{"id":60407,"date":"2015-12-13T17:13:44","date_gmt":"2015-12-13T17:13:44","guid":{"rendered":"http:\/\/icelandictimes.com\/?p=60407"},"modified":"2024-04-22T18:50:45","modified_gmt":"2024-04-22T18:50:45","slug":"vigdisi-finnbogadottur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/","title":{"rendered":"Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur"},"content":{"rendered":"<p><strong>Tungum\u00e1l geyma minningar<\/strong><br \/>\nTuttugu \u00e1r eru n\u00fa li\u00f0in fr\u00e1 \u00fev\u00ed Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir l\u00e9t af emb\u00e6tti forseta \u00cdslands og er h\u00fan enn \u00f6nnum kafin vi\u00f0 margv\u00edsleg verkefni. Framkv\u00e6mdir vi\u00f0 Stofnun Vigd\u00edsar Finnbogad\u00f3ttur \u00ed erlendum tungum\u00e1lum h\u00f3fust \u00e1 \u00e1rinu og segir Vigd\u00eds stofnunina muni vekja athygli um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld. Tungum\u00e1lin skipa \u00feannig st\u00f3ran sess \u00ed l\u00edfi hennar og segir h\u00fan a\u00f0 \u00feau s\u00e9u lykillinn a\u00f0 b\u00e6ttum samskiptum og \u00fev\u00ed a\u00f0 styrkja og vi\u00f0halda menningu.<\/p>\n<p><strong><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Stofnun-Vigdisar-Finnbogadottur-vid-Hi-vinningstillaga-uti2.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-60597\" src=\"\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/_d_improd_\/Stofnun-Vigdisar-Finnbogadottur-vid-Hi-vinningstillaga-uti2-1024x538_f_improf_750x394.jpg\" alt=\"Stofnun Vigdisar Finnbogadottur vid Hi - vinningstillaga uti2\" width=\"750\" height=\"394\" \/><\/a>R\u00e1\u00f0i\u00f0 bug \u00e1 and\u00fa\u00f0<\/strong><br \/>\n\u00c1 t\u00edmum mikillar \u00f3vissu og \u00f3einingar \u00ed heiminum leggur Vigd\u00eds mikla \u00e1herslu \u00e1 m\u00e1tt tungum\u00e1la til a\u00f0 sameina \u00f3l\u00edka menningarheima. \u201eTungum\u00e1lin opna skilning \u00e1 menningu \u00fej\u00f3\u00f0a,\u201c segir Vigd\u00eds. \u201e\u00dea\u00f0 a\u00f0 geta skipst \u00e1 sko\u00f0unum \u00e1n a\u00f0komu t\u00falka f\u00e6rir okkur mannverurnar n\u00e6r hver annarri. \u00deannig er au\u00f0veldara a\u00f0 styrkja vin\u00e1ttu og kve\u00f0a ni\u00f0ur \u00f3vin\u00e1ttu og \u00fe\u00e1 miklu and\u00fa\u00f0 sem n\u00fa r\u00edkir \u00e1 hersk\u00e1um st\u00f6\u00f0um\u00a0 \u00ed heiminum.\u201c<\/p>\n<figure id=\"attachment_60414\" aria-describedby=\"caption-attachment-60414\" style=\"width: 200px\" class=\"wp-caption alignleft\"><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Madame-Vigdis-Finnbogadottir.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-60414 size-medium\" src=\"\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/_d_improd_\/Madame-Vigdis-Finnbogadottir-200x300_f_improf_200x300.jpg\" alt=\"Forseti\" width=\"200\" height=\"300\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-60414\" class=\"wp-caption-text\">Forseti<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00deannig segir Vigd\u00eds a\u00f0 samhyg\u00f0 s\u00e9 henni mj\u00f6g hugleikin \u00e1 t\u00edmum \u00f3fri\u00f0ar \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0avettvangi. \u201e\u00dea\u00f0 brennur n\u00fa \u00e1 m\u00e9r a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi r\u00e6ktum me\u00f0 okkur samhyg\u00f0. Vi\u00f0 erum hluti af heiminum og \u00feurfum a\u00f0 r\u00e6kta me\u00f0 okkur skilning \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk hefur r\u00e9tt \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00e1 \u00feessari j\u00f6r\u00f0 r\u00e9tt eins og vi\u00f0. Vi\u00f0 erum n\u00fa a\u00f0 upplifa mestu f\u00f3lksflutninga s\u00ed\u00f0an \u00e1 mi\u00f0\u00f6ldum og \u00fev\u00ed skyldum vi\u00f0 \u00cdslendingar fara varhluta af \u00fev\u00ed? Vi\u00f0 skulum ekki gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum sj\u00e1lf afkomendur fl\u00f3ttamanna, samkv\u00e6mt Landn\u00e1mu, og erum annars g\u00f3\u00f0 a\u00f0 muna \u00fe\u00fasund \u00e1r aftur \u00ed t\u00edmann. Okkur er fars\u00e6last a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti f\u00f3lki sem hinga\u00f0 kemur fr\u00e1 str\u00ed\u00f0shrj\u00e1\u00f0um l\u00f6ndum me\u00f0 hl\u00fdju og skilningi. \u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera nokku\u00f0 erfitt a\u00f0 setjast h\u00e9r a\u00f0, ekki s\u00edst fyrir f\u00f3lk sem hinga\u00f0 kemur \u00far mj\u00f6g \u00f3l\u00edku umhverfi. Vi\u00f0 eigum a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00fev\u00ed eftir bestu getu vi\u00f0 a\u00f0 a\u00f0lagast okkar \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsh\u00e1ttum, r\u00e9tt eins og vi\u00f0 sj\u00e1lf myndum helst \u00f3ska ef vi\u00f0 \u00feyrftum a\u00f0 fl\u00fdja \u00ed ger\u00f3l\u00edka menningu \u00fati \u00ed heimi.