes=\"(max-width: 2048px) 100vw, 2048px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201705\" class=\"wp-caption-text\">F\u00e1ir sta\u00f0ir jafnast vi\u00f0 Tungna\u00e1 \u00ed fegur\u00f0. Myndin er tekin me\u00f0 dr\u00f3na \u00ed su\u00f0vestur\u00e1tt. \u00c1 myndinni m\u00e1 sj\u00e1 Heklu gn\u00e6fa upp \u00far lengst til h\u00e6gri. Til vesturs m\u00e1 greina reyk (eins og snj\u00f3r) \u00ed fj\u00f6llunum en \u00fear eru Landmannalaugar. Fjallhryggurinn Barmur teygir sig fr\u00e1 Landmannalaugum en lengst til vinstri er Torfaj\u00f6kulssv\u00e6\u00f0i\u00f0. Ekki m\u00e1 gleyma Lj\u00f3tapolli sem ber nafn me\u00f0 rentu og Frostasta\u00f0avatni a\u00f0eins lengra til h\u00e6gri. Frostasta\u00f0avatn er sennilega mest lj\u00f3smynda\u00f0a vatn h\u00e1lendisins, enda er umhverfi\u00f0 \u00e6gifagurt.<\/figcaption><\/figure>\n<figure id=\"attachment_201685\" aria-describedby=\"caption-attachment-201685\" style=\"width: 1800px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201685 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki.jpg\" alt=\"\" width=\"1800\" height=\"1199\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki.jpg 1800w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki-768x512.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki-1536x1023.jpg 1536w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki-360x240.jpg 360w\" sizes=\"(max-width: 1800px) 100vw, 1800px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201685\" class=\"wp-caption-text\">Myndin er tekin ofan vi\u00f0 g\u00edgar\u00f6\u00f0 sem ber nafni\u00f0 Lakag\u00edgar og endar \u00ed m\u00f3bergsfjalli sem heitir Laki. Ekki er vita\u00f0 til a\u00f0 g\u00edgar \u00ed g\u00edgar\u00f6\u00f0inni beri einst\u00f6k n\u00f6fn. En m\u00e9r hefur veri\u00f0 tj\u00e1\u00f0 a\u00f0 sveitungar viti hva\u00f0 margir g\u00edgar heita. Einn ber nafni\u00f0 Tjarnarg\u00edgur.<br \/>Lakag\u00edgar eru g\u00edgar\u00f6\u00f0 \u00e1 25 km langri gossprungu vestan Vatnaj\u00f6kuls. G\u00edgar\u00f6\u00f0in heitir eftir g\u00f6mlu m\u00f3bergsfjalli sem Laki nefnist og er n\u00e1l\u00e6gt mi\u00f0ri mynd. Lakag\u00edgar voru fri\u00f0l\u00fdstir \u00e1ri\u00f0 1971 en sv\u00e6\u00f0i\u00f0 var\u00f0 til \u00ed Skaft\u00e1reldum \u00e1rin 1783-1784 sem var eitt mesta gos \u00cdslandss\u00f6gunnar. \u00c1\u00f0ur fyrr var g\u00edgar\u00f6\u00f0in k\u00f6llu\u00f0 Eldborgir.<br \/>Eldgosi\u00f0 \u00ed Lakag\u00edgum h\u00f3fst \u00e1 hv\u00edtasunnudag 8. j\u00fan\u00ed 1783 a\u00f0 undangenginni jar\u00f0skj\u00e1lftahrinu. Lakag\u00edgar liggja \u00e1 t\u00edu samhli\u00f0a sprungum sem hver er 2-5 km l\u00f6ng. Vi\u00f0 su\u00f0urenda g\u00edgara\u00f0arinnar vi\u00f0 fjalli\u00f0 Hn\u00fata opna\u00f0ist fyrsta sprungan. Gosi\u00f0 kom svo \u00ed hrinum sem h\u00f3fust me\u00f0 jar\u00f0skj\u00e1lftum. Goshrinurnar hafa sennilega veri\u00f0 t\u00edu eins og sprungurnar sj\u00e1lfar. \u00cd gosinu myndu\u00f0ust um 135 g\u00edgar og 2-500 metra brei\u00f0ur sigdalur fr\u00e1 r\u00f3tum Laka og tvo k\u00edl\u00f3metra su\u00f0vestur fyrir hann. Aska og gosgufur ollu miklu mistri og m\u00f3\u00f0u yfi r \u00cdslandi sem barst s\u00ed\u00f0an yfi r Evr\u00f3pu, As\u00edu og Amer\u00edku. Mikil mengun fylgdi m\u00f3\u00f0unni sem olli eitrun \u00ed gr\u00f3\u00f0ri svo st\u00f3r hluti b\u00fapenings drapst \u00e1 \u00cdslandi sem aftur leiddi af s\u00e9r hungursney\u00f0 me\u00f0al landsmanna. M\u00f3\u00f0an og gosaskan ollu l\u00edka k\u00f6ldu ve\u00f0urfari vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau dr\u00f3gu \u00far inngeislun s\u00f3lar og deyf\u00f0u s\u00f3lskini\u00f0. \u00deetta voru m\u00f3\u00f0uhar\u00f0indin svok\u00f6llu\u00f0u, mestu har\u00f0indi sem duni\u00f0 hafa yfi r \u00cdslendinga. Eldgosi\u00f0 er eitt mannsk\u00e6\u00f0asta eldgos \u00ed mannkynss\u00f6gunni.<br \/>Hrauni\u00f0 \u00far Lakag\u00edgum \u00feekur um 600 km\u00b2 (og lag\u00f0i bara b\u00e6i).