{"id":38558,"date":"2015-04-09T19:35:47","date_gmt":"2015-04-09T19:35:47","guid":{"rendered":"http:\/\/icelandictimes.com\/?p=38558"},"modified":"2024-04-22T15:15:20","modified_gmt":"2024-04-22T15:15:20","slug":"othrjotandi-taekifaeri-a-asbru","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/","title":{"rendered":"\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa"},"content":{"rendered":"<p>\u00deegar bandar\u00edski herinn f\u00f3r af landi brott \u00e1ri\u00f0 2006 v\u00f6knu\u00f0u upp margar spurningar um afdrif gamla varnarsv\u00e6\u00f0isins svokalla\u00f0a. Sumir hverjir t\u00f6ldu r\u00e9ttast a\u00f0 jafna byggingarnar vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0u og a\u00f0rir h\u00f6f\u00f0u uppi efasemdir um a\u00f0 nokkurn t\u00edman v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 koma sv\u00e6\u00f0inu \u00ed not. N\u00fa a\u00f0eins \u00f6rf\u00e1um \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar blasir vi\u00f0 gerbreytt g\u00f6tumynd \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu sem n\u00fa hefur fengi\u00f0 nafni\u00f0 \u00c1sbr\u00fa. \u00c1 sv\u00e6\u00f0inu b\u00faa n\u00fa um 2000 manns, \u00fear \u00fer\u00edfast fj\u00f6lm\u00f6rg spennandi fyrirt\u00e6ki og h\u00e1sk\u00f3li me\u00f0 fj\u00f6lda n\u00e1msbrauta.<\/p>\n<p>\u00der\u00f3un \u00c1sbr\u00faar er \u00fe\u00f3 hvergi n\u00e6rri loki\u00f0 og er \u00fear n\u00fa fj\u00f6ldi spennandi verkefna \u00ed farvatninu. Ber \u00fear h\u00e6st a\u00f0 nefna sj\u00fakrah\u00fas, kvikmyndaver, gagnaver og margt fleira. \u00dear fyrir utan \u00fer\u00edfst \u00fear fj\u00f6ldi frumkv\u00f6\u00f0la og segir Kjartan \u00de\u00f3r Eir\u00edksson, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Kadeco &#8211; \u00der\u00f3unarf\u00e9lags Keflav\u00edkurflugvallar, a\u00f0 \u00fear s\u00e9 l\u00edklega st\u00e6rsta sprotafyrirt\u00e6kjaverkefni landsins. Kjartan segist sj\u00e1lfur kunna einstaklega vel vi\u00f0 sig \u00ed \u00c1sbr\u00fa, enda bj\u00f3\u00f0i sv\u00e6\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 n\u00e1nast \u00f3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri.<\/p>\n<h5><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco1.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38560 size-large\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco1-1024x682.jpg\" alt=\"Kadeco1\" width=\"750\" height=\"499\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco1-1024x682.jpg 1024w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco1-300x200.jpg 300w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco1-360x240.jpg 360w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco1-600x400.jpg 600w\" sizes=\"(max-width: 750px) 100vw, 750px\" \/><\/a><strong>Hr\u00f6\u00f0 handt\u00f6k<\/strong><\/h5>\n<p>Upphaf Kadeco m\u00e1 rekja til \u00feess a\u00f0 \u00edslenska- og bandar\u00edska r\u00edki\u00f0 ger\u00f0u skilasamning s\u00edn \u00e1 milli um a\u00f0 \u00edslenska r\u00edki\u00f0 yfirt\u00e6ki allar eignir varnarli\u00f0sins og allar\u00a0 \u00fe\u00e6r skuldbindingar sem \u00feeimfylgdu. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 var f\u00e9lagi\u00f0 Kadeco stofna\u00f0 sem haf\u00f0i \u00fea\u00f0 markmi\u00f0 og tilgang a\u00f0 lei\u00f0a \u00fer\u00f3un og\u00a0 umbreytingu \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu til borgararlegranota. \u00cd \u00fev\u00ed f\u00f3lst me\u00f0al annars nau\u00f0synleg undirb\u00faningsvinna, til d\u00e6mis \u00fattekt \u00e1 sv\u00e6\u00f0i og mannvirkjum \u00e1samt \u00fer\u00f3unar- og vaxtarm\u00f6guleikum \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 hagsmunaa\u00f0ila. F\u00e9lagi\u00f0 var \u00ed upphafi \u00ed eigu fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0uneytisins, en vann verkefni\u00f0 \u00ed gegn um \u00fej\u00f3nustusamning sem ger\u00f0ur var vi\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0. Eignarhald Kadeco var svo f\u00e6rt yfir \u00e1 fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri. Kjartan segir a\u00f0 fr\u00e1 upphafi hafi \u00e6tlunin veri\u00f0 a\u00f0 f\u00e9lagi\u00f0 hef\u00f0i sk\u00fdrt lagalega skilgreint hlutverk og a\u00f0 sama skapi skilgreindar heimildir til \u00e1kvar\u00f0unat\u00f6ku \u201e\u00dea\u00f0 m\u00e1 eiginlega segja a\u00f0 eignirnar hafi veri\u00f0 settar \u00ed okkar umsj\u00e1 og okkur sagt a\u00f0 finna bestu lausnina. Stj\u00f3rnin f\u00e9kk miklar heimildir til a\u00f0 taka \u00e1kvar\u00f0anir um \u00fe\u00e1 hluti sem f\u00e9laginu var falin ums\u00fdsla \u00e1 og hefur \u00fea\u00f0 gert \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum n\u00e1\u00f0 a\u00f0 vinna verkefni\u00f0 mun hra\u00f0ar en ella,\u201c segir Kjartan. A\u00f0koma einkaa\u00f0ila \u00ed uppbyggingu af \u00feessu tagi hefur gefi\u00f0 g\u00f3\u00f0a raun erlendis og segir Kjartan a\u00f0 Kadeco hafi liti\u00f0 til \u00feess. \u201e\u00dea\u00f0 vir\u00f0ist hafa skila\u00f0 betri og skj\u00f3tari \u00e1rangri a\u00f0 f\u00e1 einkaa\u00f0ila til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed svona uppbyggingu, frekar en a\u00f0 f\u00e1 eing\u00f6ngu opinberar stofnanir &#8211; \u00fea\u00f0 hefur s\u00fdnt sig a\u00f0 bland \u00feessara tveggja hefur skila\u00f0 bestum \u00e1rangri,\u201c segir Kjartan.