\u201c<\/p>\n<p>Vigd\u00eds segir a\u00f0 n\u00fd menningar\u00e1hrif \u00e6ttu ekki a\u00f0 hafa \u00e1hrif \u00e1 \u00edslenska menningu og tungu \u00f6\u00f0ru v\u00edsi en \u00e1 j\u00e1kv\u00e6\u00f0an h\u00e1tt. \u201eFyrr m\u00e6tti n\u00fa vera aumingjah\u00e1tturinn \u00ed \u00cdslendingum ef vi\u00f0 g\u00e6tum ekki leyst \u00feau m\u00e1l. \u00c9g hafna \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa sl\u00edka vantr\u00fa \u00e1 okkur sj\u00e1lfum. St\u00f3ra m\u00e1li\u00f0 var\u00f0andi \u00edslenska tungu \u00ed dag er a\u00f0 koma \u00edslensku m\u00e1li, og \u00feeim minningum sem \u00fea\u00f0 geymir, \u00ed stafr\u00e6nt form og a\u00f0 h\u00fan f\u00e1i skj\u00f3l \u00ed stafr\u00e6num heimi. T\u00e6kninni fleygir fram og vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 g\u00e6ta a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edslenskan fylgi me\u00f0.<\/p>\n<p>En vi\u00f0 h\u00f6ldum okkar striki og t\u00f6kum \u00e1 m\u00f3ti\u00a0 \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem vill vera me\u00f0 okkur \u00ed okkar menningu, enda erum vi\u00f0 sterk \u00ed lund og afst\u00f6\u00f0u, en \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 tileinka okkur a\u00f0ra menningars\u00fdn\u00a0 en vi\u00f0 h\u00f6fum b\u00fai\u00f0 vi\u00f0\u00a0 \u00ed aldara\u00f0ir\u201c segir Vigd\u00eds.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<figure id=\"attachment_60420\" aria-describedby=\"caption-attachment-60420\" style=\"width: 200px\" class=\"wp-caption alignright\"><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Vigdis-ljosmyndari-Geir-olafsson-1.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-60420 size-medium\" src=\"\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/_d_improd_\/Vigdis-ljosmyndari-Geir-olafsson-1-200x300_f_improf_200x300.jpg\" alt=\"Forseti\" width=\"200\" height=\"300\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-60420\" class=\"wp-caption-text\">Forseti<\/figcaption><\/figure>\n<p><strong>Ein af stofnunum UNESCO<\/strong><br \/>\nFyrsta sk\u00f3flustungan a\u00f0 n\u00fdju h\u00fasn\u00e6\u00f0i Stofnunar Vigd\u00edsar Finnbogad\u00f3ttur \u00ed erlendum tungum\u00e1lum var tekin 8. mars s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn, en byggingin mun h\u00fdsa al\u00fej\u00f3\u00f0lega tungum\u00e1lami\u00f0st\u00f6\u00f0 og alla kennslu og ranns\u00f3knir \u00ed erlendum tungum\u00e1lum vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n<p>Vigd\u00eds fylgist vel me\u00f0 framkv\u00e6mdum og b\u00ed\u00f0ur me\u00f0 eftirv\u00e6ntingu eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 starfsemi hefjist \u00ed byggingunni, enda muni stofnunin \u00e1rei\u00f0anlega ver\u00f0a v\u00ed\u00f0a kunn og vekja athygli. \u201e\u00c9g er afar hreykin af og \u00feakkl\u00e1t fyrir a\u00f0 H\u00e1sk\u00f3li \u00cdslands hafi be\u00f0i\u00f0 mig um a\u00f0 \u00feessi stofnun beri nafn mitt. \u00dea\u00f0 kemur til me\u00f0 a\u00f0 hafa mikla \u00fe\u00fd\u00f0ingu\u00a0 \u00ed framt\u00ed\u00f0inni a\u00f0 h\u00e9r skuli vera tungum\u00e1lasetur, sem er um lei\u00f0 tungum\u00e1lasafn. \u00dea\u00f0 er svo vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 stofnunin s\u00e9 sta\u00f0sett h\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi, hj\u00e1 \u00feessari f\u00e1mennu \u00fej\u00f3\u00f0 sem talar svo til \u00f3breytt aldagamalt tungum\u00e1l. &#8211; \u00cdsland er stikla \u00e1 milli gamla heimsins og \u00feess n\u00fdja og \u00fev\u00ed nokku\u00f0 vi\u00f0eigandi a\u00f0 h\u00e9r \u00e1 mi\u00f0ju Atlantshafinu , sem a\u00f0skilur heims\u00e1lfur, ver\u00f0i til safn um tungum\u00e1l heimsins,\u201c segir Vigd\u00eds.