<\/figcaption><\/figure>\n<figure id=\"attachment_201680\" aria-describedby=\"caption-attachment-201680\" style=\"width: 1000px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201680 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/eirikur.jpg\" alt=\"\" width=\"1000\" height=\"1150\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/eirikur.jpg 1000w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/eirikur-768x883.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1000px) 100vw, 1000px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201680\" class=\"wp-caption-text\">Einn af m\u00f6gnu\u00f0um st\u00f6\u00f0um Fjallabaksv\u00e6\u00f0isins er g\u00edgurinn Rau\u00f0ibotn: Rau\u00f0ur og gr\u00e6nn smarag\u00f0ur umkringdur eldfj allaey\u00f0im\u00f6rkum milli Torfaj\u00f6kuls og M\u00fdrdalsj\u00f6kuls. Rau\u00f0ibotn er st\u00f3rkostlegri s\u00e9\u00f0ur fr\u00e1 H\u00f3lms\u00e1 og fossum hennar, sem mynda st\u00f3rbroti\u00f0 perluband.<br \/>Rau\u00f0ibotn er hluti ke\u00f0ju eldg\u00edga sem teygir sig um mi\u00f0h\u00e1lendi\u00f0 fr\u00e1 M\u00fdrdalsj\u00f6kli a\u00f0 Vatnaj\u00f6kli. Eldgj\u00e1 er tengt eldst\u00f6\u00f0inni K\u00f6tlu \u00fear sem b\u00e1\u00f0ar eru hluti af sama eldst\u00f6\u00f0vakerfi . Eldgj\u00e1 hefur a\u00f0eins gosi\u00f0 einu sinni s\u00ed\u00f0an landn\u00e1m. \u00c1 10. \u00f6ld e\u00f0a n\u00e1nar tilteki\u00f0 \u00e1ri\u00f0 934, gaus Eldgj\u00e1 en \u00fea\u00f0 er vera st\u00e6rsta eldgos sem or\u00f0i\u00f0 hefur \u00e1 \u00cdslandi undanfarin \u00e1r\u00fe\u00fasundir.<br \/>Gosi\u00f0 934 var um 18 k\u00edl\u00f3metrar a\u00f0 r\u00famm\u00e1li og \u00feekur um 800 ferk\u00edl\u00f3metra. Gj\u00f3skan fr\u00e1 gosinu er um 5-7 ferk\u00edl\u00f3metrar. Hrauni\u00f0 er svo st\u00f3rt a\u00f0 \u00fea\u00f0 myndi \u00feekja alla New York borg og \u00e1hrif gossins \u00e1 ve\u00f0urkerfi heimsins voru skelfi leg. \u00dea\u00f0 olli uppskerubresti og hungri \u00ed Evr\u00f3pu og hitastig l\u00e6kka\u00f0i \u00e1 \u00f6llu nor\u00f0urhveli jar\u00f0ar.<br \/>Au\u00f0veldasta lei\u00f0in til a\u00f0 n\u00e1 til Rau\u00f0ibotns er fr\u00e1 Sy\u00f0ri Fjallabakslei\u00f0 \u00e1 h\u00e1lendissl\u00f3\u00f0a. \u00dea\u00f0 m\u00e1 leggja \u00e1 b\u00edlast\u00e6\u00f0i vi\u00f0 M\u00e6lifellssandi e\u00f0a \u00e1 veginum n\u00e6r g\u00edgnum til a\u00f0 vernda sv\u00e6\u00f0i\u00f0 betur gegn g\u00f6ngutra\u00f0ki. St\u00f3rkostlegt \u00fats\u00fdni er yfi r g\u00edginn af fjallshrygg su\u00f0ur af g\u00edgnum. \u00deeir sem eru or\u00f0nir f\u00f3tl\u00fanir geta sko\u00f0a g\u00edginn vel me\u00f0 g\u00f3\u00f0um dr\u00f3na og teki\u00f0 myndir eins og \u00e9g ger\u00f0i. Me\u00f0 \u00fev\u00ed geta fleiri noti\u00f0 \u00feessarar st\u00f3rbrotnu n\u00e1tt\u00faru.<\/figcaption><\/figure>\n<figure id=\"attachment_201725\" aria-describedby=\"caption-attachment-201725\" style=\"width: 2048px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-201725 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0398-Pano-1-1.jpg\" alt=\"\" width=\"2048\" height=\"963\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0398-Pano-1-1.jpg 2048w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0398-Pano-1-1-768x361.jpg 768w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/DJI_0398-Pano-1-1-1536x722.jpg 1536w\" sizes=\"(max-width: 2048px) 100vw, 2048px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-201725\" class=\"wp-caption-text\">Hvalvatn \u00ed enda Hvalfjar\u00f0ar er mj\u00f6g fallegt vatn sem og umhverfi \u00feess. Hvalvatn er anna\u00f0 d\u00fdpsta st\u00f6\u00f0uvatn \u00cdslands, 4,1 km_ a\u00f0 fl atarm\u00e1li. \u00dea\u00f0 er 180 m dj\u00fapt \u00fear sem d\u00fdpst er mest, og liggur \u00ed 378 m yfi r sj\u00e1varm\u00e1li.<br \/>Lei\u00f0inn fr\u00e1 Uxahryggjavegi a\u00f0 vatninu er seinfarin og ekki f\u00e6rt slyddujeppum. Hvalfell er framan vi\u00f0 vatni\u00f0 \u00e1 myndinni \u00ed st\u00f3rbrotnu og fallegu umhverfi , en fjalli\u00f0 sem r\u00eds sunnan megin upp fr\u00e1 vatninu eru Botnss\u00falur. Botns\u00e1 rennur \u00far Hvalvatni til sj\u00e1var \u00ed Hvalfir\u00f0i.