<\/p>\n<h5><strong><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Aerialmynd-af-Hospital-og-\u00edbudum.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38565 size-large\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Aerialmynd-af-Hospital-og-\u00edbudum-1024x683.jpg\" alt=\"Aerialmynd af Hospital og \u00edbudum\" width=\"750\" height=\"500\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Aerialmynd-af-Hospital-og-\u00edbudum-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Aerialmynd-af-Hospital-og-\u00edbudum-300x200.jpg 300w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Aerialmynd-af-Hospital-og-\u00edbudum-360x240.jpg 360w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Aerialmynd-af-Hospital-og-\u00edbudum-600x400.jpg 600w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Aerialmynd-af-Hospital-og-\u00edbudum.jpg 1689w\" sizes=\"(max-width: 750px) 100vw, 750px\" \/><\/a>Samkeppnisyfirbur\u00f0ir sv\u00e6\u00f0isins kynntir erlendum fj\u00e1rfestum<\/strong><\/h5>\n<p>Sv\u00e6\u00f0inu var \u00ed upphafi skipt \u00ed \u00ferj\u00e1 hluta: Keflav\u00edkurflugv\u00f6ll, sv\u00e6\u00f0i sem \u00e1fram var n\u00fdtt sem varnarsv\u00e6\u00f0i og \u00fea\u00f0 sem eftir er af varnarsv\u00e6\u00f0inu sem herinn haf\u00f0i undir s\u00edn not &#8211; hin eiginlega herst\u00f6\u00f0 me\u00f0al annars. \u201eFyrsti \u00e1fanginn var svo a\u00f0 taka \u00feetta yfirgefna \u00feorp og koma \u00ed not, en \u00fear voru ef\u00a0 til vill mestu ver\u00f0m\u00e6tin sem n\u00fdta m\u00e1tti var\u00f0andi \u00fer\u00f3un og rekstur. Strax \u00ed upphafi f\u00f3rum vi\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a hvernig h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 byggja h\u00e9r\u00a0 upp og la\u00f0a a\u00f0 erlenda fj\u00e1rfesta- hvernig h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 sannf\u00e6ra \u00fe\u00e1 um samkeppnisyfirbur\u00f0i \u00feessa sv\u00e6\u00f0is. \u00dafr\u00e1 \u00fev\u00ed voru skilgreindir\u00a0 t\u00edu megin klasar af starfsemi sem vi\u00f0 t\u00f6ldum v\u00e6nlegt a\u00f0 byggja upp h\u00e9r \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Af \u00feessum t\u00edu h\u00f6fum vi\u00f0 svo vali\u00f0 tvo til a\u00f0 byrja \u00e1 &#8211; orku og heilsu.<\/p>\n<p>Markmi\u00f0 okkar er a\u00f0 byggja h\u00e9r upp heilsuklasa sem mun svo blanda saman \u00e1kve\u00f0num kjarna\u00fe\u00e1ttum og \u00feeirri sto\u00f0\u00fej\u00f3nustu sem \u00fearf til a\u00f0 klasinn geti vaxi\u00f0. \u00dear erum vi\u00f0 a\u00f0 tala um heilsutengdan fer\u00f0ai\u00f0na\u00f0 \u2013 innflutning \u00e1 f\u00f3lki \u00ed me\u00f0fer\u00f0ir og tengda \u00fej\u00f3nustu. Hva\u00f0 orkuklasann var\u00f0ar \u00fe\u00e1\u00a0 erum vi\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 a\u00f0ila sem eru\u00ed ranns\u00f3knum \u00e1 orku,\u00a0 n\u00fdtingu, \u00fer\u00f3un og fleira. \u00deetta er eitthva\u00f0 sem liggur au\u00f0vita\u00f0 beint vi\u00f0 \u00fear sem ekki er langt a\u00f0 s\u00e6kja orkuna h\u00e9r \u00e1 Reykjanesinu og h\u00e9r er \u00feegar mikil \u00feekking \u00e1 sta\u00f0num.<\/p>\n<h5><strong>\u00deekkingin grundv\u00f6llur \u00fer\u00f3unnar<\/strong><\/h5>\n<blockquote><p>\u201eGrunnurinn a\u00f0 \u00feessum tveimur kl\u00f6sum er svo \u00feekkingar- og v\u00edsindasamf\u00e9lag. \u00dea\u00f0 s\u00e9r ma\u00f0ur \u00ed allri klasa\u00fer\u00f3un heimsins,<\/p><\/blockquote>\n<p>hvort sem \u00fea\u00f0 er k\u00edsildalurinn \u00ed Kaliforn\u00edu e\u00f0a sm\u00e6rri einingar &#8211; \u00feekkingar- og v\u00edsindasamf\u00e9lag er grundv\u00f6llurinn a\u00f0 allri \u00fer\u00f3un. S\u00fa er einmitt \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0 fyrsta verkefni\u00f0 sem vi\u00f0 f\u00f3rum af sta\u00f0 me\u00f0 er Keilir. \u00d6ll markmi\u00f0 Keilis var\u00f0andi uppbyggingu eru beintengd okkar verkefnum. \u00dearna erum vi\u00f0 a\u00f0 tengja atvinnuumhverfi\u00f0 vi\u00f0 hi\u00f0 akadem\u00edska sem myndar \u00e1kve\u00f0inn grundv\u00f6ll fyrir fyrirt\u00e6ki a\u00f0 koma hinga\u00f0 inn. \u00dear fyrir utan h\u00f6fum vi\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 draga inn\u00a0 \u00e1kve\u00f0in kjarnaverkefni til a\u00f0 koma l\u00edfi\u00a0 \u00e1 sv\u00e6\u00f0i\u00f0. D\u00e6mi um \u00fea\u00f0 eru tild\u00e6mis gagnaveri\u00f0 og kvikmyndaveri\u00f0. \u00cd raun m\u00e1 segja a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um h\u00e9r me\u00f0 st\u00e6rstu sprotaverkefni landsins,\u201c segir Kjartan.