<\/p>\n<p>Vigd\u00eds er velgj\u00f6r\u00f0asendiherra tungum\u00e1la hj\u00e1 Mennta-, v\u00edsinda- og menningarstofnunar Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna, UNESCO, og er \u00ed senn s\u00e1 fyrsti og eini og hefur sinnt \u00fev\u00ed verkerfni fr\u00e1 \u00e1rinu 1998. H\u00fan t\u00f3k me\u00f0al annars \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 kortleggja tungum\u00e1l heimsins \u00e1 fyrstu \u00e1runum og fer enn \u00feann daginn \u00ed dag \u00f6\u00f0ru hvoru \u00e1 fundi hj\u00e1 stofnuninni \u00ed Par\u00eds.Stofnun Vigd\u00edsar Finnbogad\u00f3ttur \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands starfar undir formerkjum UNESCO, og segir Vigd\u00eds \u00fea\u00f0 sta\u00f0festingu \u00e1 \u00fev\u00ed mikilv\u00e6ga hlutverki sem stofnuninni er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 gegna \u00e1 heimsv\u00edsu. \u201eA\u00f0 vera undir verndarv\u00e6ng UNESCO gefur \u00feessu verkefni miki\u00f0 v\u00e6gi og m\u00e1 l\u00edkja vi\u00f0 a\u00f0 vera \u00e1 heimsminjaskr\u00e1, r\u00e9tt eins og handritin okkar og \u00deingvellir,\u201c segir Vigd\u00eds.<\/p>\n<p>\u00cd tungum\u00e1lasafninu stendur til a\u00f0 safna saman eins m\u00f6rgum tungum\u00e1lum heimsins og m\u00f6gulegt er. Vigd\u00eds segir \u00fea\u00f0 verkefni br\u00fdnt, \u00fev\u00ed tali\u00f0 er a\u00f0 h\u00e6tta s\u00e9 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 um helmingur af \u00feeim t\u00e6plega sj\u00f6 \u00fe\u00fasund tungum\u00e1lum sem vita\u00f0 er af \u00ed dag muni ver\u00f0a horfin um n\u00e6stu aldam\u00f3t. \u00c1st\u00e6\u00f0ur \u00feess segir Vigd\u00eds me\u00f0al annars vera skort \u00e1\u00a0 t\u00e6kniv\u00e6\u00f0ingu\u00a0 tungum\u00e1la \u00fear sem sm\u00e6rri m\u00e1lsv\u00e6\u00f0i hafi ekki bolmagn til a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r \u00fe\u00e1 t\u00e6kni a\u00f0 gera tungum\u00e1li\u00f0 stafr\u00e6nt, svo \u00feau standi styrk \u00e1 svi\u00f0i n\u00fat\u00edma m\u00e1lt\u00e6kni. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 vera skilyr\u00f0i\u00a0 fyrir lifandi notkun tungum\u00e1la a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 nota \u00feau \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um innan t\u00f6lvut\u00e6kninnar.\u00a0 Eins hafi aukin menntun \u00ed \u00fdmsum l\u00f6ndum \u00fear sem menntun fer fram \u00e1 einu opinberu tungum\u00e1li, \u00fev\u00ed mi\u00f0ur,\u00a0 \u00feau \u00e1hrif a\u00f0 tungum\u00e1l afskekktra sv\u00e6\u00f0a fyrnast og gleymast.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Vigdis_minni.jpg\"><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter size-full wp-image-60426\" src=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Vigdis_minni.jpg\" alt=\"Vigdis_minni\" width=\"592\" height=\"789\" srcset=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Vigdis_minni.jpg 592w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Vigdis_minni-113x150.jpg 113w, https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Vigdis_minni-225x300.jpg 225w\" sizes=\"(max-width: 592px) 100vw, 592px\" \/><\/a>\u201e\u00dat um allan heim sitja n\u00fa s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar og keppast vi\u00f0 a\u00f0 skr\u00e1 \u00feau tungum\u00e1l sem eru a\u00f0 hverfa. Um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld eru aldag\u00f6mul tungum\u00e1l a\u00f0 hverfa og kynsl\u00f3\u00f0ir a\u00f0 renna upp sem skilja ekki tungum\u00e1l forfe\u00f0ra sinna. \u00cd samstarfi okkar vi\u00f0 UNESCO, tungum\u00e1lastofnanir og h\u00e1sk\u00f3la um allan heim munum vi\u00f0 eftir bestu getu hj\u00e1lpa til vi\u00f0 a\u00f0 var\u00f0veita \u00feekkingu \u00e1 sem flestum tungum\u00e1lum. \u00c9g er \u00feess fullviss a\u00f0\u00a0 erlendir gestir sem heims\u00e6kja okkur\u00a0 muni vilja sko\u00f0a \u00feessa tungum\u00e1lami\u00f0st\u00f6\u00f0, \u00fe\u00f3 ekki v\u00e6ri nema til a\u00f0 sko\u00f0a hvort \u00feeirra eigi\u00f0 tungum\u00e1l s\u00e9 \u00fear. Gestir og gangandi munu \u00feannig geta \u00fdtt \u00e1 hnapp og heyrt tungum\u00e1li\u00f0 tala\u00f0, s\u00e9\u00f0 hvar \u00ed heiminum \u00fea\u00f0 er sta\u00f0sett, hvernig menning \u00feeirra sem tala tungum\u00e1li\u00f0 er, listsk\u00f6pun og lifna\u00f0arh\u00e6ttir.\u201c\u00a0 segir Vigd\u00eds.