<br \/>\u00dea\u00f0 eru 2 tegundir af bleikju \u00ed vatninu, og getur \u00f6nnur \u00feeirra or\u00f0i\u00f0 gr\u00ed\u00f0arst\u00f3r. Heyrst hefur af fiskum allt a\u00f0 12 pundum \u00e1 st\u00e6r\u00f0, en hin bleikjutegundin er t\u00f6luvert minni.<br \/>Botnss\u00falur er vins\u00e6l fyrir g\u00f6ngugarpa, \u00fear er \u00feyrping m\u00f3bergstinda sem heita H\u00e1as\u00fala, Mi\u00f0s\u00fala, Nor\u00f0urs\u00fala, Sy\u00f0stas\u00fala (1093m) og Vesturs\u00fala. \u00d6ll eiga \u00fe\u00e6r \u00fea\u00f0 sameiginlegt a\u00f0 vera \u00e1 milli Botnsdals \u00ed Hvalfir\u00f0i og \u00deingvalla og eru \u00ed svipa\u00f0ri h\u00e6\u00f0. Einnig er dalur \u00e1 milli s\u00falnanna sem heitir S\u00falnadalur. Lei\u00f0in \u00e1 milli \u00deingvalla og Botnsdals heitir Leggjabrj\u00f3tur en \u00fea\u00f0 er fr\u00e6g g\u00f6ngulei\u00f0<\/figcaption><\/figure>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deorsteinn \u00c1sgeirsson p\u00edpari hefur fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0 \u00ed sext\u00edu \u00e1r. Hann gagnr\u00fdnir har\u00f0lega \u00e1form um r\u00edkisv\u00e6\u00f0ingu h\u00e1lendisins og telur sveitarf\u00e9l\u00f6g miklu betur \u00ed stakk b\u00fain a\u00f0 vernda og annast um h\u00e1lendi\u00f0 \u00deorsteinn \u00c1sgeirsson [1950] var ellefu \u00e1ra gamall \u00feegar hann h\u00f3f a\u00f0 fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0. N\u00fa eru sl\u00e9tt sext\u00edu \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann h\u00f3f \u00e6vint\u00fdrafer\u00f0ir s\u00ednar. \u00deorsteinn sem er me\u00f0 listamannsnafni\u00f0 Steinip\u00edp haf\u00f0i besta m\u00f6gulega kennara, sj\u00e1lfa go\u00f0s\u00f6gnina Gu\u00f0mund J\u00f3nasson [1909-1985] b\u00edlstj\u00f3ra og frumkv\u00f6\u00f0ul \u00ed k\u00f6nnun h\u00e1lendisins. Gu\u00f0mundur J\u00f3nasson var [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":81,"featured_media":201689,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[4113,1088,19213],"tags":[],"class_list":["post-202587","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-culture-is","category-greinar","category-nature-and-wildlife-is"],"acf":[],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.7 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP - Icelandic Times<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP - Icelandic Times\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"\u00deorsteinn \u00c1sgeirsson p\u00edpari hefur fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0 \u00ed sext\u00edu \u00e1r. Hann gagnr\u00fdnir har\u00f0lega \u00e1form um r\u00edkisv\u00e6\u00f0ingu h\u00e1lendisins og telur sveitarf\u00e9l\u00f6g miklu betur \u00ed stakk b\u00fain a\u00f0 vernda og annast um h\u00e1lendi\u00f0 \u00deorsteinn \u00c1sgeirsson [1950] var ellefu \u00e1ra gamall \u00feegar hann h\u00f3f a\u00f0 fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0. N\u00fa eru sl\u00e9tt sext\u00edu \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann h\u00f3f \u00e6vint\u00fdrafer\u00f0ir s\u00ednar. \u00deorsteinn sem er me\u00f0 listamannsnafni\u00f0 Steinip\u00edp haf\u00f0i besta m\u00f6gulega kennara, sj\u00e1lfa go\u00f0s\u00f6gnina Gu\u00f0mund J\u00f3nasson [1909-1985] b\u00edlstj\u00f3ra og frumkv\u00f6\u00f0ul \u00ed k\u00f6nnun h\u00e1lendisins. Gu\u00f0mundur J\u00f3nasson var [&hellip;]\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Icelandic Times\" \/>\n<meta property=\"article:publisher\" content=\"https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2021-11-17T14:22:54+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2024-04-25T23:13:05+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"1024\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"682\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Hallur Hallsson\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:creator\" content=\"@IcelandicTimes\" \/>\n<meta name=\"twitter:site\" content=\"@IcelandicTimes\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"Hallur Hallsson\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"13 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Hallur