<\/p>\n<p>\u00cd beinu framhaldi af \u00feessum megin\u00e1herslum er reki\u00f0 frumkv\u00f6\u00f0lasetri\u00f0 Eldey \u00ed \u00c1sbr\u00fa. Eldey hefur \u00fe\u00e1 s\u00e9rst\u00f6\u00f0u \u00e1 me\u00f0al\u00a0 frumkv\u00f6\u00f0lasetra \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 s\u00e9rh\u00e6fa sig \u00ed sj\u00e1lfb\u00e6rum og gr\u00e6num orkulausnum. A\u00f0 Eldey standa Keilir, Kadeco, N\u00fdsk\u00f6punarmi\u00f0st\u00f6\u00f0 \u00cdslands og H\u00e1sk\u00f3li \u00cdslands. Kjartan segir a\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 ver\u00f0i fari\u00f0 af sta\u00f0 me\u00f0 n\u00fdtt frumkv\u00f6\u00f0lasetur \u00ed tengslum vi\u00f0 heilsuklasann \u00feegar hann ver\u00f0ur kominn lengra. \u201e\u00dear eru fj\u00f6lmargir \u00fe\u00e6ttir a\u00f0 \u00fer\u00f3ast svo sem\u00a0\u00a0 me\u00f0fer\u00f0armi\u00f0st\u00f6\u00f0,afeitrunarst\u00f6\u00f0, 300 nemenda ballettsk\u00f3li, l\u00edfr\u00e6n smyrsl og svo erum vi\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 nokkra a\u00f0ila um heilsueldh\u00fas,\u201c segir Kjartan.<\/p>\n<h5><strong> <a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Asbru_bru_A1.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38584 size-large\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Asbru_bru_A1-1024x728.jpg\" alt=\"Asbru_bru_A1\" width=\"750\" height=\"533\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Asbru_bru_A1-1024x728.jpg 1024w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Asbru_bru_A1-300x213.jpg 300w\" sizes=\"(max-width: 750px) 100vw, 750px\" \/><\/a>Atvinnut\u00e6kif\u00e6ri sk\u00f6pu\u00f0<\/strong><\/h5>\n<p>Einn grundvalla\u00fe\u00e1tta \u00ed n\u00e1lgun Kadeco var\u00f0andi skipulagsm\u00e1l sv\u00e6\u00f0isins segir Kjartan vera a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fej\u00f3ni markmi\u00f0um samf\u00e9lagsins sem er veri\u00f0 a\u00f0 byggja upp. \u201eSkipulagsm\u00e1l \u00e1 \u00cdslandi hafa ef til vill veri\u00f0 \u00e1 \u00e1kve\u00f0num villig\u00f6tum en \u00fea\u00f0 hefur \u00fe\u00f3 veri\u00f0 a\u00f0 breytast \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum. Oft var liti\u00f0 \u00e1 skipulagsm\u00e1l sem t\u00e6knilegar \u00fatf\u00e6rslur, en ekki endilega horft til samf\u00e9lags\u00fe\u00e1tta. Vi\u00f0 horf\u00f0um hins vegar \u00e1 hverskonar samf\u00e9lag vi\u00f0 vildum byggja upp, hva\u00f0a atvinnustarfsemi vi\u00f0 vildum la\u00f0a a\u00f0 og hva\u00f0a \u00edb\u00faa vi\u00f0 vildum f\u00e1 \u2013 alla \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e6tti sem mynda samf\u00e9lag. \u00deannig viljum vi\u00f0 la\u00f0a a\u00f0 f\u00f3lk sem stundar sitt n\u00e1m h\u00e9r, hvort sem \u00fea\u00f0 er \u00ed sk\u00f3la h\u00e9r, \u00ed Reykjav\u00edk e\u00f0a erlendis, og \u00fea\u00f0 f\u00f3lk viljum vi\u00f0 s\u00ed\u00f0an tengja vi\u00f0 atvinnul\u00edf \u00c1sbr\u00faar \u00ed framt\u00ed\u00f0inni. \u00de\u00f3 \u00e1 \u00e9g ekki von \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 allir nemendur sem n\u00fa b\u00faa h\u00e9r muni taka \u00fe\u00e1tt \u00ed\u00a0 uppbyggingu sv\u00e6\u00f0isins, en ef vi\u00f0 n\u00e1um a\u00f0 skapa atvinnut\u00e6kif\u00e6ri\u00a0 fyrir eitthva\u00f0 af \u00feessu f\u00f3lki n\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 leggja alveg n\u00fdjan grundv\u00f6ll fyrir \u00fer\u00f3un sv\u00e6\u00f0isins,\u201c segir Kjartan.<\/p>\n<h5><strong><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Verne-Global_gagnaver_640.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38591 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Verne-Global_gagnaver_640.jpg\" alt=\"Verne-Global_gagnaver_640\" width=\"640\" height=\"360\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Verne-Global_gagnaver_640.jpg 640w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Verne-Global_gagnaver_640-300x168.jpg 300w\" sizes=\"(max-width: 640px) 100vw, 640px\" \/><\/a>Sj\u00e1lfb\u00e6rt fr\u00e1 upphafi<\/strong><\/h5>\n<p>\u00deegar Bandar\u00edkjastj\u00f3rn \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 draga herli\u00f0 sitt til baka f\u00f3ru a\u00f0 heyrast \u00e1hyggjuraddir \u00ed samf\u00e9laginu um hva\u00f0 \u201egamla herst\u00f6\u00f0in\u201c sem \u00feeir skildu eftir\u00a0 myndi kosta \u00fej\u00f3\u00f0ina. \u00deess vegnasegir Kjartan a\u00f0 eitt af lykilhugt\u00f6kunum sem lagt var upp me\u00f0 fr\u00e1 byrjun hafi veri\u00f0 sj\u00e1lfb\u00e6rni og \u00e1 \u00fea\u00f0 b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 um fj\u00e1rhagsog umhverfissj\u00f3narmi\u00f0. \u201eOkkar fyrsta verkefni var a\u00f0 gera samning vi\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 um breytingu sv\u00e6\u00f0isins sem t\u00f3k mi\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 tryggja sj\u00e1lfb\u00e6rni verkefnisins fr\u00e1 byrjun. Strax \u00ed upphafi f\u00f3rum vi\u00f0 \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 selja eignir til a\u00f0 tryggja\u00a0 tekjur til a\u00f0 standa undir verkefninu.