<\/p>\n<p><strong>Tungum\u00e1lin geyma minningarnar<\/strong><br \/>\nJafnvel \u00fe\u00f3 tungum\u00e1l og samskiptavenjur heimsins taki miklum breytingum, \u00fear sem sum tungum\u00e1l hverfa og \u00f6nnur n\u00e1 s\u00edfellt meiri \u00fatbrei\u00f0slu, segir Vigd\u00eds a\u00f0 \u00edslenskan muni alltaf eiga s\u00e9r s\u00e9rstakan sta\u00f0 \u00ed heimi tungum\u00e1la. \u201e\u00cdslenska er au\u00f0vita\u00f0 hvergi t\u00f6lu\u00f0 \u00ed heiminum nema \u00e1 \u00cdslandi og vi\u00f0 b\u00faum vi\u00f0 \u00feau g\u00e6\u00f0i a\u00f0 geta lesi\u00f0 mi\u00f0aldab\u00f3kmenntir okkar \u00e1 eigin tungum\u00e1li, sem er einstakt \u00ed heiminum. \u00c9g veit ekki hvort \u00cdslendingar \u00e1tti sig almennt \u00e1 \u00fev\u00ed. \u00c9g er \u00feeirrar sko\u00f0unar og hef veri\u00f0 lengi a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 tungum\u00e1li\u00f0 sem bindur okkur saman sem \u00fej\u00f3\u00f0,\u00a0 meira en landi\u00f0 sj\u00e1lft.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 getum\u00a0 fari\u00f0 \u00fat um allan heim en vi\u00f0 h\u00f6fum alltaf tungum\u00e1li\u00f0 okkar me\u00f0 okkur. Vi\u00f0 getum l\u00e6rt \u00f6ll heimsins tungum\u00e1l, en \u00fea\u00f0 er alltaf okkar tungum\u00e1l sem er grunnurinn. \u00deessu t\u00f3k \u00e9g eftir \u00e1 fer\u00f0al\u00f6gum m\u00ednum \u00e1 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur \u00feegar \u00e9g r\u00e6ddi vi\u00f0 f\u00f3lk sem haf\u00f0i veri\u00f0 lengi erlendis a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fer\u00e1\u00f0i a\u00f0 koma heim, koma me\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn heim &#8211; vegna tungum\u00e1lsins og \u00feeirra tengsla sem \u00fea\u00f0 veitir \u00ed fr\u00e6ndgar\u00f0inum. Landi\u00f0 er okkur \u00f3metanlegt og \u00fea\u00f0 a\u00f0 vita a\u00f0 h\u00e9r eigum vi\u00f0 heima, en \u00fea\u00f0 er tungan sem bindur okkur saman. \u00dea\u00f0 er tungum\u00e1li\u00f0 sem geymir minningar, \u00fea\u00f0 er l\u00edmi\u00f0 \u00ed \u00feessari \u00fej\u00f3\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>Vigd\u00eds segir \u00fea\u00f0 mikilv\u00e6gt a\u00f0 \u00feeir sem vilji vi\u00f0halda tungum\u00e1linu l\u00e1ti r\u00f6dd s\u00edna heyrast. \u201eTil allrar hamingju vilja flestir veg \u00edslenskunnar sem mestan. Tungum\u00e1li\u00f0 hefur mikla a\u00f0l\u00f6gunarh\u00e6fni og ekkert nema gott um \u00fea\u00f0\u00a0 a\u00f0 segja \u00feegar n\u00fdjungar ber a\u00f0 gar\u00f0i. Ef vi\u00f0 eigum or\u00f0 sem eru sk\u00fdr og falleg \u00e6ttum vi\u00f0 kappkosta a\u00f0 nota \u00feau. Tungum\u00e1li\u00f0 b\u00fdr yfir \u00feeim kostum a\u00f0 \u00fea\u00f0 er tilt\u00f6lulega au\u00f0velt a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a erlend tungum\u00e1l yfir \u00e1 \u00edslensku og enn fremur a\u00f0 skapa n\u00fdyr\u00f0i, og \u00fearf ekki anna\u00f0 en a\u00f0 hugsa til n\u00fdyr\u00f0alistans hans J\u00f3nasar okkar Hallgr\u00edmssonar. \u00dear m\u00e1 finna safn auglj\u00f3sra or\u00f0a sem okkur finnast sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0 \u00ed dag, en voru ekki til \u00e1 \u00edslensku \u00ed hans t\u00ed\u00f0; or\u00f0 eins og t.d. sj\u00f3nauki, loftvog, jar\u00f0fr\u00e6\u00f0i, gangverk og haffl\u00f6tur.\u201c<\/p>\n<p>\u201eTungum\u00e1li\u00f0 er lifandi og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 \u00fer\u00f3ast. \u00dea\u00f0 l\u00e6\u00f0ast au\u00f0vita\u00f0 inn erlend or\u00f0, en m\u00f6rg \u00feeirra hafa veri\u00f0 felld a\u00f0 \u00edslenskum beygingum og\u00a0 \u00feannig ger\u00f0 \u00edslensk. Slettur og slangur eru kynsl\u00f3\u00f0abundin fyrirb\u00e6ri og eiga s\u00e9r sinn l\u00edft\u00edma \u00fear til s\u00e1 sem \u00feau notar ver\u00f0ur gamaldags. \u00cd minni \u00e6sku var til d\u00e6mis um t\u00edma \u00ed t\u00edsku a\u00f0 segja: \u201ehamingjan \u00ed hesth\u00fasinu\u201c \u00feegar eitthva\u00f0 kom \u00e1 \u00f3vart, sem f\u00e1ir myndu skilja \u00ed dag. Meginatri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 halda sk\u00fdrri or\u00f0anotkun og sk\u00fdrum frambur\u00f0i sem skilst vel,\u201c segir Vigd\u00eds.<\/p>\n<p><strong>\u00c1 toppnum \u00ed menningarm\u00e1lum<\/strong><br \/>\nMe\u00f0 st\u00f3rfelldri aukningu fer\u00f0amanna sem s\u00e6kja \u00cdsland heim sj\u00e1 einhverjir fyrir s\u00e9r a\u00f0 menning og tunga muni \u00feurfa a\u00f0 a\u00f0lagast n\u00fdjum menningar\u00e1hrifum, en Vigd\u00eds vill ekki a\u00f0 gert s\u00e9 of miki\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00cdslendingar s\u00e9u ekki vel \u00e1 ver\u00f0i. \u201eVi\u00f0 h\u00f6fum alla t\u00ed\u00f0 tileinka\u00f0 okkur menningarstrauma a\u00f0 utan og eigum \u00fear af lei\u00f0andi\u00a0 \u00ed menningararfi okkar alla\u00a0 -ismana \u00ed Evr\u00f3pumenningu aldanna. Vi\u00f0 \u00cdslendingar