Hallsson\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/3aa899892708dfea0cb1315383a40987\"},\"headline\":\"VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP\",\"datePublished\":\"2021-11-17T14:22:54+00:00\",\"dateModified\":\"2024-04-25T23:13:05+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/\"},\"wordCount\":2994,\"publisher\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2021\\\/11\\\/laki.jpg\",\"articleSection\":[\"Culture\",\"Greinar\",\"Nature and Wildlife\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/\",\"name\":\"VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP - Icelandic Times\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2021\\\/11\\\/laki.jpg\",\"datePublished\":\"2021-11-17T14:22:54+00:00\",\"dateModified\":\"2024-04-25T23:13:05+00:00\",\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2021\\\/11\\\/laki.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2021\\\/11\\\/laki.jpg\",\"width\":1800,\"height\":1199},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/\",\"name\":\"Icelandictimes.com\",\"description\":\"Tourism, Culture and Business\",\"publisher\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\"},\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Organization\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\",\"name\":\"Icelandictimes.com\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/\",\"logo\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/logo\\\/image\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2014\\\/07\\\/unnamed.png\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2014\\\/07\\\/unnamed.png\",\"width\":650,\"height\":57,\"caption\":\"Icelandictimes.com\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/logo\\\/image\\\/\"},\"sameAs\":[\"https:\\\/\\\/www.facebook.com\\\/IcelandicTimes\",\"https:\\\/\\\/x.com\\\/IcelandicTimes\",\"https:\\\/\\\/www.instagram.com\\\/icelandictimes\\\/\",\"https:\\\/\\\/www.youtube.com\\\/@icelandictimes\"]},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/3aa899892708dfea0cb1315383a40987\",\"name\":\"Hallur Hallsson\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/f2ebaf93ee74a692f6d2f613786ed22241468e178e6d9e388afd604bb2640557?s=96&d=mm&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/f2ebaf93ee74a692f6d2f613786ed22241468e178e6d9e388afd604bb2640557?s=96&d=mm&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/f2ebaf93ee74a692f6d2f613786ed22241468e178e6d9e388afd604bb2640557?s=96&d=mm&r=g\",\"caption\":\"Hallur Hallsson\"},\"description\":\"Hallur Hallsson is a leading journalist, writer, and historian in Iceland. Former TV anchor who worked at both leading TV networks; State TV and TV 2. He worked at Iceland\u2018s leading newspaper Morgunbla\u00f0i\u00f0 and was one of the founders of Dagbla\u00f0i\u00f0.\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/author\\\/hhallsson\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP - Icelandic Times","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP - Icelandic Times","og_description":"\u00deorsteinn \u00c1sgeirsson p\u00edpari hefur fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0 \u00ed sext\u00edu \u00e1r. Hann gagnr\u00fdnir har\u00f0lega \u00e1form um r\u00edkisv\u00e6\u00f0ingu h\u00e1lendisins og telur sveitarf\u00e9l\u00f6g miklu betur \u00ed stakk b\u00fain a\u00f0 vernda og annast um h\u00e1lendi\u00f0 \u00deorsteinn \u00c1sgeirsson [1950] var ellefu \u00e1ra gamall \u00feegar hann h\u00f3f a\u00f0 fer\u00f0ast um h\u00e1lendi\u00f0. N\u00fa eru sl\u00e9tt sext\u00edu \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann h\u00f3f \u00e6vint\u00fdrafer\u00f0ir s\u00ednar. \u00deorsteinn sem er me\u00f0 listamannsnafni\u00f0 Steinip\u00edp haf\u00f0i besta m\u00f6gulega kennara, sj\u00e1lfa go\u00f0s\u00f6gnina Gu\u00f0mund J\u00f3nasson [1909-1985] b\u00edlstj\u00f3ra og frumkv\u00f6\u00f0ul \u00ed k\u00f6nnun h\u00e1lendisins. Gu\u00f0mundur J\u00f3nasson var [&hellip;]","og_url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/","og_site_name":"Icelandic