\u00c1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri h\u00f6f\u00f0u skila\u00f0 s\u00e9r um tveir milljar\u00f0ar \u00ed nett\u00f3 hagna\u00f0 til r\u00edkisins og \u00fea\u00f0 er a\u00f0eins \u00fat fr\u00e1 \u00feeim grei\u00f0slum sem hafa skila\u00f0 s\u00e9r, \u00fev\u00ed vi\u00f0 h\u00f6fum gert kaupsamninga til nokkura \u00e1ra. \u00c1 sama t\u00edma erum vi\u00f0 b\u00fain a\u00f0 standa \u00ed afar kostna\u00f0arsamri \u00fer\u00f3unarvinnu, hva\u00f0 var\u00f0ar skipulag og stefnum\u00f3tun, og rekstur sv\u00e6\u00f0isins, en \u00fea\u00f0 kosta\u00f0i um milljar\u00f0 \u00e1 \u00e1ri bara a\u00f0 reka sv\u00e6\u00f0i\u00f0 t\u00f3mt. En samt sem \u00e1\u00f0ur skilu\u00f0um vi\u00f0 hagna\u00f0i til r\u00edkisins. Okkar markmi\u00f0 er a\u00f0 r\u00edki\u00f0 innleysi a\u00f0 minnsta kosti um t\u00edu milljar\u00f0a \u00far verkefninu \u00feegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 kl\u00e1ra a\u00f0 koma mannvirkjum sv\u00e6\u00f0isins \u00ed not. Vi\u00f0 l\u00edtum \u00fe\u00f3 svo \u00e1 a\u00f0 st\u00e6rstu tekjum\u00f6guleikar r\u00edkisins l\u00fati ekki a\u00f0 eignunum heldur fyrst og fremst a\u00f0 \u00feeim t\u00e6kif\u00e6rum og atvinnustarfssemi sem veri\u00f0 er a\u00f0 draga inn, \u00fev\u00ed framt\u00ed\u00f0ar skatttekjur, orkusala og fleira \u00fev\u00ed tengt er\u00a0 miklu st\u00e6rri \u00fe\u00e1ttur en sala \u00e1 fasteignum.\u00dear fyrir utan viljum vi\u00f0 minna \u00e1 a\u00f0 me\u00f0 \u00feessari \u00feekkingaruppbyggingu og \u00feessu \u00fer\u00f3unarstarfi erum vi\u00f0 a\u00f0 leggja grundv\u00f6ll fyrir framt\u00ed\u00f0arv\u00f6xt sem kemur til me\u00f0 a\u00f0 skila r\u00edkinu \u00fdmsum \u00e1vinningi \u00ed formi \u00feekkingar, fj\u00e1rmagns og fleira.<\/p>\n<h5><strong><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStuidos_1.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38597 size-full\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStuidos_1.jpg\" alt=\"AtlanticStuidos_1\" width=\"422\" height=\"234\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStuidos_1.jpg 422w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStuidos_1-300x166.jpg 300w\" sizes=\"(max-width: 422px) 100vw, 422px\" \/><\/a><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStudios_small.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38602 size-large\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStudios_small-1024x353.jpg\" alt=\"AtlanticStudios_small\" width=\"750\" height=\"258\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStudios_small-1024x353.jpg 1024w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStudios_small-300x103.jpg 300w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/AtlanticStudios_small.jpg 1181w\" sizes=\"(max-width: 750px) 100vw, 750px\" \/><\/a>Kaninn enginn s\u00f3\u00f0i<\/strong><\/h5>\n<p>Eitt af \u00feeim verkefnum sem Kadeco var sett var a\u00f0 athuga umhverfism\u00e1l sv\u00e6\u00f0isins. \u201eVi\u00f0 f\u00f3rum raklei\u00f0is \u00ed a\u00f0 athuga hvort einhver mengun v\u00e6ri \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. \u00cd \u00fea\u00f0 var l\u00f6g\u00f0 mikil vinna, allt sv\u00e6\u00f0i\u00f0 var rannsaka\u00f0 og kortlagt hva\u00f0 \u00feyrfti a\u00f0 gera. \u00cd lj\u00f3s hefur komi\u00f0 a\u00f0 \u00feetta er mun minna m\u00e1l en vi\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um \u00ed upphafi. Flugv\u00f6llum fylgir au\u00f0vita\u00f0 alltaf einhver mengun, en hva\u00f0 varnarli\u00f0i\u00f0 var\u00f0ar voru \u00feeir ekkert meiri s\u00f3\u00f0ar en hinn almenni \u00cdslendingur, nema s\u00ed\u00f0ur s\u00e9. S\u00fa mengun sem fannst er \u00fear a\u00f0 auki \u00e1 afm\u00f6rku\u00f0um st\u00f6\u00f0um sv\u00e6\u00f0isins &#8211; \u00ed kring um sorphauga og i\u00f0na\u00f0arstarfssemi, r\u00e9tt eins og annars sta\u00f0ar \u00e1 landinu. G\u00f3\u00f0u fr\u00e9ttirnar eru a\u00f0 \u00fea\u00f0 er n\u00fa b\u00fai\u00f0 a\u00f0 kortleggja \u00feetta allt saman og leita \u00farr\u00e6\u00f0a \u00fear sem vi\u00f0 \u00e1,\u201d segir Kjartan.<\/p>\n<h5><strong>Br\u00fa \u00fat \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0asamf\u00e9lagi\u00f0<\/strong><\/h5>\n<p>Kjartan segir a\u00f0 ekki hafi veri\u00f0 horft s\u00e9rstaklega til \u00feess a\u00f0 sv\u00e6\u00f0i\u00f0 hafi \u00e1\u00f0ur h\u00fdst herst\u00f6\u00f0, mun frekar hafi gaumur veri\u00f0 gefinn a\u00f0 \u00fer\u00f3un \u00fe\u00e9ttb\u00fdliskjarna \u00ed kring um flugvelli \u00ed hinum st\u00f3ra heimi. \u00cd \u00fev\u00ed samhengi hafi veri\u00f0 tekin \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 finna sv\u00e6\u00f0inu n\u00fdtt nafn \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri kalla\u00f0 \u201eherst\u00f6\u00f0in\u201c e\u00f0a \u201egamla varnarsv\u00e6\u00f0i\u00f0\u201c \u00ed s\u00edfellu. \u201eVi\u00f0 f\u00f3rum \u00ed mj\u00f6g \u00edtarlega nafnavinnu og var\u00f0 \u00c1sbr\u00fa fyrir valinu \u00far yfir 200 m\u00f6guleikum. M\u00e9r hefur s\u00fdnst \u00fea\u00f0 hafa hloti\u00f0 g\u00f3\u00f0an hlj\u00f3mgrunn hj\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0inni og hafa fest sig \u00ed sessi,\u201c segir Kjartan. Eins og segir til um \u00ed Snorra- Eddu er \u00c1sbr\u00fa br\u00fa sem \u00e6sir fer\u00f0u\u00f0ust um \u00e1 milli \u00c1sgar\u00f0s og Mi\u00f0gar\u00f0s. Kjartan segir \u00fe\u00f3 a\u00f0 ekki s\u00e9 liti\u00f0 svo \u00e1 a\u00f0 einhverjar gu\u00f0legar veru s\u00e9u \u00e1 fer\u00f0alagi \u00e1 Reykjanesskaganum, heldur s\u00e9 nafni\u00f0 mun fremur t\u00e1knr\u00e6nt fyrir tengingu tveggja heima. \u201e\u00de\u00f3 margir vilji ef til vill halda \u00f6\u00f0ru fram \u00fe\u00e1 eru ekkert endilega allir fj\u00e1rfestar heimsins tilb\u00fanir til a\u00f0 koma hinga\u00f0 me\u00f0 fj\u00e1rmagn einfaldlega vegna \u00feess a\u00f0 okkur \u00feykir \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfsagt. Segja m\u00e6tti a\u00f0 \u00c1sbr\u00fa s\u00e9 br\u00fa \u00feeirra hinga\u00f0 inn,\u201c segir Kjartan.