n\u00fat\u00edmans erum s\u00edst annarra \u00fej\u00f3\u00f0a eftirb\u00e1tar \u00ed menningarm\u00e1lum. Vi\u00f0 eigum\u00a0 s\u00f6gurnar okkar og b\u00f3kmenntir fort\u00ed\u00f0ar,\u00a0\u00a0 merka rith\u00f6funda sem \u00fe\u00fdddir eru \u00e1 erlend tungum\u00e1l,\u00a0 gl\u00e6silega t\u00f3nlist, myndlist og kvikmyndager\u00f0 \u00e1 heimsm\u00e6likvar\u00f0a. \u00dea\u00f0 er st\u00f3rmerkilegt a\u00f0 svona f\u00e1menn \u00fej\u00f3\u00f0, \u00cdslendingar, skapi svo mikla h\u00e1menningu. \u00deess vegna megum vi\u00f0 vara okkur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00fdna \u00fe\u00e1 hli\u00f0 \u00e1 okkur sem flokka m\u00e6tti undir \u00f3menningu.<\/p>\n<p>\u00c9g get hinsvegar ekki leynt \u00fev\u00ed\u00a0 a\u00f0 \u00e9g hef miklar \u00e1hyggjur af landinu sj\u00e1lfu. Vi\u00f0 megum ekki gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta land er svo vi\u00f0kv\u00e6mt. \u00dea\u00f0 tekur mosa m\u00f6rg hundru\u00f0 \u00e1r a\u00f0 gr\u00f3a \u00e1 hrauni og \u00fea\u00f0 er miki\u00f0 \u00e1hyggjuefni a\u00f0 landi\u00f0 ver\u00f0i tro\u00f0i\u00f0 ni\u00f0ur af mannaf\u00f3tum. \u00deess vegna er \u00e9g \u00feeirrar sko\u00f0unar a\u00f0 hi\u00f0 opinbera, sem erum vi\u00f0 \u00f6ll, ver\u00f0i a\u00f0 breg\u00f0ast mj\u00f6g skj\u00f3tt vi\u00f0 \u00ed a\u00f0 standa me\u00f0 s\u00f3ma a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 erlendir f\u00e6tur geti gengi\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi eins og \u00edslenskir,\u201c segir Vigd\u00eds.<\/p>\n<p>Sj\u00e1lf hefur Vigd\u00eds ekki l\u00e1ti\u00f0 sitt eftir liggja \u00ed n\u00e1tt\u00faruvernd \u00e1 \u00cdslandi. Sk\u00f3gr\u00e6kt\u00a0 og landgr\u00e6\u00f0sla hefur veri\u00f0 henni hugleikin um \u00e1rabil og hefur h\u00fan lagt \u00e1herslu \u00e1 gildi \u00feess a\u00f0 \u00e6ska landsins l\u00e6ri a\u00f0 umgangast n\u00e1tt\u00faruna me\u00f0 vir\u00f0ingu. \u00de\u00e1 er h\u00fan verndari Au\u00f0lindar &#8211; Minningarsj\u00f3\u00f0s Gu\u00f0mundar P\u00e1ls \u00d3lafssonar sem hefur \u00fea\u00f0 me\u00f0al annars \u00e1 stefnuskr\u00e1 sinni a\u00f0 vernda og efla votlendi \u00cdslands. Vigd\u00eds segir m\u00e1lefni\u00f0 br\u00fdnt og bendir \u00e1 a\u00f0 votlendi s\u00e9u \u201elungu landsins,\u201c eins og Laxness komst svo vel a\u00f0 or\u00f0i, en votlendi gegna me\u00f0al annars hlutverki vi\u00f0\u00a0 bindingu kolefnis, mi\u00f0lun vatns og hringr\u00e1s n\u00e6ringarefna.<\/p>\n<p><strong>\u00dea\u00f0 sem stendur upp \u00far<\/strong><br \/>\n\u00c1 \u00feeim 35 \u00e1rum sem hafa li\u00f0i\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed Vigd\u00eds t\u00f3k vi\u00f0 emb\u00e6tti forseta \u00cdslands hefur miki\u00f0 gerst \u00e1 svi\u00f0i jafnr\u00e9ttis \u00e1 \u00cdslandi. Jafnr\u00e9ttism\u00e1l \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0avettvangi segir Vigd\u00eds enn eiga gr\u00ed\u00f0arlega langt \u00ed land og standi \u00fea\u00f0 fri\u00f0i og \u00fer\u00f3unarm\u00e1lum fyrir \u00ferifum. \u201eTaki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00feeim sv\u00e6\u00f0um \u00fear sem menn eru hva\u00f0 hersk\u00e1astir \u00ed heiminum \u00ed dag hafa konur minnst a\u00f0 segja. \u00deess vegna er mikilv\u00e6gt a\u00f0 reyna a\u00f0 a\u00f0sto\u00f0a konur \u00ed a\u00f0 \u00f6\u00f0last \u00fe\u00e1 vir\u00f0ingu og f\u00e1 \u00fe\u00e1 menntun sem \u00feeim ber. \u00c9g t\u00f3k einu sinni \u00fe\u00e1tt \u00ed l\u00e6sis\u00e1taki fyrir konur \u00ed Katar \u00e1 vegum UNESCO og \u00fear var eins og konur h\u00e6kku\u00f0u \u00ed loftinu um nokkra sentimetra \u00feegar \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u l\u00e6rt a\u00f0 lesa. \u00de\u00e6r h\u00f6f\u00f0u fengi\u00f0 sj\u00e1lfstraust &#8211; og kannski \u00f6\u00f0last r\u00f6dd. Svo er \u00fea\u00f0 margrannsaka\u00f0 og sanna\u00f0 a\u00f0 \u00feegar jafnr\u00e9tti hefur veri\u00f0 komi\u00f0 \u00e1, \u00fear sem konur h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur l\u00edti\u00f0 hlutverk, tekur samf\u00e9lagi\u00f0 gr\u00ed\u00f0arlegum framf\u00f6rum \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um,\u201c segir Vigd\u00eds.<\/p>\n<p>Vigd\u00eds segir a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6ryggi og sj\u00e1lfsmynd \u00edslenskra kvenna hafi miki\u00f0 breyst \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum og a\u00f0 konur s\u00e9u h\u00e6ttar a\u00f0 afsaka tilveru s\u00edna.