Times","article_publisher":"https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes","article_published_time":"2021-11-17T14:22:54+00:00","article_modified_time":"2024-04-25T23:13:05+00:00","og_image":[{"url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki.jpg","width":1024,"height":682,"type":"image\/jpeg"}],"author":"Hallur Hallsson","twitter_card":"summary_large_image","twitter_creator":"@IcelandicTimes","twitter_site":"@IcelandicTimes","twitter_misc":{"Written by":"Hallur Hallsson","Est. reading time":"13 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/"},"author":{"name":"Hallur Hallsson","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/person\/3aa899892708dfea0cb1315383a40987"},"headline":"VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP","datePublished":"2021-11-17T14:22:54+00:00","dateModified":"2024-04-25T23:13:05+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/"},"wordCount":2994,"publisher":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki.jpg","articleSection":["Culture","Greinar","Nature and Wildlife"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/","name":"VER\u00d0LAUNA LJ\u00d3SMYNDARINN STEINIP\u00cdP - Icelandic Times","isPartOf":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki.jpg","datePublished":"2021-11-17T14:22:54+00:00","dateModified":"2024-04-25T23:13:05+00:00","inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/the-plumber-who-became-the-award-winning-photographer-steinipip\/#primaryimage","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki.jpg","contentUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2021\/11\/laki.jpg","width":1800,"height":1199},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#website","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/","name":"Icelandictimes.com","description":"Tourism, Culture and Business","publisher":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization"},"potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Organization","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization","name":"Icelandictimes.com","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/","logo":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/logo\/image\/","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/unnamed.png","contentUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/unnamed.png","width":650,"height":57,"caption":"Icelandictimes.com"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/logo\/image\/"},"sameAs":["https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes","https:\/\/x.com\/IcelandicTimes","https:\/\/www.instagram.com\/icelandictimes\/","https:\/\/www.youtube.com\/@icelandictimes"]},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/person\/3aa899892708dfea0cb1315383a40987","name":"Hallur Hallsson","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/f2ebaf93ee74a692f6d2f613786ed22241468e178e6d9e388afd604bb2640557?s=96&d=mm&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/f2ebaf93ee74a692f6d2f613786ed22241468e178e6d9e388afd604bb2640557?s=96&d=mm&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/f2ebaf93ee74a692f6d2f613786ed22241468e178e6d9e388afd604bb2640557?s=96&d=mm&r=g","caption":"Hallur Hallsson"},"description":"Hallur Hallsson is a leading journalist, writer, and historian in Iceland. Former TV anchor who worked at both leading TV networks; State TV and TV 2. He worked at Iceland\u2018s leading newspaper Morgunbla\u00f0i\u00f0 and was one of the founders of Dagbla\u00f0i\u00f0.","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/author\/hhallsson\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/202587","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/81"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=202587"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/202587\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/201689"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=202587"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=202587"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=202587"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}