<\/p>\n<p>Kjartan segir a\u00f0 fj\u00f6lm\u00f6rg vann\u00fdtt t\u00e6kif\u00e6ri liggi \u00ed n\u00e1l\u00e6g\u00f0 vi\u00f0 Keflav\u00edkurflugv\u00f6ll og a\u00f0 hann s\u00e9 mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur \u00ed uppbyggingu sv\u00e6\u00f0isins. \u201e\u00dea\u00f0 horfir enginn framhj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e9r er gr\u00ed\u00f0arst\u00f3r flugv\u00f6llur sem hefur marga kosti \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r. V\u00f6llurinn er \u00ed raun mun st\u00e6rri og meiri en gengur og gerist \u00ed samf\u00e9l\u00f6gum af okkar st\u00e6r\u00f0argr\u00e1\u00f0u og setur sv\u00e6\u00f0i\u00f0 okkar \u00ed h\u00f3p me\u00f0 jafnvel mun st\u00e6rri samf\u00e9l\u00f6gum en mannfj\u00f6ldinn segir til um. \u00deess vegna l\u00edtum vi\u00f0 \u00e1 samg\u00f6ngum\u00e1l sem \u00feri\u00f0ju sto\u00f0ina til vi\u00f0b\u00f3tar vi\u00f0 heilsu og orkuklasana. Vi\u00f0 h\u00f6fum s\u00e9\u00f0 erlendis a\u00f0 mesti v\u00f6xturinn hva\u00f0 var\u00f0ar atvinnuuppbyggingu \u00e1 s\u00e9r oft og t\u00ed\u00f0um sta\u00f0 \u00ed n\u00e1l\u00e6g\u00f0 vi\u00f0 flugvelli. S\u00fa atvinnuuppbygging einskor\u00f0ast\u00a0 \u00fe\u00f3 s\u00ed\u00f0ur en svo vi\u00f0 flugt\u00e6knistarfsemi heldur miklu frekar \u00feekkingarstarfsemi. Sem d\u00e6mi m\u00e1 taka flugv\u00f6llin \u00ed Schiphol \u00ed Hollandi, en \u00fear hefur \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 mikil uppbygging og \u00fear valdi Microsoft s\u00e9r sta\u00f0 fyrir skrifstofur s\u00ednar, \u00fear a\u00f0 auki er \u00fear fj\u00f6ldi h\u00f6nnunarfyrirt\u00e6kja, r\u00e1\u00f0gjafafyrirt\u00e6kja og fleira. \u00deessi fyrirt\u00e6ki velja s\u00e9r \u00feennan sta\u00f0 vegna n\u00e1l\u00e6g\u00f0arinnar vi\u00f0 flugv\u00f6llinn og geta \u00feannig veri\u00f0 sveigjanlegri hva\u00f0 \u00feekkingu var\u00f0ar. \u00dea\u00f0 liggur \u00ed augum uppi a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00e1kaflega \u00e1kj\u00f3sanlegur kostur a\u00f0 vera \u00ed seilingarfjarl\u00e6g\u00f0\u00a0 vi\u00f0 flugv\u00f6llinn fyrir fyrirt\u00e6ki sem \u00fdmist senda f\u00f3lk \u00e1 e\u00f0a taka \u00e1 m\u00f3ti f\u00f3lki \u00e1 r\u00e1\u00f0stefnur \u00fat um allan heim. H\u00e9r eru \u00fev\u00ed m\u00f6rg vann\u00fdtt t\u00e6kif\u00e6ri og\u00a0\u00a0 er \u00feetta eitt af st\u00f3ru atri\u00f0unum\u00feegar vi\u00f0 erum a\u00f0 kynna \u00c1sbr\u00fa fyrir erlendum a\u00f0ilum,\u201c segir Kjartan.<\/p>\n<h5><strong><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Picture-019_modified.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38607 size-large\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Picture-019_modified-1024x683.jpg\" alt=\"Picture 019_modified\" width=\"750\" height=\"500\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Picture-019_modified-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Picture-019_modified-300x200.jpg 300w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Picture-019_modified-360x240.jpg 360w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Picture-019_modified-600x400.jpg 600w\" sizes=\"(max-width: 750px) 100vw, 750px\" \/><\/a>Auki\u00f0 samstarf vi\u00f0 sveitaf\u00e9l\u00f6g og r\u00edki\u00f0<\/strong><\/h5>\n<p>Samstarf vi\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00ed kring hefur gengi\u00f0 afar vel a\u00f0 s\u00f6gn Kjartans en n\u00fdveri\u00f0 t\u00f3kst samstarf \u00e1 milli sveitarf\u00e9lagsins Gar\u00f0s, Sandger\u00f0isb\u00e6jar og Reykjanesb\u00e6jar um uppbyggingu \u00e1 nor\u00f0urhluta vallarsv\u00e6\u00f0isins sem kallast \u00c1sbr\u00fa Nor\u00f0ur.Vi\u00f0 undirritun samningsins kom fram a\u00f0 samningsa\u00f0ilar gera s\u00e9r vonir um a\u00f0 \u00e1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i ver\u00f0i ekki a\u00f0eins samg\u00f6ngumi\u00f0st\u00f6\u00f0 fyrir v\u00f6rur og far\u00feega, heldur einnig mi\u00f0st\u00f6\u00f0 vir\u00f0isaukandi framlei\u00f0slu og \u00fej\u00f3nustu \u00fear sem a\u00f0f\u00f6ng og\u00a0 afur\u00f0ir\u00a0 komi fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum e\u00f0a ver\u00f0i fluttar \u00far landi. Kjartan segir a\u00f0 me\u00f0 auknu samstarfi vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i r\u00edki\u00f0 og\u00a0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00ed kring megi n\u00fdtaflugv\u00f6llinn til uppbyggingar \u00ed mun meira m\u00e6li. \u201e\u00cd framt\u00ed\u00f0inni horfum vi\u00f0 fram \u00e1 uppbyggingu \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu allt \u00ed kring um flugv\u00f6llinn og er hugsunin s\u00fa a\u00f0 hagsmunaa\u00f0ilar vinni saman a\u00f0 \u00feeirri \u00fer\u00f3un. \u00de\u00e1 er f\u00e1tt eins fr\u00e1hrindandi fyrir a\u00f0ila sem vinna\u00f0 a\u00f0 uppbyggingu eins og \u00feegar fj\u00f3rir mismunandi a\u00f0ilar sitja hinum megin vi\u00f0 samningsbor\u00f0i\u00f0 og eru allir a\u00f0 selja s\u00f6mu v\u00f6runa. \u00deetta er gr\u00ed\u00f0arlega flott verkefni \u00fat fr\u00e1 skipulagssj\u00f3narmi\u00f0um og getur komi\u00f0 til me\u00f0 a\u00f0 skila sveitarf\u00e9l\u00f6gunum \u00ed kring mj\u00f6g miklu.