<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g \u00e1tti \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekki von \u00e1 neinu, hva\u00f0 jafnr\u00e9ttism\u00e1l var\u00f0ar, \u00feegar \u00e9g t\u00f3k vi\u00f0 \u00feessu emb\u00e6tti. En \u00e9g s\u00e9 \u00fea\u00f0 n\u00fana a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 ungar stelpur hafi alist upp vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 konu \u00ed \u00feessu emb\u00e6tti sem \u00e9g gegndi um skei\u00f0 hefur breytt miklu og \u00e9g d\u00e1ist a\u00f0 \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0inni fyrir a\u00f0 hafa or\u00f0i\u00f0 fyrst til a\u00f0 \u00feora\u00a0 a\u00f0 kj\u00f3sa konu \u00ed \u00feetta emb\u00e6tti. M\u00e9r hefur alltaf \u00fe\u00f3tt b\u00f6rn s\u00e9rstaklega skemmtilegur h\u00f3pur \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu og ber mikla vir\u00f0ingu fyrir \u00feeim. \u00dea\u00f0 var n\u00fa hlegi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00ed byrjun \u00feegar m\u00e9r datt \u00ed hug a\u00f0 gr\u00f3\u00f0ursetja me\u00f0 \u00feeim tr\u00e9, en \u00e9g haf\u00f0i ekkert a\u00f0 gefa \u00feeim og datt \u00ed hug a\u00f0 gefa \u00feeim tr\u00e9 sem n\u00fa eru or\u00f0in a\u00f0 sk\u00f3gi. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem stendur upp \u00far \u00ed m\u00ednu l\u00edfsstarfi &#8211;\u00a0 a\u00f0 gefa ungum st\u00falkum sj\u00e1lfstraust og gera landi\u00f0 gr\u00e6nna. Svo var reyndar \u00f3gurlega gaman a\u00f0 vera leikh\u00fasstj\u00f3ri,\u201c segir Vigd\u00eds a\u00f0 lokum.<\/p>\n<p>-VAG<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Tungum\u00e1l geyma minningar Tuttugu \u00e1r eru n\u00fa li\u00f0in fr\u00e1 \u00fev\u00ed Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir l\u00e9t af emb\u00e6tti forseta \u00cdslands og er h\u00fan enn \u00f6nnum kafin vi\u00f0 margv\u00edsleg verkefni. Framkv\u00e6mdir vi\u00f0 Stofnun Vigd\u00edsar Finnbogad\u00f3ttur \u00ed erlendum tungum\u00e1lum h\u00f3fust \u00e1 \u00e1rinu og segir Vigd\u00eds stofnunina muni vekja athygli um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld. Tungum\u00e1lin skipa \u00feannig st\u00f3ran sess \u00ed l\u00edfi hennar og segir h\u00fan a\u00f0 \u00feau s\u00e9u lykillinn a\u00f0 b\u00e6ttum samskiptum og \u00fev\u00ed a\u00f0 styrkja og vi\u00f0halda menningu. R\u00e1\u00f0i\u00f0 bug \u00e1 and\u00fa\u00f0 \u00c1 t\u00edmum mikillar \u00f3vissu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":103,"featured_media":60409,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[1093,1097,8,5,1089,1088,1096,3575,1094,7,1095,6,9],"tags":[3560],"class_list":["post-60407","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-101-is","category-allar-arstidir","category-austurland","category-blod","category-frettir","category-greinar","category-hofudborgarsvaedid","category-land-og-saga-2-tbl-9-arg-2015","category-midbaer-reykjavikur","category-nordurland","category-reykjavik-is","category-sudurland","category-vesturland","tag-vigdis-finnbogadottir-is"],"acf":[],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.7 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur - Icelandic Times<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur - Icelandic Times\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Tungum\u00e1l geyma minningar Tuttugu \u00e1r eru n\u00fa li\u00f0in fr\u00e1 \u00fev\u00ed Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir l\u00e9t af emb\u00e6tti forseta \u00cdslands og er h\u00fan enn \u00f6nnum kafin vi\u00f0 margv\u00edsleg verkefni. Framkv\u00e6mdir vi\u00f0 Stofnun Vigd\u00edsar Finnbogad\u00f3ttur \u00ed erlendum tungum\u00e1lum h\u00f3fust \u00e1 \u00e1rinu og segir Vigd\u00eds stofnunina muni vekja athygli um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld. Tungum\u00e1lin skipa \u00feannig st\u00f3ran sess \u00ed l\u00edfi hennar og segir h\u00fan a\u00f0 \u00feau s\u00e9u lykillinn a\u00f0 b\u00e6ttum samskiptum og \u00fev\u00ed a\u00f0 styrkja og vi\u00f0halda menningu. R\u00e1\u00f0i\u00f0 bug \u00e1 and\u00fa\u00f0 \u00c1 t\u00edmum mikillar \u00f3vissu [&hellip;]\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Icelandic Times\" \/>\n<meta