OSLO 20181030: Nordisk Råds prisutdeling 2018 tirsdag kveld i Oslo, Norge. Operaen i Oslo. VInneren av filmprisen: Kona fer í stríð

Kona fer í stríð

Kona fer í stríð hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2018 fyrir leiftrandi skemmtilega meðferð á hápólitísku viðfangsefni, sem og einkalífi 48 ára gamallar konu sem er hin óvænta hasarhetja myndarinnar.

Leikstjórinn, handritshöfundurinn og framleiðandinn Benedikt Erlingsson, handritshöfundurinn Ólafur Egill Egilsson og framleiðendurnir Marianne Slot og Carine Leblanc tóku við verðlaununum úr hendi norska leikarans Jakob Oftebro á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Óperunni í Ósló.

 

Leikstjórinn, handritshöfundurinn og framleiðandinn Benedikt Erlingsson

Rökstuðningur dómnefndar

Í Kona fer í stríð er alvarlegum og brýnum vanda miðlað gegnum sterkan persónuleika sem gefst ekki upp. Halla, konan sem tekur lögin í sínar hendur til að vernda vistkerfi jarðarinnar, er leikin af Halldóru Geirharðsdóttur sem sýnir afburðagóða og agaða frammistöðu. Þegar Halla verður þess vör að eitthvað togar sterkar í hana en hugsjónirnar, nefnilega löngunin til að stofna fjölskyldu, er það sett fram á íhugulan hátt og án tilfinningasemi. Raunar má segja að Benedikt Erlingsson, sem leikstýrði myndinni og skrifaði einnig handrit ásamt Ólafi Egilssyni, sýni jafnmikla dirfsku og aðalpersóna myndarinnar. Dómnefndin kann vel að meta það sjálfsöryggi sem Benedikt sýnir þegar hann fléttar sérstöku andrúmslofti framandgervingar inn í spennuþrungin atriði og innileg augnablik með því að hafa lifandi tónlistarflutning í mynd og láta hljóðfæraleikarana túlka skap- og tilfinningasveiflur persónanna. Útkoman er frábær kvikmynd sem er leiftrandi skemmtileg í meðferð sinni á hápólitísku viðfangsefni, svo og einkalífi 48 ára gamallar konu sem er hin óvænta hasarhetja myndarinnar. Og ástin sem liggur til grundvallar frásögninni – ástin á náttúrunni og ást á umkomulausu barni – skín í gegnum allt saman.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir árlega fimm verðlaun: Barna- og unglingabókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, bókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun og umhverfisverðlaun. Hver verðlaun nema 350 þúsundum danskra króna og eru þau veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.