\u00a0 \u00dea\u00f0 eru hagsmunir allra \u00feessa a\u00f0ila a\u00f0 n\u00e1 inn starfsemi \u00e1 sv\u00e6\u00f0i\u00f0, en ekki a\u00f0 vera a\u00f0 b\u00edtast um innbirg\u00f0is hvar h\u00fan lendir. \u00deeir vinni sameiginlega a\u00f0 stefnum\u00f6rkun um n\u00fdtingu landssv\u00e6\u00f0isins og greini \u00feau t\u00e6kif\u00e6ri sem hentugt er a\u00f0 la\u00f0a a\u00f0 og skipuleggja sv\u00e6\u00f0i\u00f0 me\u00f0 tilliti til hvernig s\u00e9 best a\u00f0 ra\u00f0a ni\u00f0ur starfseminni \u00e1 mismunandi sta\u00f0i eftir hva\u00f0\u00a0 hentar hverju sinni. G\u00e6\u00f0i skipulagsins yr\u00f0u \u00feannig h\u00e1m\u00f6rku\u00f0 -l\u00e9ttur i\u00f0na\u00f0ur yr\u00f0i \u00e1 einum sta\u00f0 og gr\u00f3fari i\u00f0na\u00f0ur annars sta\u00f0ar,\u201c segir Kjartan.<\/p>\n<h5><strong><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Bygging-950-breytt.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38612 size-large\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Bygging-950-breytt-1024x768.jpg\" alt=\"Bygging 950-breytt\" width=\"750\" height=\"562\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Bygging-950-breytt-1024x768.jpg 1024w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Bygging-950-breytt-300x225.jpg 300w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Bygging-950-breytt-80x60.jpg 80w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Bygging-950-breytt.jpg 1080w\" sizes=\"(max-width: 750px) 100vw, 750px\" \/><\/a>Kreppan b\u00edtur ekki<\/strong><\/h5>\n<p>Kjartan segir a\u00f0 \u00fe\u00f3 \u00e1hrif kreppunnar l\u00e1ti vissulega \u00e1 s\u00e9r kr\u00e6la \u00ed \u00c1sbr\u00fa hafi h\u00fan ekki veruleg \u00e1hrif \u00e1 framvindu verkefnisins. \u201eVegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f3rum svol\u00edti\u00f0 \u00f3hef\u00f0bundna lei\u00f0 \u00ed stefnum\u00f3tuninni g\u00e1tum vi\u00f0 brug\u00f0ist vi\u00f0 kreppunni betur en ella. Snemma \u00e1rs 2008 s\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lamarka\u00f0ir voru farnir a\u00f0 lokast og f\u00f3rum vi\u00f0 \u00fev\u00ed strax a\u00f0 sko\u00f0a me\u00f0 hva\u00f0a h\u00e6tti vi\u00f0 g\u00e6tum sveigt okkar stefnu til a\u00f0 a\u00f0lagast breyttum a\u00f0st\u00e6\u00f0um. \u00dev\u00ed f\u00f3rum vi\u00f0 \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 gera leigusamninga me\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrir augum a\u00f0 fyrirt\u00e6kin g\u00e6tu keypt h\u00fasn\u00e6\u00f0i\u00f0 me\u00f0 t\u00ed\u00f0 og t\u00edma.\u00a0 Fj\u00e1rm\u00f6gnunin tekur \u00fe\u00f3 lengrit\u00edma \u00ed \u00feessu \u00e1rfer\u00f0i og verkefnin lengur a\u00f0 komast af sta\u00f0, en a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti er hugmyndafr\u00e6\u00f0in sem vi\u00f0 l\u00f6g\u00f0um upp me\u00f0 \u00f3breytt og vi\u00f0 horfum bjarts\u00fdn\u00a0 fram \u00e1 veginn,\u201c segir Kjartan.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deegar bandar\u00edski herinn f\u00f3r af landi brott \u00e1ri\u00f0 2006 v\u00f6knu\u00f0u upp margar spurningar um afdrif gamla varnarsv\u00e6\u00f0isins svokalla\u00f0a. Sumir hverjir t\u00f6ldu r\u00e9ttast a\u00f0 jafna byggingarnar vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0u og a\u00f0rir h\u00f6f\u00f0u uppi efasemdir um a\u00f0 nokkurn t\u00edman v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 koma sv\u00e6\u00f0inu \u00ed not. N\u00fa a\u00f0eins \u00f6rf\u00e1um \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar blasir vi\u00f0 gerbreytt g\u00f6tumynd \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu sem n\u00fa hefur fengi\u00f0 nafni\u00f0 \u00c1sbr\u00fa. \u00c1 sv\u00e6\u00f0inu b\u00faa n\u00fa um 2000 manns, \u00fear \u00fer\u00edfast fj\u00f6lm\u00f6rg spennandi fyrirt\u00e6ki og h\u00e1sk\u00f3li me\u00f0 fj\u00f6lda n\u00e1msbrauta. \u00der\u00f3un \u00c1sbr\u00faar er [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":103,"featured_media":38570,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[1272,1097,5,1088,1096,2434,1280,1279,1918,1103,1087],"tags":[2589,2590,3031,3094],"class_list":["post-38558","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-235-is","category-allar-arstidir","category-blod","category-greinar","category-hofudborgarsvaedid","category-landsaga-shb-2-tbl-4-arg-2010","category-reykjanes-is","category-reykjanesbaer-is","category-shb","category-timarit","category-tolublod","tag-asbru","tag-kadeco","tag-reykjanes","tag-reykjanesbaer-is"],"acf":[],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.7 