property=\"article:publisher\" content=\"https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2015-12-13T17:13:44+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2024-04-22T18:50:45+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"2048\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"1368\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:creator\" content=\"@IcelandicTimes\" \/>\n<meta name=\"twitter:site\" content=\"@IcelandicTimes\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"10 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/5ed01e5e966217de866e6509f2b908e5\"},\"headline\":\"Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur\",\"datePublished\":\"2015-12-13T17:13:44+00:00\",\"dateModified\":\"2024-04-22T18:50:45+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/\"},\"wordCount\":2440,\"publisher\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2015\\\/12\\\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg\",\"keywords\":[\"Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir\"],\"articleSection\":[\"101\",\"Allar \u00e1rst\u00ed\u00f0ir\",\"Austurland\",\"Bl\u00f6\u00f0\",\"Fr\u00e9ttir\",\"Greinar\",\"H\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0\",\"Land og Saga 2.tbl. 9.\u00e1rg. 2015\",\"Mi\u00f0b\u00e6r Reykjav\u00edkur\",\"Nor\u00f0urland\",\"Reykjav\u00edk\",\"Su\u00f0urland\",\"vesturland\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/\",\"name\":\"Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur - Icelandic Times\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2015\\\/12\\\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg\",\"datePublished\":\"2015-12-13T17:13:44+00:00\",\"dateModified\":\"2024-04-22T18:50:45+00:00\",\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/vigdisi-finnbogadottur\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2015\\\/12\\\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2015\\\/12\\\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg\",\"width\":2048,\"height\":1368},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/\",\"name\":\"Icelandictimes.com\",\"description\":\"Tourism, Culture and Business\",\"publisher\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\"},\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Organization\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#organization\",\"name\":\"Icelandictimes.com\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/\",\"logo\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/logo\\\/image\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2014\\\/07\\\/unnamed.png\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2014\\\/07\\\/unnamed.png\",\"width\":650,\"height\":57,\"caption\":\"Icelandictimes.com\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/logo\\\/image\\\/\"},\"sameAs\":[\"https:\\\/\\\/www.facebook.com\\\/IcelandicTimes\",\"https:\\\/\\\/x.com\\\/IcelandicTimes\",\"https:\\\/\\\/www.instagram.com\\\/icelandictimes\\\/\",\"https:\\\/\\\/www.youtube.com\\\/@icelandictimes\"]},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/5ed01e5e966217de866e6509f2b908e5\",\"name\":\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g\",\"caption\":\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson\"},\"description\":\"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson: \\\"In between teaching teenagers English, raising a son, trying to see the world, writing my M.A thesis and writing magazine articles I play guitar in a punk-rock band.\\\"\",\"url\":\"https:\\\/\\\/icelandictimes.com\\\/is\\\/author\\\/vignir\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur - Icelandic Times","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur - Icelandic Times","og_description":"Tungum\u00e1l geyma minningar Tuttugu \u00e1r eru n\u00fa li\u00f0in fr\u00e1 \u00fev\u00ed Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir l\u00e9t af emb\u00e6tti forseta \u00cdslands og er h\u00fan enn \u00f6nnum kafin vi\u00f0 margv\u00edsleg verkefni. Framkv\u00e6mdir vi\u00f0 Stofnun Vigd\u00edsar Finnbogad\u00f3ttur \u00ed erlendum tungum\u00e1lum h\u00f3fust \u00e1 \u00e1rinu og segir Vigd\u00eds stofnunina muni vekja athygli um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld. Tungum\u00e1lin skipa \u00feannig st\u00f3ran sess \u00ed l\u00edfi hennar og segir h\u00fan a\u00f0 \u00feau s\u00e9u lykillinn a\u00f0 b\u00e6ttum samskiptum og \u00fev\u00ed a\u00f0 styrkja og vi\u00f0halda menningu. R\u00e1\u00f0i\u00f0 bug \u00e1 and\u00fa\u00f0 \u00c1 t\u00edmum mikillar \u00f3vissu [&hellip;]","og_url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/","og_site_name":"Icelandic Times","article_publisher":"https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes","article_published_time":"2015-12-13T17:13:44+00:00","article_modified_time":"2024-04-22T18:50:45+00:00","og_image":[{"width":2048,"height":1368,"url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson","twitter_card":"summary_large_image","twitter_creator":"@IcelandicTimes","twitter_site":"@IcelandicTimes","twitter_misc":{"Written by":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson","Est. reading time":"10 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/"},"author":{"name":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/person\/5ed01e5e966217de866e6509f2b908e5"},"headline":"Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur","datePublished":"2015-12-13T17:13:44+00:00","dateModified":"2024-04-22T18:50:45+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/"},"wordCount":2440,"publisher":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg","keywords":["Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir"],"articleSection":["101","Allar \u00e1rst\u00ed\u00f0ir","Austurland","Bl\u00f6\u00f0","Fr\u00e9ttir","Greinar","H\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0","Land og Saga 2.tbl. 9.\u00e1rg. 2015","Mi\u00f0b\u00e6r Reykjav\u00edkur","Nor\u00f0urland","Reykjav\u00edk","Su\u00f0urland","vesturland"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/","name":"Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur - Icelandic Times","isPartOf":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg","datePublished":"2015-12-13T17:13:44+00:00","dateModified":"2024-04-22T18:50:45+00:00","inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/vigdisi-finnbogadottur\/#primaryimage","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg","contentUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/Signing-Agreement-UNESCO-Languages-Iceland-Mrs-Vigdis-Finnbogadottir_Irina-Bokova.jpg","width":2048,"height":1368},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#website","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/","name":"Icelandictimes.com","description":"Tourism, Culture and Business","publisher":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization"},"potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Organization","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#organization","name":"Icelandictimes.com","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/","logo":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/logo\/image\/","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/unnamed.png","contentUrl":"https:\/\/icelandictimes.com\/wp-content\/uploads\/2014\/07\/unnamed.png","width":650,"height":57,"caption":"Icelandictimes.com"},"image":{"@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/logo\/image\/"},"sameAs":["https:\/\/www.facebook.com\/IcelandicTimes","https:\/\/x.com\/IcelandicTimes","https:\/\/www.instagram.com\/icelandictimes\/","https:\/\/www.youtube.com\/@icelandictimes"]},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/#\/schema\/person\/5ed01e5e966217de866e6509f2b908e5","name":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/d44e877dae823c0ed0c42ae0e1b088c0d55dd086b48b5bf8e4a80b0ce9c98eff?s=96&d=mm&r=g","caption":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson"},"description":"Vignir Andri Gu\u00f0mundsson: \"In between teaching teenagers English, raising a son, trying to see the world, writing my M.A thesis and writing magazine articles I play guitar in a punk-rock band.\"","url":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/author\/vignir\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/60407","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/103"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=60407"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/60407\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/60409"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=60407"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=60407"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/icelandictimes.com\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=60407"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}