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa - Icelandic Times<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa - Icelandic Times\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"\u00deegar bandar\u00edski herinn f\u00f3r af landi brott \u00e1ri\u00f0 2006 v\u00f6knu\u00f0u upp margar spurningar um afdrif gamla varnarsv\u00e6\u00f0isins svokalla\u00f0a. Sumir hverjir t\u00f6ldu r\u00e9ttast a\u00f0 jafna byggingarnar vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0u og a\u00f0rir h\u00f6f\u00f0u uppi efasemdir um a\u00f0 nokkurn t\u00edman v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 koma sv\u00e6\u00f0inu \u00ed not. N\u00fa a\u00f0eins \u00f6rf\u00e1um \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar blasir vi\u00f0 gerbreytt g\u00f6tumynd \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu sem n\u00fa hefur fengi\u00f0 nafni\u00f0 \u00c1sbr\u00fa. \u00c1 sv\u00e6\u00f0inu b\u00faa n\u00fa um 2000 manns, \u00fear \u00fer\u00edfast fj\u00f6lm\u00f6rg spennandi fyrirt\u00e6ki og h\u00e1sk\u00f3li me\u00f0 fj\u00f6lda n\u00e1msbrauta. \u00der\u00f3un \u00c1sbr\u00faar er [&hellip;]\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Icelandic Times\" \/>\n<meta property=\"article:publisher\" content=\"https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2015-04-09T19:35:47+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2024-04-22T15:15:20+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco5.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"2480\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"1654\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:creator\" content=\"@IcelandicTimes\" \/>\n<meta name=\"twitter:site\" content=\"@IcelandicTimes\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"12 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/5ed01e5e966217de866e6509f2b908e5\"},\"headline\":\"\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa\",\"datePublished\":\"2015-04-09T19:35:47+00:00\",\"dateModified\":\"2024-04-22T15:15:20+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/\"},\"wordCount\":2690,\"publisher\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2015\\\/04\\\/Kadeco5.jpg\",\"keywords\":[\"\u00c1sbr\u00fa\",\"Kadeco\",\"Reykjanes\",\"Reykjanesb\u00e6r\"],\"articleSection\":[\"235\",\"Allar \u00e1rst\u00ed\u00f0ir\",\"Bl\u00f6\u00f0\",\"Greinar\",\"H\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0\",\"Land&amp;Saga \u2013 SHB 2.tbl. 4.\u00e1rg. 2010\",\"Reykjanes\",\"Reykjanesb\u00e6r\",\"SHB\",\"T\u00edmarit\",\"T\u00f6lubl\u00f6\u00f0\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/\",\"name\":\"\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa - Icelandic Times\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2015\\\/04\\\/Kadeco5.jpg\",\"datePublished\":\"2015-04-09T19:35:47+00:00\",\"dateModified\":\"2024-04-22T15:15:20+00:00\",\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2015\\\/04\\\/Kadeco5.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2015\\\/04\\\/Kadeco5.jpg\",\"width\":2480,\"height\":1654},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/\",\"name\":\"Icelandictimes.com\",\"description\":\"Tourism, Culture and Business\",\"publisher\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\"},\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Organization\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\",\"name\":\"Icelandictimes.com\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/\",\"logo\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/logo\\\/image\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2014\\\/07\\\/unnamed.png\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2014\\\/07\\\/unnamed.png\",\"width\":650,\"height\":57,\"caption\":\"Icelandictimes.com\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/logo\\\/image\\\/\"},\"sameAs\":[\"https:\\\/\\\/www.facebook.com\\\/IcelandicTimes\",\"https:\\\/\\\/x.com\\\/IcelandicTimes\",\"https:\\\/\\\/www.instagram.com\\\/icelandictimes\\\/\",\"https:\\\/\\\/www.youtube.com\\\/@icelandictimes\"]},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/5ed01e5e966217de866e6509f2b908e5\",\"name\":\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g\",\"caption\":\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\"},\"description\":\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson: \\\"In between teaching teenagers English, raising a son, trying to see the world, writing my M.A thesis and writing magazine articles I play guitar in a punk-rock band.\\\"\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/author\\\/vignir\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa - Icelandic Times","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa - Icelandic Times","og_description":"\u00deegar bandar\u00edski herinn f\u00f3r af landi brott \u00e1ri\u00f0 2006 v\u00f6knu\u00f0u upp margar spurningar um afdrif gamla varnarsv\u00e6\u00f0isins svokalla\u00f0a. Sumir hverjir t\u00f6ldu r\u00e9ttast a\u00f0 jafna byggingarnar vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0u og a\u00f0rir h\u00f6f\u00f0u uppi efasemdir um a\u00f0 nokkurn t\u00edman v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 koma sv\u00e6\u00f0inu \u00ed not. N\u00fa a\u00f0eins \u00f6rf\u00e1um \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar blasir vi\u00f0 gerbreytt g\u00f6tumynd \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu sem n\u00fa hefur fengi\u00f0 nafni\u00f0 \u00c1sbr\u00fa. \u00c1 sv\u00e6\u00f0inu b\u00faa n\u00fa um 2000 manns, \u00fear \u00fer\u00edfast fj\u00f6lm\u00f6rg spennandi fyrirt\u00e6ki og h\u00e1sk\u00f3li me\u00f0 fj\u00f6lda n\u00e1msbrauta. \u00der\u00f3un \u00c1sbr\u00faar er [&hellip;]","og_url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/","og_site_name":"Icelandic Times","article_publisher":"https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes","article_published_time":"2015-04-09T19:35:47+00:00","article_modified_time":"2024-04-22T15:15:20+00:00","og_image":[{"width":2480,"height":1654,"url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco5.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson","twitter_card":"summary_large_image","twitter_creator":"@IcelandicTimes","twitter_site":"@IcelandicTimes","twitter_misc":{"Written by":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson","Est. reading time":"12 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/"},"author":{"name":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/person\/5ed01e5e966217de866e6509f2b908e5"},"headline":"\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa","datePublished":"2015-04-09T19:35:47+00:00","dateModified":"2024-04-22T15:15:20+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/"},"wordCount":2690,"publisher":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco5.jpg","keywords":["\u00c1sbr\u00fa","Kadeco","Reykjanes","Reykjanesb\u00e6r"],"articleSection":["235","Allar \u00e1rst\u00ed\u00f0ir","Bl\u00f6\u00f0","Greinar","H\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0","Land&amp;Saga \u2013 SHB 2.tbl. 4.\u00e1rg. 2010","Reykjanes","Reykjanesb\u00e6r","SHB","T\u00edmarit","T\u00f6lubl\u00f6\u00f0"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/","name":"\u00d3\u00ferj\u00f3tandi t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00c1sbr\u00fa - Icelandic Times","isPartOf":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco5.jpg","datePublished":"2015-04-09T19:35:47+00:00","dateModified":"2024-04-22T15:15:20+00:00","inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/othrjotandi-taekifaeri-a-asbru\/#primaryimage","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco5.jpg","contentUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/04\/Kadeco5.jpg","width":2480,"height":1654},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#website","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/","name":"Icelandictimes.com","description":"Tourism, Culture and Business","publisher":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization"},"potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Organization","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization","name":"Icelandictimes.com","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/","logo":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/logo\/image\/","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/unnamed.png","contentUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/unnamed.png","width":650,"height":57,"caption":"Icelandictimes.com"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/logo\/image\/"},"sameAs":["https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes","https:\/\/x.com\/IcelandicTimes","https:\/\/www.instagram.com\/icelandictimes\/","https:\/\/www.youtube.com\/@icelandictimes"]},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/person\/5ed01e5e966217de866e6509f2b908e5","name":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g","caption":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson"},"description":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson: \"In between teaching teenagers English, raising a son, trying to see the world, writing my M.A thesis and writing magazine articles I play guitar in a punk-rock band.\"","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/author\/vignir\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/38558","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/103"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=38558"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/38558\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/38570"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=38558"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=38558"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=38558"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}